Skessuhorn


Skessuhorn - 07.03.2018, Síða 30

Skessuhorn - 07.03.2018, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 201830 Um síðustu helgi fór fram síð- asta umferð Íslandsmeistaramóts- ins í klifri, en keppt var í öllum aldursflokkum. Skagamenn mættu til leiks með á annan tug klifrara í yngri flokkum. Brimrún Eir Óðins- dóttir tryggði sér Íslandsmeistara- titilinn í 16-19 ára flokki og landaði þar með öðrum Íslandsmeistaratitli sínum fyrir ÍA. Fyrr um helgina hafði Sylvía Þórðardóttir einnig náð á verðlaunapall í flokki 11-12 ára og hafnaði hún í öðru sæti og fékk silfur fyrir vikið. Hjalti Rafn Kristjánsson var hársbreidd frá bronsverðlaunum en endaði móta- röðina í fjórða sæti. Síðasta stóra mót vetrarins er Bikarmeistaramót Íslands sem fram fer í apríl og þar mun Brimrún Eir keppa fyrir hönd ÍA. mm/þs Brimrún Eir Íslandsmeistari Íslandsmót unglinga í keilu fór fram um síðustu helgi. Alls tóku 38 keppendur þátt. Keilufélag Akraness átti 13 keppend- ur í mótinu sem spiluðu undir merkjum ÍA og voru Akurnes- ingar fjölmennastir í mótinu. Keiluspilararnir ungu og efnilegu frá Akranesi áttu góðu gengi að fagna í mótinu. Hlynur Helgi Atlason varð Íslands- meistari í 3. flokki pilta og Sóley Sif Konráðsdóttir Íslands- meistari í 4. flokki stúlkna. Þá varð Matthías Leó Sigurðsson Íslandsmeistari í 4. flokki pilta, en þar kom upp sú óvenjulega staða að tveir voru efstir og jafnir í fyrsta sætinu. Þegar slíkt hendir hljóta báðir gullverðlaun. Jóhann Ársæll Atlason vann til silfurverðlauna í 1. flokki pilta og varð í þriðja sæti í opnum flokki. Allir keppendur í 5. flokki fengu verðlaun fyrir þátttöku sína í mótinu, en þar var Ísak Freyr Konráðsson meðal keppenda. kgk/ Ljósm. KLÍ. ÍA eignaðist þrjá Íslandsmeistara í keilu Hlynur Helgi Atlason varð Íslandsmeistari í 3. flokki pilta. Sóley Sif Konráðsdóttir varð Íslandsmeisatri í 4. flokki stúlkna. Matthías Leó Sigurðsson varð Íslandsmeistari í 4. flokki pilta ásamt Mikael Aroni Vilhelmssyni. Þeir halda hér saman á bikarnum. Valdís Þóra Jónsdóttir atvinnukylf- ingur úr Leyni á Akranesi lauk að- fararnótt föstudags keppni á NSW Open mótinu á Coffs Harbour vell- inum í Ástralíu. Mótið er hluti af LET Evrópumótaröðinni sem er sterkasta atvinnumótaröð kvenna í Evrópu. Valdís Þóra lék tvo fyrstu hringina á fimm yfir pari og endaði í 67. sæti. Hún var tveimur höggum frá því að komast í gegnum niður- skurðinn. NSW mótið var fjórða mótið í röð hjá Valdísi Þóru á LET Evrópumótaröðinni á þessu ári en öll mótin fóru fram í Ástralíu. Auk þess keppti hún á LPGA móti í febrúar og var mótið nú því það fimmta í röð hjá henni í þessari keppnistörn. Valdís Þóra er í sjötta sæti peningalistans á LET Evrópumótaröðinni en þet- ta er annað keppnisárið hjá henni á mótaröðinni. mm/golf.is Komst ekki í gegnum niðurskurðinn Snæfell tók á móti Skallagrími í Vesturlandsslag Domino‘s deildar kvenna á laugardag. Leikurinn var báðum liðum mikilvægur í barátt- unni um fjórða sæti deildarinnar og þar með sæti í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn í vor. Fór svo að lokum að Skallagrímur hafði sig- ur, 74-87 og lyfti sér þar með upp í fjórða sætið. Skallagrímskonur voru grimm- ari í öllum sínum aðgerðum í upp- hafi leiks. Snæfellskonur héldu í við þær fyrstu mínúturnar en eftir það hafði Skallagrímsliðið undirtökin og hafði tíu stiga forystu eftir fysta leik- hluta, 11-21. Snæfellskonur voru mun ákveðnari í öðrum leikhluta. Með snörpum kafla komust þær yfir, 24-23, snemma í