Skessuhorn - 27.06.2018, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 201812
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, segir í
pistli á Facebook-síðu sinni í gær
að forsvarsmenn Hvals hf. hafa
bannað starfsfólki sínu að vera
meðlimir í Verkalýðsfélagi Akra-
ness. „Þegar starfsmenn komu
til fundar með forsvarsmönnum
Hvals í morgun [miðvikudaginn
20. júní; innskot blaðamanns] þá
var þeim tilkynnt að enginn mætti
vera í Verkalýðsfélagi Akraness
heldur yrðu allir að vera í Stétt-
arfélagi Vesturlands þrátt fyrir að
starfsstöð Hvals í Hvalfirði sé á fé-
lagssvæði Verkalýðsfélags Akra-
ness,“ segir Vilhjálmur.
Telur hann þetta vera tilraun
forsvarsmanna Hvals til að refsa
verkalýðsfélaginu fyrir að hafa
höfðað mál gegn Hvali vegna van-
efnda á kjörum starfsmanns sam-
kvæmt ráðningasamningi. Dóm-
ur féll í málinu í hæstarétti síð-
astliðinn fimmtudag. Hæstiréttur
úrskurðaði að Hvalur hf. skyldi
greiða manninum rúmar 500 þús-
und krónur ásamt dráttarvöxt-
um, að því er fram kemur í dómi
Hæstaréttar. „Þessi dómur hef-
ur fordæmisgildi fyrir alla starfs-
menn sem störfuðu á vertíðunum
2013, 2014 og 2015 og því getur
þessi dómur skilað upp undir 300
milljónum ef fordæmisgildið nær
til allra starfsmanna,“ segir Vil-
hjálmur.
Þannig segir Vilhjálmur for-
svarsmenn Hvals reyna að refsa
VLFA með því að meina starfs-
mönnum sínum að vera í félaginu.
„Vegna þess að Verkalýðsfélag
Akraness uppfyllti sínar lagalegu
skyldur við að tryggja og varðveita
réttindi sinna félagsmanna,“ seg-
ir Vilhjálmur og bætir því við að
lögmaður verkalýðsfélagsins hafi
þegar sent forsvarsmönnum Hvals
bréfs þar sem þessum aðgerðum er
harðlega mótmælt. „Er þetta [...]
gróft brot á lögum um stéttarfélög
og vinnudeilur frá árinu 1938 og
andstætt öllum leikreglum á hin-
um almenna vinnumarkaði,“ segir
hann. „Mun Verkalýðsfélag Akra-
ness mæta af fullri hörku því þessi
aðgerð er siðlaus og lítilmann-
leg sem er fólgin í að stilla starfs-
mönnum upp með þeim hætti að
ef þeir hafna ekki að vera í Verka-
lýðsfélagi Akraness munu starfs-
menn jafnvel ekki fá starfið,“ seg-
ir formaður Verkalýðsfélags Akra-
ness.
kgk
Segir Hval banna starfsfólki
að vera í VLFA
Vilhjálmur Birgisson er formaður Verkalýðsfélags Akraness. Ljósm. úr safni/ mm.
Kristján Loftsson, stjórnarfor-
maður Hvals hf., segir ekki rétt
að starfsmönnum í Hvalstöðinni í
Hvalfirði hafi verið meinað að vera
félagar í Verkalýðsfélagi Akraness.
Hann segir Vilhjálm Birgisson,
formann VLFA, fara með rangt
mál. „Við höfum aldrei skikkað
einn eða neinn til þess að vera í
þessu eða hinu stéttarfélaginu,“ er
haft eftir Kristjáni á mbl.is. Jafn-
framt segir hann að Alþýðusam-
band Íslands hafi ekki leitað skýr-
inga hjá fyrirtækinu áður en það
sendi frá sér yfirlýsingu þar sem
sambandið fordæmdi það sem það
kallaði ólögleg afskipti af stétt-
arfélagsaðild og fordæmdi þau.
Furðar Kristján sig á því.
Verkalýðsfélag Akraness og
Stéttarfélag Vesturlands létu ASÍ
vita af því við upphaf vertíðarinn-
ar að forsvarsmenn Hvals hefðu
meinað starfsmönnum í Hvalstöð-
inni að vera félagar í VLFA. Krist-
ján segir þetta ekki rétt, málið snú-
ist um að félögin tvö þurfi að gera
samkomulag um færslu félagsgjald-
anna. Forsvarsmenn fyrirtækjanna
líti svo á að Hval hf. beri að greiða
félagsgjöld allra starfsmanna til
Stéttarfélags Vesturlands, þar sem
samningur þess efnis sé í gildi.
