Skessuhorn - 21.03.2018, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 20186
Styttist í
vatnaveiðina
LANDIÐ: Silungsveiði í
vötnum hefst formlega um
næstu mánaðamót. Á páska-
dag, sunnudaginn 1. apríl,
verður opnað formlega fyrir
veiði í nokkrum vötnum sem
seld eru í gegnum Veiðikortið.
Í tilkynningu segir að veturinn
hafi verið fremur kaldur en þó
sé ís farinn að hopa á mörg-
um vötnum. „Það eru margir
skemmtilegir kostir í boði fyr-
ir þá sem vilja skella sér í veiði
þann 1. apríl, en þá opna eft-
irfarandi vötn: Hraunsfjörð-
ur á Snæfellsnesi, vatnasvæð-
ið í Svínadal (Geitabergsvatn,
Eyrarvatn og Þórisstaðavatn),
Vífilsstaðavatn, Syðridals-
vatn og Þveit við Hornafjörð.
Einnig verða eftirtalin vötn
opin frá því ísa leysir: Baulár-
vallavatn, Hraunsfjarðarvatn,
Sauðlauksdalsvatn, Gíslholts-
vatn og Urriðavatn.“ -mm
Fimm vilja á
Staðarstað
SNÆFELLSNES: Fimm
sóttu um embætti sóknarprests
Staðarstaðarprestakalls þegar
staðan var auglýst, en umsókn-
arfrestur rann út 19. febrúar sl.
Umsækjendur eru; séra Arn-
aldur Bárðarson, cand. the-
ol. Arnaldur Máni Finnsson,
mag. theol. Karen Hjartar-
dóttir, séra Ursula Árnadóttir
og cand. theol. Kristinn Snæv-
ar Jónsson. Fyrirkomulag veit-
ingar embættisins er þann-
ig að biskup skipar í embætt-
ið til fimm ára. Áður en til þess
kemur hljóta umsóknir um-
fjöllun matsnefndar um hæfni
til prestsembættis og að feng-
inni niðurstöðu hennar fjallar
kjörnefnd prestakallsins um
umsóknirnar. Kjörnefnd kýs að
því búnu milli umsækjendanna
og skipar biskup Íslands þann
umsækjanda sem hlýtur lög-
lega kosningu. -mm
Yngri en 67 ára
komist í dvalar-
rými
LANDIÐ: Gildandi aldurs-
mörk sem einskorða þjónustu
dagdvalar og dvalarrýma við
aldraða verða numin úr gildi
samkvæmt nýju frumvarpi
heilbrigðisráðherra. Aðgang-
ur að þessari þjónustu verður
bundinn við faglegt mat á þörf
viðkomandi fyrir þessi úrræði.
Svandís Svavarsdóttir ráðherra
kynnti frumvarpið á fundi ríkis-
stjórnar á föstudaginn. „Nokk-
uð er um að óskað sé eftir und-
anþágum frá aldursmörkum
laganna vegna fólks yngra en
67 ára sem þarfnast þjónustu
í dagdvöl eða dvalarrými en
fyrir því er ekki stoð í lögum.
Verði frumvarpið samþykkt
opnast fyrir aðgang yngra fólks
að þessari þjónustu að undan-
gengnu faglegu mati á heilsu-
fari þess og verður jafnframt
forgangsraðað eftir því,“ segir
í tilkynningu ráðuneytisins um
væntanlegt frumvarp. -mm
Næsta blað degi
fyrr
SKESSUHORN: Vegna
dymbilvikunnar sem í hönd
fer verður útgáfu Skessuhorns
í næstu viku flýtt um einn dag.
Blaðið kemur því út þriðju-
dagsmorguninn 27. mars, í stað
miðvikudags. Auglýsendum
og þeim sem vilja koma efni á
framfæri er bent á að skilafrest-
ur rennur út á hádegi mánu-
daginn 26. mars. Skrifstofa
blaðsins verður opin í næstu
viku á hefðbundnum tíma frá
mánudegi til miðvikudags.
Lokað verður frá fimmtudegi
til og með mánudags. Hægt
er að ná í vakthafandi blaða-
mann alla hátíðisdagana í síma
894-8998, vegna áríðandi til-
kynninga á vef eða vegna ann-
arra erinda við ritstjórn. -mm
Fundu líkams-
leifar á sjávar-
botni
FAXAFLÓI: Fyrir nokkru
komu líkamsleifar í veiðar-
færi fiskibáts sem staddur var á
netaveiðum norðarlega á Faxa-
flóa. Lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu fer með rannsókn
málsins en hefur notið aðstoð-
ar ýmissa við leit og rannsókn.
