Skessuhorn - 21.03.2018, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018 27
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Um síðustu helgi var haldið Íslands-
mót í klassískum kraftlyftingum og
einnig Íslandsmót í klassískri bekk-
pressu. Bæði mótin voru haldin af
Kraftlyftingafélagi Reykjavíkur.
Helgin hófst með keppni í klass-
ískri bekkpressu á laugardaginn.
Kraftlyftingafélag Akraness átti þar
tvo fulltrúa; Einar Örn Guðnason
og Svavar Örn Sigurðsson. Svavar
gerði sér lítið fyrir og sigraði í 74
kg flokki með lyftu upp á 145 kg.
Skilaði það honum 104,7 Wilks-
stig og sjötta sætinu í stigakeppni
allra flokka. Einar Örn Guðnason
hreppti silfrið í 105 kg flokki með
lyftu upp á 180 kg. Fékk hann fyr-
ir lyftuna 107,6 Wilksstig og fjórða
sætið í stigakeppninni.
Einar mætti síðan aftur til leiks
daginn eftir þegar Íslandsmótið í
klassískum kraftlyftingum fór fram.
Hann lyfti 278,5 kg í hnébeygju,
270 kg í réttstöðulyftu og 186,5 kg í
bekkpressu. Bekkpressulyfta Einars
er nýtt Íslandsmet. Samanlagt lyfti
Einar 735 kg sem skilaði honum
öðru sæti í 105 kg flokki. Fékk hann
439,5 Wilksstig og hafnaði í þriðja
sæti í stigakeppninni. kgk
Skallagrímskonur þurftu að játa sig
sigraðar, 82-86, eftir æspispenn-
andi leik gegn Íslandsmeisturum
Keflavíkur í Domino‘s deildinni á
sunnudag. Leikið var í Borgarnesi.
Keflavík skoraði fyrstu stigin en
eftir það náðu Skallagrímskonur yf-
irhöndinni. Þær létu finna vel fyr-
ir sér og komust í 15-7 þegar lítið
var eftir af fyrsta leikhluta. Þá náði
Keflavík góðri rispu og tók foryst-
una örstutta stund. Skallagrímur
átti síðan lokaorðið í fyrsta fjórð-
ungi og leiddi með þremur stigum
að honum loknum, 20-17. Leikur-
inn var í járnum í upphafi annars
leikhluta. Keflavík minnkaði mun-
inn í eitt stig og þannig fylgdust
liðin að næstu mínúturnar. Skalla-
grímur náði síðan yfirhöndinni að
nýju og tók að síga fram úr og leiddi
með sjö stigum í hléinu, 40-33.
Keflavíkurkonur mættu ákveðn-
ar til síðari hálfleiks og skoruðu
fyrstu stigin eftir hléið. Skalla-
grímskonur spyrntu við fótum en
gestirnir komust yfir seint í leik-
hlutanum með góðum leik. Skalla-
grímur náði að jafna metin í 61-61
fyrir lokafjórðunginn og leikurinn
í járnum. Keflavík náði góðri rispu
snemma í fjórða leikhluta og sjö
stiga forskoti. Skallagrímur minnk-
aði muninn í þrjú stig með góðum
kafla áður en gestirnir náðu aftur
yfirhöndinni. Þegar tvær mínútur
lifðu leiks leiddi Keflavík með átta
stigum en þar með var ekki öll nótt
úti. Skallagrímur minnkaði muninn
í þrjú stig seint í leiknum og síðan
tvö stig á lokasekúndunum. Gest-
irnir kláruðu leikinn á að setja nið-
ur tvö vítaskot og sigruðu 82-86.
Carmen Tyson-Thomas átti
stórleik fyrir Skallagrím, skoraði
39 stig og tók 17 fráköst. Jóhanna
Björk Sveinsdóttir var með 16 stig,
sex fráköst og sex stoðsendingar og
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 13 stig,
sex fráköst og níu stoðsendingar.
Brittany Dinkins var óstöðvandi
í liði Keflavíkur og átti risaleik.
Hún skoraði hvorki fleiri né færri
en 48 stig, tók 13 fráköst og gaf sjö
stoðsendingar. Erna Hákonardótt-
ir skoraði ellefu stig en aðrar höfðu
minna.
Skallagrímur situr í fimmta sæti
deildarinnar með 26 stig, tveimur
stigum á eftir Stjörnunni í sætinu
fyrir ofan, sem veitir þátttökurétt í
úrslitakeppninni í vor. Þessi tvö lið
mætast í Borgarnesi í næstu umferð
þar sem baráttan um sæti í úrslita-
keppninni verður í algleymingi.
Leikur Skallagríms og Stjörnunnar
fer fram í kvöld, miðvikudaginn 21.
mars. kgk/ Ljósm. úr safni.
Skallagrímur tapaði naumlega
fyrir Íslandsmeisturunum
Einar Örn setti Íslandsmet
í bekkpressu
Einar Örn Guðna-
son lyftir réttstöðu.
Ljósm. úr safni/
Sveinn Þór.
Snæfell tók á móti Hamri í öðrum
leik undanúrslitarimmunnar í úr-
slitakeppni 1. deildar karla í körfu-
knattleik á mánudagskvöld. Eft-
ir jafnan og spennandi leik lengst
framan af máttu heimamenn sætta
sig við tap, 89-104.
Mikið jafnræði var með liðunum
í upphafi leiks þar sem liðin skipt-
ust á að skora og leiða í leiknum.
