Skessuhorn - 09.05.2018, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2018 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Íslandsmótið í Garpasundi fór fram
í Ásvallalaug í Hafnarfirði um liðna
helgi. Þar etja kappi sundmenn með
reynslu, 25 ára og eldri. Fimm sundg-
arpar kepptu fyrir íþróttafélög á Vest-
urlandi, þrír frá Sundfélagi Akraness
og tveir frá UMSB. Fyrir Sundfélag
Akraness kepptu Ágúst Júlíusson,
Kári Geirlaugsson og Vignir Barkar-
son en Guðmunda Ólöf Jónasdóttir
og Ingimundur Ingimundarson syntu
undir merkjum UMSB. Skemmst er
frá því að segja að Vestlendingarnir
sópuðu til sín verðlaunum og sneru
heim með hvorki fleiri né færri en 22
gullverðlaun og settu sjö ný Íslands-
met.
Ingimundur keppti í flokki 70-74
ára og bar sigur úr býtum í 100 m
skriðsundi og 50 m baksundi. Þá
hreppti hann silfrið í 50 m skrið-
sundi.
Í flokki 65-69 ára varð Kári Geir-
laugsson áttfaldur Íslandsmeistari.
Hann sigraði í 50 m, 100 m, 200 m,
400 m og 800 m skriðsundi, 50 m og
100 m baksundi og 100 m fjórsundi.
Kári setti nýtt Íslandsmet í 50 m bak-
sundi og 100 m fjórsundi.
Guðmunda Ólöf keppti einnig í
flokki 65-69 ára og vann til fimm
gullverðlauna; í 50 m og 100 m skrið-
sundi, 50 m baksundi, 50 m bringu-
sundi og 100 m fjórsundi. Íslandsmet
setti hún í 100 m skriðsundi og fjór-
sundinu.
Vignir keppti í flokki 50-54 ára
og sigraði í 50 m, 100 m, og 200 m
skriðsundi sem og í 50 m bringu-
sundi. Hann hafnaði í öðru sæti í 100
m skriðsundi og þriðja sæti í 50 m
baksundi.
Ágúst keppti í flokki 25-29 ára og
vann þar til fimm gullverðlauna; í 50
m skriðsundi, 50 m bringusundi, 50
m flugsundi, 100 m flugsundi, 50 m
baksundi. Setti Ágúst jafnframt ný
Íslandsmet í flugsundunum og bak-
sundinu.
ÍA hafnaði í 4. sæti í stigakeppni fé-
laga með 166 stig og UMSB í 7. sæti
með 70 stig. Hefðu félögin keppt
saman hefðu þau hafnað í þriðja sæti í
stigakeppni félaga.
Ingimundur hvetur sundfélögin á
Akranesi og í Borgarnesi til að sam-
eina krafta sína í garpaflokki. „Vitað
er að það er er margt gott sundfólk á
aldrinum 25 ára og eldri sem tengj-
ast Akranesi og Borgarfirðinum. Ef
þessi félög myndu keppa samam er
ljóst að það yrði sterkt lið. Ég skora á
sundfólk á Akranesi og í Borgarfrði á
aldrinu 25-80 ára að taka fram sund-
fötin og mæta með sameiginlegt lið á
næsta Garpamót að ári,“ segir Ingi-
mundur.
kgk/ Ljósm. Sundfélag Akraness.
Vestlenskir sundgarpar sópuðu
til sín verðlaunum
Fulltrúar Sundfélags Akraness, þeir Vignir Barkarson, Kári Geirlaugsson og Ágúst
Júlíusson.
Guðmunda Ólöf og Ingimundur.
ÍA sigraði Leikni R. með einu
marki gegn engu í fyrstu umferð 1.
deildar karla í knattspyrnu á laug-
ardag. Leikurinn fór fram í Akra-
neshöllinni og kvartaði enginn
áhorfanda yfir því, enda gekk á
með éljum á Akranesi þennan dag.
Eina mark leiksins skoraði Stein-
ar Þorsteinsson á 60. mínútu eftir
undirbúning Andra Adolphssonar.
Skagamenn mættu ákveðnir til
leiks og voru skipulagðir í sínum
aðgerðum. Þeir tóku sér tíma í
að þreifa fyrir sér gegn gestunum
úr Breiðholtinu. En eftir því sem
leið á fyrri hálfleikinn urðu sóknir
þeirra markvissari og þeir stöðugt
líklegri til að taka forystuna. Mark-
ið lá í loftinu frá miðjum fyrri hálf-
leik og fram að hléi og yfirburð-
ir Skagamanna voru algjörir. Litlu
munaði að ÍA kæmist yfir skömmu
fyrir hálfleik þegar Hörður Ingi
Gunnarsson átti gott skot sem fór
rétt framhjá markinu. Staðan því
markalaus í hléinu.
