Skessuhorn


Skessuhorn - 07.03.2018, Page 28

Skessuhorn - 07.03.2018, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 201828 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmar 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 7 Sprautu- og bifreiðaverkstæði Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti Þjónustum öll tryggingafélög Borgarness Skagabraut 6, Akranesi - sími: 431-5110/666-5110 www.smaprent.is - smaprent@smaprent.is Hönnum, prentum og merkjum fyrir einstaklinga, hópa, félög, samtök og fyrirtæki Smáprent Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Karlakórinn Heimir úr Skagafirði heldur tónleika í Tónbergi á Akra- nesi, klukkan hálf níu næstkomandi föstudagskvöld. Dagskrá kórsins er fjölbreytt og skemmtileg að venju, óperuaríur og sígild kórverk, ein- söngur, tvísöngur, kvartett, tvöfald- ur kvartett og kórsöngur eins og vera ber. Með kórnum verða þeir Óskar Pétursson frá Álftagerði og Valmar Valjaots, Hvanndalsbróðir. Klukkan tvö á laugardaginn verð- ur kórinn svo með tónleika í Lang- holtskirkju í Reykjavík. Sjá nánar í auglýsingu. mm Heimir syngur á Akranesi á föstudaginn Pennagrein Pennagrein Nú í ár eru 20 ár liðin frá því að Hvalfjarðargöng voru opnuð. Þar var á ferðinni stórkostlegt mann- virki og með því stærsta í íslenskri vegagerð. Jarðgöng undir firði og þau einu sinnar tegundar hér á landi. Þessi samgöngubót var bylting fyrir nærliggjandi sveitarfélög og alla þá sem héldu út á hringveginn. Nú þegar hillir undir það að rík- inu verði afhent þetta mannvirki er gott að líta yfir farinn veg og skoða gildi þessara ganga út frá öðrum sjónarhóli. Ég sendi fyrirspurn á nú- verandi samgöngu- og sveitarstjórn- arráðherra um hver væri áætlaður sparnaður ríkisins af minni snjó- mokstri, viðhaldi vega og vegafram- kvæmdum í Hvalfirði eftir opnun Hvalfjarðarganga og líka hver væri áætlaður sparnaður ríkisins af því að hætta siglingum Akraborgar eftir opnun Hvalfjarðarganga. Það kom fram í svörum ráðherra að samanlagður sparnaður ríkisins gæti numið á fimmta milljarð króna. Þarna er verið að tala um sparnað af snjómokstri þar sem aukin um- ferð um Hvalfjörð hefði kallað á hærra þjónustustig. Sparnaðurinn vegna minna viðhalds eru allt að tveir milljarðar. Hann gæti vissulega verið hærri þar sem ljóst er að meiri umferðarþungi hefði kallað á mikla uppbyggingu á veginum fyrir fjörð- inn. Sparnaðurinn af því að leggja niður Akraborgina er metinn á 2,5 milljarða. Greinarhöfundur ætlar að annar ávinningur sé eldsneytissparnaður og sá milljarðasparnaður sem felst í hættuminni vegi sem vart verður metinn til fjár. Við skulum líka líta til þess ávinnings sem þetta skap- aði fyrir þau sveitarfélög sem liggja nærri Hvalfjarðargöngum. Fjölgað hefur á Akranesi um 40% á þess- um árum sem má örugglega rekja til þessara framfara í samgöngumálum. Það er ljóst að ríkið hefur spar- að mikla fjármuni með þessari fram- kvæmd. Það ætti að vera vatn á myllu þeirra sem vilja hraða framkvæmdum við uppbygg- ingu vegar um Kjalarnes sem er orð- inn mjög hættulegur vegfarendum. Það er löngu orðið tímabært að efla öryggi þeirra sem þarna eiga leið um. Þetta er líka staðfesting á gagn- semi jarðganga víða um landið. Mesti ávinningurinn er hættuminni og öruggari vegir, auk þess sem jarð- göng spara viðhald og þjónustu allt árið um kring. Halla Signý Kristjánsdóttir Höf. er þingmaður Framsóknar- flokksins í NV kjördæmi. Hvalfjarðargöng spöruðu ríkinu milljarða króna Ég hef lengi haft brennandi áhuga á því að efla kirkjuna okkar. Marg- ir af gömlu prestunum töluðu um nauðsyn þess að glæða kristni og kirkjulíf. Við þurfum ekki að efast um kristna trú en við þurfum að hlú alveg sérstaklega vel að kirkjulífinu í hverri sókn. Í kirkjunni þurfum við að vinna saman að því að sækja kirkjuna vel og