Snæfell leidd með tveimur stig-
um eftir fyrsta leikhluta, 27-25 og
náði góðri rispu í upphafi annars
leikhluta en gestirnir frá Hvera-
gerði minnkuðu muninn snarlega
í tvö stig að nýju. Aftur náði Snæ-
fell góðum kafla um miðbik leik-
hlutans og náði níu stiga forskoti,
41-32. En Hamarsmenn gáfu ekk-
ert eftir og minnkuðu muninn í tvö
stig áður en flautað var til hálfleiks,
55-53.
Leikurinn var í járnum eft-
ir hléið. Gestirnir fylgdu heima-
mönnum eins og skugginn fyrstu
mínútur síðari hálfleiks. Þeir náðu
síðan forystunni seint í þriðja leik-
hluta og leiddu fyrir lokafjórðung-
inn, 69-71. Snæfell jafnaði í 71-71
snemma í fjórða leikhluta en eft-
ir það náðu Hamarsmenn góðum
kafla og höfðu sex stiga forystu um
miðjan leikhlutann, 75-81. Þeir
héldu uppteknum hætti og tókst að
slíta sig frá heimamönnum á loka-
mínútunum. Fór svo að lokum að
Hamar sigraði með 104 stigum
gegn 89.
Christian Covile var atkvæða-
mestur í liði Snæfells með 24 stig
og átta fráköst. Geir Elías Úlfur
Helgason var með 22 stig og fimm
stoðsendingar, Sveinn Arnar Dav-
íðsson skoraði 15 stig og Viktor
Marinó Alexandersson var með 13.
Í liði gestanna var Larry Thomas
stigahæstur með 31 stig og fimm
stoðsendingar að auki. Julian Nel-
son var með 22 stig og átta fráköst,
Dovydas Strasunskas skoraði 15
stig og Þorgeir Freyr Gíslason tíu.
Snæfellingar hafa nú tapað fyrstu
tveimur leikjum undanúrslita-
rimmunnar og eru komnir með
bakið upp við vegginn fyrir þriðja
leik liðanna sem fram fer í Hvera-
gerði á föstudaginn, 23. mars. Það
lið sem fyrr sigrar þrjá leiki kemst
áfram í úrslitaviðureignina þar sem
leikið er um eitt laust sæti í Dom-
ino‘s deildinni að ári. kgk
Snæfellingar með bakið upp við vegg
Christian Covile og félagar hans í Snæfelli verða að sigra Hamar í Hveragerði á
föstudaginn ætli þeir sér að halda í vonina um sæti í deild þeirra bestu að ári.
Ljósm. úr safni.
Snæfellskonur máttu játa sig sigr-
aðar gegn Stjörnunni, 69-65, eftir
spennandi baráttuleik í Domino‘s
deild kvenna á laugardag. Stjarn-
an krækti með sigrinum í mikilvæg
stig í baráttunni um sæti í úrslita-
keppninni.
Jafnræði var með liðunum í upp-
hafi leiks og Stjarnan leiddi 10-9
um miðjan fyrsta leihluta. Snæfell
skoraði aðeins fjögur stig næstu
fimm mínúturnar og á meðan náðu
heimakonur yfirhöndinni. Þær
leiddu 23-13 eftir upphafsfjórð-
unginn. Snæfell lék betur í öðrum
leikhluta og náði hægt og rólega
að komast nær heimaliðinu. Þegar
flautað var til hálfleiks höfðu Snæ-
fellskonur minnkað forystu Stjörn-
unnar í fjögur stig, 40-36.
Bæði lið komu ákveðin til síð-
ari hálfleiks og létu finna fyrir sér.
Einkum var varnarleikur liðanna
þéttur í þriðja leikhluta og lítið
skorað. Snæfell minnkaði muninn
í tvö stig og jafnaði síðan í 45-45
seint í leikhlutanum. En þá náði
Stjarnan boltanum, skoraði næstu
átta stig og hafði yfirhöndina fyrir
lokafjórðunginn. 53-45. Snæfells-
konur minnkuðu muninn í þrjú
stig snemma í fjórða leikhluta en
komust ekki nær að sinni. Aftur
minnkuðu þær muninn í þrjú stig
þegar þrjár mínútur lifðu leiks
en eftir það náði Stjarnan góðri
rispu og níu stiga forystu. Snæ-
fell minnkaði muninn í fjögur stig
á lokamínútum leiksins en komust
ekki nær. Lokatölur urðu 69-65,
Stjörnunni í vil.
Kristen McCarthy var atkvæða-
mest í liði Snæfells með 24 stig og
17 fráköst. Berglind Gunnarsdótt-
ir skoraði 17 stig og tók sex fráköst
en aðrar höfðu minna.
Í liði Stjörnunnar var Danielle
Rodriguez með 29 stig, átta frá-
köst og níu stoðsendingar. Bríet
Sif Hinriksdóttir skoraði 14 stig
og tók fimm fráköst og María Lind
Sigurðardóttir var með 13 stig og
tíu fráköst.
Snæfell er í sjöunda sæti deildar-
innar með 20 stig og á ekki mögu-
leika á að komast í úrslitakeppnina
að þessu sinni. Næst leikur liðið
í kvöld, miðvikudaginn 21. mars,
þegar liðið heimsækir Val.
kgk
Snæfellskonur máttu játa sig sigraðar gegn Stjörnunni á laugardag.
Ljósm. úr safni.
Snæfell tapaði í baráttuleik