Í byrjun síðari hálfleiks tóku
Skagamenn upp þráðinn þaðan
sem frá var horfið. Þeir stjórnuðu
gangi mála inni á vellinum en gest-
irnir virkuðu ekki líklegir til afreka.
Skagamönnum tókst að brjóta ís-
inn á á 61. mínútu. Andri Adolp-
hsson lék þá varnarmenn gestanna
grátt, sendi síðan boltann á Stein-
ar Þorsteinsson sem skoraði auð-
veldlega og kom ÍA yfir, 1-0. Fleiri
urðu mörkin ekki en Skagamenn
hefðu þó hæglega getað skorað
fleiri. Þeir áttu álitlega sókn þeg-
ar tíu mínútur lifðu leiks. Henni
lauk með góðri fyrirgjöf á Steinar
sem hitti ekki boltann í upplögðu
færi. Garðar Gunnlaugsson slapp
svo einn í gegnum vörn gestanna
á lokamínútunni en skot hans var
ekki nægilega gott til að bæta við
í blálokin.
Skagamenn fengu þrjú stig að
launum fyrir sigurinn og sitja í
þriðja sæti eftir fyrstu umferð
deildarinnar. Fyrir ofan eru Vík-
ingur Ó. og HK sem einnig sigr-
uðu fyrstu leiki sína í sumar. Næst
leika Skagamenn á morgun, upps-
tigningardag 10. maí, þegar þeir
heimsækja Þór á Akureyri.
kgk/ Ljósm. úr safni/ gbh.
Skagamenn byrjuðu mótið á sigri
Keppni í 2. deild karla í knatt-
spyrnu hófst sl. sunnudag. Á Akra-
nesi tók Kári á móti Fjarðabyggð í
fyrsta leik liðsins í 2. deild í sögu
félagsins. Káramenn verða að vona
að fall sé fararheill, því þeir fengu
skell í Akraneshöllinni og töpuðu
með fimm mörkum gegn einu.
Káramenn voru sterkari framan af
fyrri hálfleik og fengu óskabyrj-
un þegar Guðlaugur Þór Brands-
son skoraði eftir 15. mínútna leik.
Adam Örn Guðmundsson jafnaði
á 30. mínútu. Tíu mínútum síð-
ar snerist leikurinn hins vegar á
punktinum þegar Sindri Snæfells
Kristinsson, varnarmaður Kára, var
rekinn út af fyrir litlar sakir. Gest-
irnir í Fjarðabyggð nýttu sér það og
komust yfir á lokamínútu með fyrri
hálfleiks marki Mate Coric. Staðan
1-2 í hléinu.
Gestirnir nýttu sér að vera ein-
um fleiri í síðari hálfleik og bættu
við þremur mörkum. Fyrst skoraði
Aleksandar Stojkovic áður en Adam
Örn skoraði annað mark sitt. Jav-
ier Angel Chocano innsiglaði síðan
sigur gestanna á 90. mínútu. Loka-
tölur 1-5. Næst mætir Kári liði
Hugins á Seyðisfirði næstkomandi
laugardag, 12. maí.
kgk/ Ljósm. Knattspyrnufélagið
Kári.
Kári fékk skell í fyrsta leik
Ringófélagar úr Borgarbyggð
gerðu nýverið góða ferð á Suður-
land. Þeir unnu á fjögurra liða móti
sem fram fór á Hvolsvelli í umsjón
HSK. Spiluð var tvöföld umferð og
sigraði UMSB í fjórum leikjum en
tapaði í tveimur. Þetta var þriðja og
síðasta mót þessara liða í vetur. Sá
háttur hefur verið hafður á síðustu
árum og gefist vel, að sögn Flemm-
ing Jessen þjálfara. Næsta verkefni
ringófélaga í Borgarbyggð er þátt-
taka í Landsmóti UMFÍ sem fer
fram 13. – 15. júlí í sumar. mm/fj
Héldu til keppni í ringói
Verðlaunahóf Körfuknattleikssam-
bands Íslands vegna keppnistíma-
bilsins 2017 til 2018 var haldið í
síðustu viku. Þar voru veitt verð-
laun í 1. deildum karla og kvenna
og Domino‘s deildum karla og
kvenna, bæði einstaklingsverðlaun
og tilkynnt um lið ársins.
Liðsmenn deildarmeistara
Skallagríms voru áberandi þegar
veitt voru verðlaun fyrir 1. deild
karla. Eyjólfur Ásberg Halldórs-
son var valinn leikmaður ársins og
Finnur Jónsson þjálfari ársins. Auk
Eyjólfs var Bjarni Guðmann Jóns-
son liðsfélagi hans valinn í lið ársins
í 1. deildinni.
Þá var Grundfirðingurinn Hlyn-
ur Bæringsson valinn í lið ársins í
Domino‘s deild karla, en hann leik-
ur með Stjörnunni.
kgk
Verðlaunaðir fyrir góðan
vetur í körfunni