Skessuhorn


Skessuhorn - 27.06.2018, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 27.06.2018, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 201826 Meðfylgjandi er frumort kvæði sem Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd sendi Skessuhorni í tilefni Brákarhátíðar sem fram fer í Borgarnesi um næstu helgi. Kvæðið er um Þorgerði Brák. Mín saga er eydd af tímans tönn, en tilvera mín var full af önn. Sem ambátt ég löngum þurfti að þjást en þó gat ég einum sýnt þá ást sem ól í sér tryggð sem aldrei brást. Þorgerður hét ég og þar með „brák,” ég þótti hæf til að fóstra strák, sem höfðingjasonur og hetja var og hafði í sér skáldsins eðlisfar. Ég kenndi honum margar menntirnar. En veröldin öll mér var þó dimm og víkingatrúin hörð og grimm. Og illt er að ráða ekki eigin för, - með annarra vald, - á lægstu skör, grípandi yfir öll sín kjör. Ég dó hér forðum – ég drepin var, og deyjandi sökk í kaldan mar. Skalla-Gríms æðið var ógurlegt, engan mann hef ég slíkan þekkt, það náði ekki yfir hann nokkur sekt. „Ætlarðu að drepa hann Egil minn, ætlarðu að drepa soninn þinn?“ hrópaði ég - því hann var ær, hugsunarlaus og viti fjær, en sonurinn ungi mér ósköp kær! Þá snerist hann að mér í óðri heift, andrúm var síst til griða leyft. Hann ofsann magnaði upp í sér, ég undan flýði sem vitað er, með hann eins og naut á hælum mér. Ég heyrði más hans og öskrin öll, sem ólmur griðungur færi um völl. Og þegar ég niður nesið rann ég nötraði af ótta og geig við hann, því trylltan sá ég þar tröllkarl þann. Af bjarginu hljóp ég beint á sund á brúnina hann kom á sömu stund, reif þar upp feikna stóran stein, stefndi honum til að gera mein, - sárari varð mér ei sending nein. Hörð og drepandi herðum á hún þar mér skall og lífi frá dreif mig í kafið dauðans und, deyja ég hlaut á þeirri stund, - blóð mitt litaði Brákarsund. En ennþá sveimar minn andi þar og endurlifir þá tíð sem var, er Skallinn mikli þar sköpum réð, ég skörung engan hef slíkan séð, hann hamið gat allt - nema eigið geð. Um Brákarsund þar sem blóð mitt rann ég berst með vindinum þegar hann æðir um flötinn ört og létt, minn andi er frjáls - ég gerði rétt, því Agli til verndar var ég sett! -Rúnar Kristjánsson Þorgerður Brák Heilsupistill Steinunnar Evu Einhverra hluta vegna hef ég ver- ið að hugsa mikið um skömm und- anfarið. Ekki það að ég hafi orðið fyrir einhverju svakalegu né gert eitthvað hræðilegt sem ég þarf að skammast mín fyrir, heldur þessi hversdagslega innri kúgun sem við beitum okkur sjálf, mörg hver að minnsta kosti. Ég tilkynnti opin- berlega í vetur að ég ætlaði að hætta að vera upptekin af því hvað fólk haldi og einbeita mér að því að vera ég sjálf. Það hefur gengið nokkuð vel en kona snýr ekki af ævilöngum vana einn, tveir og þrír. Þó að ég sé stolt af því að hafa hætt í dagvinn- unni og stofnað fyrirtæki sem ger- ir góða hluti með því að kenna fólki leiðir til að verða hamingjusamara og heilbrigðara þurfti ekki nema eina spurning með votti af háði: „Er ekki brjálað að gera?