Skessuhorn - 27.06.2018, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 20188
Aukinn kostn-
aður vegna
samninga og
veikinda
BORGARBYGGÐ: Á
fundi byggðarráðs Borgar-
byggðar í síðustu viku voru
lögð fram gögn með saman-
burði á rekstri fyrstu fimm
mánuði ársins við fjárhags-
áætlun 2018. Fram kom að
almennt var rekstur sveit-
arfélagsins í góðu samræmi
við fyrirliggjandi fjárhags-
áætlun. Langtímaveikindi
hafa þó haft áhrif á rekst-
ur einstakra stofnana. Nið-
urstöður úr kjarasamning-
um félags grunnskólakenn-
ara og Sambands íslenskra
sveitarfélaga hafa einnig
áhrif á rekstur ársins sem
nemur um 25 m.kr. eða um
40 m.kr. á ársvísu. Gera þarf
viðauka við fjárhagsáætlun
vegna aukins launakostnað-
ar vegna langtímaveikinda
og áhrifa af niðurstöðum
kjarasamninga kennara.
-mm
Heitir nú
Náttúruham-
faratrygging
LANDIÐ: Viðlagatrygg-
ing Íslands, sem hefur það
hlutverk að vátryggja gegn
beinu tjóni af völdum nátt-
úruhamfara, svo sem eld-
gosa, jarðskjálfta, skriðu-
falla, snjó- og vatnsflóða,
fær nafnið Náttúruhamfara-
trygging Íslands, skamm-
stafað NTÍ, frá 1. júlí næst-
komandi þegar breytingar á
lögum um starfsemi stofn-
unarinnar taka gildi. Alþingi
samþykkti þessi lög í byrjun
maí. Með breytingunum
er það hlutverk stofnunar-
innar að sinna betur um-
fangsmiklum tjónum vegna
náttúruhamfara skýrar af-
markað en áður var. Helstu
breytingar eru þær að eig-
in áhætta tjónþola lækk-
ar úr 5% í 2%, samhliða
því sem lágmarkfjárhæð-
ir eigin áhættu hækka. Eig-
in áhætta í hverju tjóni fer
úr 20 þúsund krónum í 200
þúsund krónur vegna lausa-
fjár, úr 85 þúsund krónum
í 400 þúsund krónur vegna
húseigna og úr 850 þús-
und krónum í eina millj-
ón króna vegna opinberra
mannvirkja. „Tilgang-
ur þessara breytinga er að
gera Náttúrhamfaratrygg-
ingu Íslands kleift að sinna
betur þeim sem verða fyr-
ir verulegu tjóni af völdum
náttúruhamfara. Breytingin
er til hagsbóta fyrir þá sem
verða fyrir tjóni sem nemur
meira en 8 milljónum króna
á fasteignum sínum, þar
sem þeir munu greiða lægri
eigin áhætta af tjóni sínu.
Þeir sem verða fyrir minna
tjóni bera hins vegar hærri
eigin áhættu en áður,“ seg-
ir Hulda Ragnheiður Árna-
dóttir, framkvæmdastjóri
NTÍ. -mm
Guðmundur
verður forstjóri
HB Granda
RVK: Guðmundur Kristjáns-
son hefur verið ráðinn forstjóri
HB Granda. Hann mun láta
af störfum sem forstjóri Brims
en hann hefur rekið útgerðar-
félög samfleytt í yfir 30 ár. Eins
og fram hefur komið í fréttum
keypti Guðmundur og félög
hans 35% hlut í HB Granda fyrr
á árinu og varð hann í framhaldi
formaður stjórnar. „Með því að
taka að sér starf forstjóra get-
ur Guðmundur nýtt vel reynslu
sína til að vinna úr þeim tæki-
færum sem hann sá með kaup-
um á leiðandi hlut í HB Granda
og leiða eftirfarandi áherslur í
starfsemi félagsins: Einfaldur
og sjálfbær rekstur, vöxtur og
aukin arðsemi, öflugt samstarf á
sviði markaðs- og sölumála og
markviss nýting fiskveiðiheim-
ilda,“ segir í tilkynningu frá fyr-
irtækinu. Guðmundur hefur
hætt sem stjórnarformaður HB
Granda og Magnús Gústafs-
son tekið við því starfi. Rann-
veig Rist verður áfram varafor-
maður stjórnar. Vilhjálmur Vil-
hjálmsson lætur af störfum hjá
HB Granda eftir sex ár sem for-
stjóri þess. -mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 16. – 22. júní.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 17 bátar.
Heildarlöndun: 24.812 kg.
Mestur afli: Glódís AK: 2.926
kg í fjórum löndunum.
Arnarstapi: 10 bátar.
Heildarlöndun: 12.966 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 3.785
kg í tveimur löndunum.
Grundarfjörður: 19 bátar.
Heildarlöndun: 262.781 kg.
Mestur afli: Bylgja VE: 71.077
kg í einni löndun.
Ólafsvík: 37 bátar.
Heildarlöndun: 252.244 kg.
