Skessuhorn


Skessuhorn - 27.06.2018, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 27.06.2018, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018 15 SK ES SU H O R N 2 01 8 KALMANSTORG – ESJUBRAUT GATNAGERÐ OG VEITUR Akraneskaupstaður og Veitur ohf. óska eftir tilboðum í gatnagerð og lagnir við Kalmanstorg og í Esjubraut á Akranesi. Skila skal verkinu fyrir 30. nóvember 2018. Um er að ræða endurgerð Kalmanstorgs ásamt gönguleiðum og stígum við torgið. Í Esjubraut austan Kalmanstorgs skal lagfæra ójöfnur í yfirborði götunnar og malbika báðar akbrautir. Gera skal nýja göngu- og hjólastíga að norðanverðu með götunni. Fyrir Veitur ohf. skal endurnýja allar lagnir í Kalmanstorgi og lagnir með Esjubraut að norðanverðu. Nokkrar stærðir: Malbik á götur og stíga 5200 m2 Steyptar stéttar 800 m2 Fráveitulagnir 750 m Kaldavatnslagnir 380 m Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi 26. júní með því að senda tölvu- póst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is, þar sem fram kemur nafn bjóðanda ásamt netfangi, nafni og símanúmeri tengiliðs. Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, 1. hæð, fimmtudaginn 12. júlí 2018 kl. 11:05. Danshópurinn Sporið af Vestur- landi hefur æft og sýnt þjóðdansa um árabil. Hópurinn hefur víða komið fram í gegnum tíðina, hér heima og erlendis. Hópurinn er því býsna vinsæll en til marks um það er hann bókaður á um þrjátíu viðburði á þessu ári. Síðastliðinn mánudag fór danshópurinn ásamt Gísla S Einarssyni harmonikku- leikara um borð í skemmtiferða- skipið Le Lapérouse þar sem það lá í Reykjavíkurhöfn. Þar var dans- að fyrir fólk frá þremur löndum, sýndir sjö dansar með fróðleik um þá inn á milli. Áheyrendur kunnu vel að meta sýninguna og að fá að kynnast íslenska menningararfin- um með þessum hætti. Myndin er tekin á sviðinu fyrir sýningu. Skipið Le Lapérouse er nýtt fimm stjörnu farþegaskip og kom frá Noregi í jómfrúarferð sinni um norðurhöf. mm/ Ljósm. áhafnarmeðlimur á Le Lapérouse. Danshópurinn Sporið sýndi um borð í skemmtiferðaskipi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.