Sérútbúinn bátur var sendur á
vettvang og kannaði sjávarbotn
á þeim stað sem um ræðir. Þá
sáust líkamsleifar en vegna sjó-
gangs og dýpis reyndist ekki
unnt að ná þeim upp í fyrstu
tilraun, en það tókst í næstu
ferð þegar sérútbúinn kafbátur
var notaður. Í tilkynningu frá
lögreglu kemur fram að ekki
liggi fyrir af hverjum líkams-
leifarnar eru og muni það taka
nokkurn tíma að fá úr því skor-
ið með DNA greiningu. -mm
Textaland ehf. hóf nýlega starfsemi
með formlegum hætti á Akranesi.
Fyrirtækið veitir fjölbreytta þjón-
ustu á sviði ritaðs máls, m.a. texta-
gerð, prófarkalestur og þýðingar
fyrir fyrirtæki, stofnanir og háskóla-
nema, svo eitthvað sé nefnt. Stofn-
endur Textalands eru Arnar Óð-
inn Arnþórsson og Halla Sigríð-
ur Bragadóttir. Þau eru bæði upp-
lýsingafræðingar og hafa áralanga
reynslu af margs konar skrifum og
vinnu með texta fyrir fyrirtæki og
stofnanir.
„Grunnhugmyndin er að sameina
þá þekkingu, reynslu og menntun
sem við höfum aflað okkur í gegnum
tíðina, og það sem við höfum gaman
af að gera til að skapa okkur starfs-
vettvang hér á Akranesi. Þessi þjón-
usta er þó þess eðlis að viðskiptavin-
ir okkar geta verið staddir hvar sem
er á landinu eða í heiminum, ef því
er að skipta,“ segir Arnar.
Þau eru bæði eftirvæntingarfull og
tilbúin að takast á við þetta verkefni.
„Við erum spennt fyrir þessu nýja
hlutverki, enda hefur hvorugt okkar
komið nálægt rekstri fyrirtækja áður.
Við höfum fengið góð ráð, leiðsögn
og stuðning hjá reynslumiklum vin-
um, rekstrarfólki og stjórnendum
hér í bæ, sem og Uppbyggingar-
sjóði Vesturlandi og Nýsköpunar-
miðstöð. Við erum vongóð um að
Textaland vaxi og dafni á komandi
árum,“ segir Arnar.
Arnar hefur skrifað og unnið
með texta til opinberrar birtingar
síðan 2006. Áður en hann stofn-
aði Textaland ehf. starfaði hann
m.a. sem skjalastjóri og sérfræð-
ingur hjá Norðuráli, deildarstjóri
hjá Bókasafni Kópavogs og fulltrúi
hjá Neytendastofu og Samkeppnis-
stofnun.
Halla hefur sinnt fjölbreyttum
störfum m.a. hjá Landspítalanum,
Orkuveitunni og Símanum. Í dag
starfar hún hjá Ritara ehf. Texta-
land er til húsa í Landsbankahúsinu
við Akratorg á Akranesi. mm
Textaland er nýtt fyrirtæki á Akranesi
Arnar Óðinn Arnþórsson og Halla Sigríður Bragadóttir.
Guðjón Arnar Kristjánsson, fyrr-
verandi alþingismaður og for-
maður Frjálslynda flokksins, er
látinn, 73 ára að aldri. Guðjón
fæddist á Ísafirði 5. júlí 1944 son-
ur hjónanna Kristjáns Sigmund-
ar Guðjónssonar og Jóhönnu
Jakobsdóttur. Guðjón lauk fiski-
mannaprófi frá Stýrimannaskól-
anum í Reykjavík og starfaði
sem skipstjóri um þriggja ára-
tuga skeið, eða frá 1967 til 1997.
Guðjón lét mikið til sín taka um
sjávarútvegsmál, hagsmuni sjó-
manna og var afar annt um hag
landsbyggðarinnar. Hann var
formaður Skipstjóra- og stýri-
mannafélagsins Bylgjunnar
1975-1984 og forseti Farmanna-
og fiskimannasambands Íslands
1983-1999.
Guðjón var varaþingmaður
fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Vest-
fjörðum 1991-1995. Hann ásamt
Sverri Hermannssyni stofnuðu
Frjálslynda flokkinn árið 1999.
Guðjón var þingmaður Frjáls-
lynda flokksins á Vestfjörðum frá
1999 til 2003 en alþingismaður
Norðvesturkjördæmis fyrir sama
flokk frá 2003 til 2009.
Guðjón lætur eftir sig eigin-
konu og sjö uppkomin börn.
mm
And lát:
Guðjón Arnar Kristjánsson