Mestur afli: Páll Jónsson GK:
92.362 kg í einni löndun.
Rif: 25 bátar.
Heildarlöndun: 65.406 kg.
Mestur afli: Saxhamar SH:
16.648 kg í tveimur löndunum.
Stykkishólmur: 26 bátar.
Heildarlöndun: 70.369 kg.
Mestur afli: Jökull SH: 6.396
kg í fjórum löndunum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Páll Jónsson GK – ÓLA:
92.362 kg. 18. júní.
2. Bylgja VE – GRU:
71.077 kg. 22. júní.
3. Hringur SH – GRU:
67.855 kg. 20. júní.
4. Helgi SH – GRU:
45.542 kg. 18. júní.
5. Steinunn SF – GRU:
43.014 kg. 21. júní.
-arg
Eins og kunnugt er tók séra Elín-
borg Sturludóttir í vor við emb-
ætti prests í Dómkirkjupresta-
kalli í Reykjavík. Nú hefur bisk-
up sett séra Jón Ásgeir Sigurvins-
son, eiginmann séra Elínborgar í
Stafholti, til að leysa séra Þorbjörn
Hlyn Árnason á Borg af í níu mán-
aða námsleyfi sem hefst í septem-
ber í haust. Jafnframt hefur Jón
Ásgeir verið settur prestur í hálfu
starfi í Stafholti til vors. mm
Séra Jón Ásgeir leysir af
Skemmtiferðaskipið ms Bre-
men kom til Ólafsvíkur síðarlið-
inn laugardag. Skipið er skráð á
Bahamaeyjum, er 112 metrar að
lengd og 17 metrar að breidd. Í
áhöfn voru 106. Lá skipið fyrir an-
kerum framan við bæinn og voru
farþegar ferjaðir í land á gúmmí-
bátum þar sem þeirra biðu rútur
til þess að fara ferðir um Snæfells-
nesið. Að sögn Péturs Bogasonar
hafnarvarðar var farið á einni rútu
að Vatnshelli og tvær fóru upp að
Snæfellsjökli þar sem þeir farþeg-
ar sem vildu var boðið á jökulinn.
Pétur sagði að farþegar hafi ver-
ið 150 manns og allir utan fjórir
farið í land. Þetta er í annað sinn
á skömmum tíma sem farþegaskip
kemur til Ólafsvíkur og átti Pétur
hafnavörður ekki von á fleiri skip-
um í sumar.
af
Seinna skemmtiferðaskip
sumarsins til Ólafsvíkur
MS Bremen fyrir ankerum við Ólafsvík.
Farþegar fluttir í land.
Nemendum sem innritast á verk-
eða starfsnámsbrautir framhalds-
skóla landsins fjölgar um 33% frá
síaðsta ári. Samkvæmt upplýsing-
um frá Menntamálastofnun var
mest ásókn í nám í rafiðngrein-
um, til dæmis rafeindavirkjun, raf-
veituvirkjun, rafvélavirkjun, raf-
virkjun og hljóðtækni. Einnig var
mikil ásókn í málmiðngreinar, s.s.
blikksmíði, rennismíði, stálsmíði
og vélvirkjun.
Flestir nemendur innritast á
bóknáms- eða listnámsbrautir til
stúdentsprófs, eða alls 69% þeirra
sem sóttu um nám. Um 16% nem-
enda eru innritaðir á verk- eða
starfsnámsbrautir, 15% á almenna
námsbraut eða framhaldsskóla-
braut. Er það lægra hlutfall en
undanfarin ár.
Langflestir fara í fram-
haldsskóla
Alls sóttu 3.930 nemendur um
skólavist í framhaldsskólum fyr-
ir haustönn 2018. Eru það 95,6%
allra þeirra sem útskrifuðust úr
grunnskóla nú í vor. Líkt og und-
anfarin ár gafst nemendum kostur
á að sækja um tvo skóla. Alls fengu
89% umsækjenda skólavist í þeim
skóla sem þeir völdu sér í fyrsta
vali og 9% nemenda fengu skóla-
vist í þeim skóla sem þeir völdu sér
í öðru vali. Alls 65 nemendur, eða
2%, fengu ekki skólavist í þeim
skólum sem þeir óskuðu eftir. Sá
Menntamálastofnun um að út-
vega þeim skólavist í þriðja skóla.
Flestir þeir sem tilheyrðu þessum
hóp uppfylltu ekki inntökuskilyrði
í það nám sem sótt var um. Þetta
eru færri nemendur en á liðnu ári,
en þá voru þeir 81.
Undanfarin ár hafa nokkrir skól-
ar notið mikilla vinsælda hjá um-
sækjendum og var engin breyting
á því í þessari innritun. Samkeppn-
in um pláss var því hörð og þurftu
skólar sem fengu hvað flestar um-
sóknir að vísa umsækjendum frá.
Verzlunarskóli Íslands, Mennta-
skólinn við Hamrahlíð og Mennta-
skólinn við sund fengu flestar um-
sóknir um skólavist. kgk
Fjölgar um þriðjung í verk- og starfsnámi