Skessuhorn


Skessuhorn - 21.03.2018, Page 5

Skessuhorn - 21.03.2018, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018 5 Árleg stærðfræðikeppni fyrir grunnskóla á Vesturlandi var hald- in í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi á föstudaginn. Kepp- endur voru 134 talsins úr átt- unda, níunda og tíunda bekk frá sex grunnskólum af Vesturlandi, þ.e. Grundaskóla og Brekkubæjar- skóla á Akranesi, Grunnskólanum í Borgarnesi, Grunnskóla Borgar- fjarðar, Grunnskóla Snæfellsbæjar og Auðarskóla í Búðardal. Þegar keppendur höfðu gert sitt besta og skilað inn prófum sínum var boð- ið upp á pizzuveislu í mötuneyti skólans. Þeir keppendur sem verða í tíu efstu sætunum í hverjum ár- gangi verða svo boðaðir til verð- launaafhendingar laugardaginn 7. apríl. Þar verður þremur efstu í hverjum árgangi afhent peninga- verðlaun fyrir góðan árangur. arg Markaðs- & kynningarstjóri - Um er að ræða, áhugavert og fjölbreytt starf sem reynir á nákvæmni, samskiptahæfni, fagmennsku, miklum samskiptum og samvinnu við starfsmenn og nemendur skólans. Landbúnaðarháskólinn er á tveimur skólastigum framhaldsskóli og háskóli og sinnir markaðs starfar einnig á Keldnaholti í Reykjavík og á Reykjum í Ölfusi við Hveragerði. Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum Tilgangur sjóðsins er að efla menningu í Borgarbyggð og er sérstök rækt lögð við grasrót í menningarlífi. Lögð er áhersla á að styrkja einstaklinga og félagasamtök í Borgarbyggð. Styrkir eru verkefnatengdir. Umsókninni þarf að fylgja sundurliðuð kostnaðarætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð. Fyrir árslok þarf að afhenda sjóðsstjórn stutta skýrslu um nýtingu styrksins. Hægt er að sækja um rafrænt í gegn um íbúagátt. Einnig má sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði sem finna má á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is en þar er einnig að finna úthlutunarreglur sjóðsins. Umsóknir skulu berast Ráðhúsi Borgarbyggðar (borgarbyggd@borgarbyggd.is), Borgarbraut 14, í síðasta lagi þriðjudaginn 17. apríl n.k. Ef umsækjandi óskar eftir að fá gögn endursend skal hann taka það sérstaklega fram. Nánari upplýsingar veitir Kristján Gíslason netf. kristjangisla@borgarbyggd.is eða í s: 433-7100. F.h stjórnar Menningarsjóðs Borgarbyggðar Vilhjálmur Egilsson. Föstudaginn langa, 30. mars, munu fimm leikkonur flytja Pass- íusálma Hallgríms Péturssonar í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Leik- konurnar eru: Edda Þórarinsdótt- ir, Halla Guðmundsdóttir, Krist- björg Kjeld, Margrét Guðmunds- dóttir og Steinunn Jóhannesdótt- ir sem jafnframt hefur umsjón með flutningnum. Tónlistarflutningur milli þátta verksins er í höndum Zsuzsönnu Budai organista kirkj- unnar. Leikkonurnar fimm störfuðu allar á árum áður við Þjóðleikhús- ið en taka nú höndum saman um þetta verkefni til að vekja athygli á þeirri staðreynd að Hallgrímur Pétursson leitaði á sínum tíma til fjögurra mætra kvenna til þess að koma skáldverki sínu á framfæri við lesendur og hlustendur. Hann sendi þeim öllum eiginhandarrit að sálmunum með ósk um að þær gerðust kynningarfulltrúar hans. Auk þess átti hann eiginkonu sem bjó honum starfsskilyrði til þess að vinna að þessu mikla verki. Kona Hallgríms var Guðríður Símonar- dóttir. Í tengslum við flutning Passíu- sálmanna í Saurbæ verður endur- útgefinn bæklingur, Svoddan ljós mætti fleirum lýsa, með ágripi af sögu þeirra kvenna sem Hallgrím- ur treysti á sér til fulltingis. Þær voru Ragnhildur Árnadóttir frá Ytra-Hólmi, Helga Árnadóttir í Hítardal, Kristín Jónsdóttir í Ein- arsnesi og Ragnheiður Brynjólfs- dóttir í Skálholti. Höfundur text- ans er Steinunn Jóhannesdóttir. Flutningur Passíusálmanna í Saurbæ á föstudaginn langa hefst klukkan 13.30 og stendur til 18.30. Í tilkynningu frá leikkonunum kemur fram að allir eru hjartanlega velkomnir í kirkjuna til að hlýða á hluta sálmalestursins eða allan. mm Fimm leik- konur flytja Passíusálmana í Saurbæ Leikkonurnar. F.v: Halla Guðmundsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Steinunn Jóhannesdóttir, Edda Þórarinsdóttir og Kristbjörg Kjeld. Ljósm. Hilmar Þorsteinn Hilmarsson. Stærðfræðikeppni grunnskólanna var á föstudaginn Nemendur voru að koma sér fyrir í skólastofunum skömmu áður en stærð- fræðikeppnin hófst.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.