leikhlutanum áður en Skallagrímur tók forystuna að nýju. Jafnræði var með liðunum næstu mínúturnar, eða þar til seint í leikhlutanum þegar Skallagrímur náði góðum kafla og leiddi með níu stigum í hléinu, 30-39. Snæfellskonur komu ákveðnar til síðari hálfleiks og minnkuðu mun- inn í fjögur stig snemma í þriðja leikhluta, 37-41. Þær náðu þó aldrei forystunni og með góðum leik seint í leikhlutanum náði Skallagrímur að auka muninn í ellefu stig fyrir loka- fjórðunginn, 50-61. Borgnesingar voru mjög öflugir í upphafi fjórða leikhluta og komust 18 stigum yfir, 50-68, á fyrstu mínútum hans. Snæ- fellskonur spyrntu við fótum og náðu að minnka muninn í átta stig, 63-71, þegar þrjár mínútur lifðu leiks. En nær komust þær ekki og að lokum fór svo að Skallagrímur sigr- aði með 87 stigum gegn 74 stigum Snæfells. Kristen McCarthy var atkvæða- mest í liði Snæfells með 21 stig, ell- efu fráköst, átta stolna bolta og sex varin skot. Gunnhildur Gunnars- dóttir skoraði 14 stig, tók fimm frá- köst og gaf fimm stoðsendingar og Júlía Scheving Steindórsdóttir var með tólf stig. Carmen Tyson-Thomas átti stór- leik fyrir Skallagrím, skoraði 33 stig, reif niður 18 fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir daðraði við þrenn- una með 19 stig, tíu fráköst og níu stoðsendingar og Jóhanna Björk Sveinsdóttir var með 16 stig og tíu fráköst. Með sigrinum lyftu Skallagríms- konur sér upp í fjórða sæti deildar- innar sem gefur sæti í úrslitakeppn- inni í vor. Þær hafa 22 stig, jafn mörg og Stjarnan í sætinu fyrir neðan en tveggja stiga forskot á Breiðablik og fjögurra stiga forskot á Snæfell, sem er í sjöunda sæti með 18 stig. Fimm leikir eru eftir í deildinni, tíu stig í pottinum og ljóst að hart verður barist um sæti í úrslitakeppninni það sem eftir lifir móts. Snæfell leikur næst á laugardag- inn, 10. mars, þegar liðið heimsæk- ir Hauka í Hafnarfjörðinn. Skalla- grímur leikur næst á sunnudag, 11. mars, þegar liðið fær Val í heimsókn í Borgarnes. kgk Körfuboltalið Grundarfjarðar tók á móti liði Kormáks frá Hvamms- tanga í 3. deildinni í körfu síðasta föstudag. Leikurinn var í járnum til að byrja með og staðan eftir fyrsta leikhluta var 15-13 heimamönnum í vil. Gestirnir komu miklu grimmari í öðrum leikhluta og leiddu í hálfleik með níu stiga mun 25-34. Staðan eftir þriðja leikhluta var svo 33-44 og útlitið ekki gott fyrir heima- menn. Grundfirðingar reyndu að vinna sig inn í leikinn í fjórða leik- hluta og minnkuðu forskot gest- anna jafn og þétt þar til þeir jöfnuðu 50-50 þegar lítið var eftir af leik- tímanum. Heimamenn náðu svo að komast yfir en þá skiptu Kormáks menn um gír og keyrðu upp hrað- ann og kláruðu leikinn með fimm stiga mun en staðan í leikslok var 56-61 fyrir Kormáki. Grundarfjörð- ur er í áttunda sæti í þriðju deildinni og eiga leik við ÍBV á heimavelli 11. mars næstkomandi. tfk Logi Geirsson heimsótti Grunn- skóla Grundarfjarðar fimmtudaginn 1. mars og hélt fyrirlestur fyrir krakk- ana í skólanum. Þar ræddi Logi um hvernig hægt er að setja sér markmið og byggja upp sjálfstraust og minnti á mikilvægi þess að byggja upp jákvæða sjálfsmynd. Krakkarnir hlustuðu á Loga af athygli og fengu svo að ræða við hann eftir fyrirlesturinn. tfk Logi Geirsson með fyrirlestur Grundarfjörður lá á heimavelli gegn Kormáki Skallagrímur krækti í mikilvæg stig í Stykkishólmi Sigrún Sjöfn Ámundadóttir daðraði við þrennuna þegar Skallagrímur sigraði Snæfell. Ljósm. úr safni/ kgk.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.