“ til að ég færi að velta fyrir mér hvort fólk héldi að ég væri að gera tóma vit- leysu, sjálfstraustið hvarf og sjálfs- gagnrýnin tók yfir. En mér tókst að sansa sjálfa mig aftur með því að minna mig á að tilgangur minn var ekki að hafa brjálað að gera heldur frekar að skapa aðstæður til að eiga gott líf. Auðvitað er gott að hafa háar tekjur en tíminn er sú auðlind sem er dýrmætust og lífið er núna. Þannig að ég er á góðum stað, á mér líf og er sátt en samt dett ég kylliföt í skömmina við og við. Ég veit að ég er ekki ein þar, við erum margar konurnar sem höfum aldrei farið í bikini því við skömmumst okkar fyrir magann, eða syngj- um aldrei innan um fólk því að við getum ekkert sungið eða tökum til máls opinberlega því að við gætum sagt eitthvað vitlaust og orðið okk- ur og fjölskyldunni allri til skamm- ar. Fólk gæti líka haldið að við héld- um að við værum eitthvað! Karlarnir hafa ekki verið eins opnir með þessa hluti til skamms tíma en þeir hafa svo sannarlega pressu á sér. Þeir mega ekki væla, ekki vera kerlingar, þeir þurfa að skaffa vel, ganga vel í skólanum en aldrei nokkurn tímann má sjást að þeir hafi fyrir því, með því að læra heima til dæmis. Karlar verða að vera klárir, þeir geta ekki leyft sér að spyrja ráða, spyrjast til vegar eða biðja um aðstoð. Til að fela óöryggið hið innra setja þeir upp grímur, karlmennskugrímur (sbr. Lewis Howes): grínarinn sem tek- ur aldrei neitt alvarlega, ríki gaur- inn sem á alltaf flottari bíl, síma eða jakkaföt en næsti maður og sá sem finnur stöðugt þörf til að vera setja aðra niður, vera aðalgaurinn. Efstur í goggunarröðinni. Yrði líf okkar allra ekki miklu betra ef við létum af dómum á öðr- um, samanburði við aðra og þessari endalausu óvægnu sjálfsgagnrýni? Má ekki fólk, megum við ekki bara vera eins og við erum? Erum við ekki ágæt? Er það ekki? Steinunn Eva Þórðardóttir. Skömmin lúmska - „Afsakið mig ef mig skyldi kalla“ Sumarmarkaður Sveitamarkaðar- ins Breiðabliki verður haldinn í Breiðabliki í Eyja- og Miklaholts- hreppi, dagana 30. júní - 1. júlí næstkomandi. Markaðurinn verð- ur opinn milli kl. 12:00 og 17:00 báða dagana. Þar verður á boðstólunum heimaunnið handverk og matvör- ur beint frá bændum í Snæfells- og Hnappadalssýslu. Kjötvörur, sultur, prjónavörur, handspunn- ið band, brjóstsykur, salat, egg og heimabakað svo fátt eitt sé nefnt. Vöfflukaffið verður að sjálfsögðu á sínum stað. Vonumst til að sjá sem flesta í sumarskapi, hvernig sem viðrar. -fréttatilkynning Sumarmarkaður á Breiðabliki um helgina Breiðablik í Eyja- og Miklaholtshreppi. Árbók Akurnesinga er komin út og hefur að geyma fjölbreytt efni að vanda. „Sementsverksmiðja rís“ er ítarleg og ríkulega mynd- skreytt grein eftir Kristján Krist- jánsson ritstjóra um aðdraganda og byggingu Sementsverksmiðj- unnar, allt frá fyrstu hugmyndum fram að vígsludeginum 14. júní 1958. Sementsverksmiðjan fagn- ar 60 ára afmæli á þessu ári þeg- ar niðurrif hennar stendur yfir. Ásmundur Ólafsson segir frá Ge- orgshúsi, sem lengi vel var stærsta hús á Akranesi, og rifjar jafnframt upp upphaf knattspyrnuiðkun- ar á Skaga. Í grein Braga Þórðar- sonar um Odd Sveinsson í Brú er birt úrval af fréttaskeytum Odds frá Akranesi sem hann var lands- frægur fyrir á sínum tíma. Krist- ján Gauti Karlsson blaðamaður á Skessuhorni tók meðlimi hljóm- sveitarinnar Tíbrá tali um ferilinn og sveitaballamenn- inguna á gullaldar- árum hljómsveitar- innar. Árbókin hef- ur að geyma þrjá ljósmyndaþætti að þessu sinni: Yfirlit um sýninguna „300 – Brunahanar“ sem Garðar Guðjónsson og Guðni Hannes- son settu upp og ljós- myndir Jónasar H. Ottóssonar og Bjarna Árnasonar. Að venju eru svo birtir annálar frétta og íþrótta sem og æviágrip Akurnes- inga sem jarðsungnir voru frá Akranes- kirkju á síðasta ári. -fréttatilkynning Árbók Akurnesinga 2017

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.