styðja safnaðarstarf, boðun og helgihald á helgum og hátíðum og þá ekki síst barna- og æskulýðsstarf að ógleymdu gagn- merku starfi kvenfélaga og starfi margra góðra kóra og organista. Kirkjulíf stendur nær okkur en við höldum ef við reiknum líka með sálgæslu og áfallahjálp sem oftast er starfrækt út frá heilbrigðisstofn- unum í héraðinu. Oft koma prest- ar sóknarinnar að því eða prestar og djáknar með sérmenntun á sviði klínískrar sálgæslu. Í öllu því starfi er unnið út frá trúarreynslu og vel- ferð manneskjunnar og ekki er spurt um trúfélagsaðild. Við erum einfaldlega í sameiginlegri vegferð í þessu samfélagi sem mótast af krist- inni trú og öðrum þáttum í menn- ingararfi þjóðarinnar. Ef kirkjan ætlar að þjóna þessu hlutverki sínu áfram þarf hún að leggja höfuð áherslu á að efla innra starf safnaðanna og þjónustu sína í sóknum landsins og á stofnunum eða í samstarfi við skóla, heilbrigð- isstofnanir og félagasamtök. Kirkj- an þarf að efla starfsmannastefnu sína, vera til fyrirmyndar í sam- skiptum fólks, jafnréttismálum og stjórnsýslu. Vekja þarf fólk til um- hugsunar um loftlagsmál og um- hverfi sitt út frá velferð manneskj- unnar og samfélagsins. Félagsleg- ur auður kirkjunnar felst í því fólki sem er viðriðið þjónustu hennar á hverjum stað og í stoðþjónustu kirkjunnar við starfið á vettvangi fólksins. Núna er farið aftur af stað með nýja kosningu til vígslubiskups í Skálholti og skulum við vona að það takist betur til með formsatrið- in. Ég trúi því að kirkjan vilji gera vel. Við viljum öll gera vel. Eftir að ég hlaut aftur tilnefningu presta og djákna í febrúar býð ég mig fram til starfa í þágu safnaðanna í umdæmi vígslubiskups í Skálholti. Umdæmið nær frá Hafnarprestakallli og suður og vestur um land allt norður til Stranda og vestur til Bolungarvík- ur. Vesturlandið og allir Vestfirðir eru hér með og einnig höfuðborg- arsvæðið og suðvesturhorn lands- ins. Fólkið sem kýs er fólkið í kjör- nefndum prestakallanna á svæð- inu, prestar og djáknar og er kosið í póstkosningu 9. – 21. mars. Það sem heillar mig mest við þetta starf eru þau beinu tengsl sem gert er ráð fyrir að vígslubiskup hafi við hverja sókn. Starfsvettvangur hans er að vera í þessum tengslum og rækta þau í gegnum boðun, helgi- hald og safnaðarstarf. Ég vil vinna með því fólki sem vinnur að því að glæða kristni og kirkjulíf. Það er vel hægt með því að heimsækja söfnuði og setja sig inní aðstæður á hverj- um stað. Það er hægt með góðum tengslum, ráðgjöf og fræðslu. Það er hægt með því að vinna að endur- menntun og öðru sem getur komið í veg fyrir þreytu eða kulnun í starfi og alltaf má bæta vinnuaðstöðu og skipulag á vinnutíma og viðveru. Það gefur mikinn kraft ef hægt er að auka sjálfboðastarf og styrkja sjálfboðaliðana af því að það er bara meira gaman þar sem fleiri koma saman að verki. Svo þarf að vinna aftur skerðinguna á sóknargjöldum því það er rekstrarfé safnaðanna á sama hátt og gildir um öll trúfélög. Ég vil gjarnan fá að vinna að þessu með Guðs hjálp og öllum þeim sem vilja efla kirkjuna inn- anfrá og styrkja það starf sem nýt- ur mestrar virðingar hjá þjóðinni. Þess vegna gef ég kost á mér og kem með mína reynslu sem ég lýsi á heimasíðunni KristjánBjörnsson. is og kem fram með dyggum stuðn- ingi konu minnar, Guðrúnar Helgu Bjarnadóttur. Ég vil fá að vinna að þessu öllu út frá Skálholti og með aðsetur þar enda er brýnt að efla þann helga stað með guðsþjónustu, fundum, fræðsludögum og upp- byggilegri samveru, aukinni kynn- ingu og þjónustu við ferðafólk og skólahópa og ekki síst með rækt við kyrrðardaga og tónlistarlíf. Það er von mín að kirkjunni takist vel til. Sr. Kristján Björnsson Að glæða kristni og kirkjulíf Hjónin Guðrún Helga Bjarnadóttir og sr. Kristján Björnsson.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.