Enginn slíkur samningur er þó
í gildi, að því er fram kemur í yf-
irlýsingu Signýjar Jóhannesdótt-
ur, formanns StéttVest, á heima-
síðu félagsins. Síðasti samningur
sem gerður hafi verið um störfin
í Hvalstöðinni hafi verið samn-
ingur Verkalýðsfélagsins Harðar
og Hvals ehf. árið 1983. Hörður
var eitt þeirra þriggja félaga sem
runnu saman árið 2006 og urðu
að Stéttarfélagi Vesturlands. Gerð
hafi verið tilraun til að semja árið
2009 en það hafi ekki tekist. „Það
eru menn hérna hjá mörgum fleiri
stéttarfélögum en bara þarna á
Akranesi og þeir snúa sér bara til
Stéttarfélags Vesturlands til að fá
þessi félagsgjöld flutt á milli. En
stéttarfélögin verða að gera með
sér samkomulag,“ segir Kristján í
samtali við mbl.is og vísar til þess
að lög ASÍ séu æðri lögum ein-
stakra aðildarfélaga og að félög
þurfi að gera með sér samning ef
starfssvæði þeirra skarast.
kgk
Segir formann VLFA
fara með rangt mál
Kristján Loftsson. Ljósm. úr safni.
„Alþýðusamband Íslands fordæm-
ir ólögleg afskipti forstjóra Hvals
hf. af stéttarfélagsaðild starfsmanna
sinna,“ segir Gylfi Arnbjörnsson,
forseti Alþýðusambands Íslands.
Yfirlýsing sambandsins er til kom-
in af deilum Verkalýðsfélags Akra-
ness við Hval hf. Vilhjálmur Birgis-
son, formaður VLFA, segir frá því á
öðrum stað í Skessuhorni að starfs-
mönnum Hvals hafi við upphaf ver-
tíðar verið meinað að vera félagar í
VLFA. „Nú við upphaf hvalvertíð-
ar berast ASÍ þær upplýsingar frá
Verkalýðsfélagi Akraness og Stétt-
arfélagi Vesturlands að forstjóri
Hvals hf. krefjist þess af starfs-
mönnum sínum að þeir eigi ekki
aðild að Verkalýðsfélagi Akraness
vegna starfa sinna hjá Hval hf. á yf-
irstandandi vertíð,“ segir formaður
ASÍ og bætir því við að í því felist
skýrt brog á lögum um stéttarfélög
og vinnudeilur. „Er atvinnurekend-
um óheimilt að hafa áhrif á félags-
aðild og stjórnmálaskoðanir starfs-
manna sinna. Þegar haft er í huga
að Hvalur hf. tapaði nýlega dóms-
máli fyrir Hæstarétti sem Verka-
lýðsfélag Akraness rak fyrir félags-
mann sinn, blasir við að um grófa
og alvarlega hefndarráðstöfun at-
vinnurekanda er að ræða gagn-
vart tilteknu stéttarfélagi og félags-
mönnum þess,“ segir Gylfi.
Hann segir að bæði VLFA og
StéttVest hafi í gildi kjarasamn-
ing um störf starfsmanna Hvals,
sem gerður var sameiginlega und-
ir merkjum Starfsgreinasambands
Íslands við Samtök atvinnulífs-
ins og Hvalur hf. sé bundinn af
þeim samningi. „Því hafa starfs-
menn fullt frelsi til að velja hvoru
félaginu þeir kjósa að eiga aðild að.
Kjósi þeir að skipta um félag eftir
að frá ráðningu hefur verið gengið
er þeim það fullkomlega heimilt og
öll afskipti atvinnurekanda af slík-
um breytingum er bönnuð,“ segir
Gylfi. „Alþýðusamband Íslands for-
dæmir afskipti forstjóra Hvals hf. af
stéttarfélagsaðild starfsmanna sinna
og krefst þess að fyrirtækið láti af
þeim nú þegar.“
kgk
„Ólögleg afskipti af
stéttarfélagsaðild“
- segir forseti ASÍ
Langreyður dregin að landi í Hval-
stöðinni í Hvalfirði. Ljósm. úr safni.
„Forsvarsmanni Hvals hefur ver-
ið bent á að hann megi ekki sam-
kvæmt lögum reyna að hafa áhrif á
stéttarfélagsaðild starfsmanna, hvað
þá meina þeim um að velja félag sem
hefur gildan kjarasamning í viðkom-
andi starfsgrein og starfar á félags-
svæðinu,“ segir Signý Jóhannes-
dóttir, formaður Stéttarfélags Vest-
urlands, í tilkynningu á heimasíðu
félagsins. Að öðru leyti segir hún að
félagið hafi ekki haft afskipti af deil-
um formanns Verkalýðsfélags Akra-
ness og forsvarsmanns Hvals.
Samkvæmt lögum þurfa stétt-
arfélög að ná yfir heilt sveitarfélag
en fyrir kemur að starfssvæði þeirra
skarist. Getur það gerst við sam-
einingu sveitarfélaga, sameiningu
stéttarfélaga eða þegar stéttarfélög
breyta reglum sínum til að stækka
starfssvæði sitt. Þannig vill það til að
starfssvæði StéttVest og VLFA skar-
ast og ná bæði yfir Hvalfjarðarsveit.
Þegar svo ber undir ber stéttarfélög-
um að gera samstarfssamning, skv.
lögum ASÍ. Enginn slíkur samning-
ur er þó í gildi, að því er fram kemur í
tilkynningu Signýjar. „Síðasti samn-
ingur [Verkalýðsfélagsins] Harðar
og Hvals var gerður árið 1983 að því
er ég kemst næst,“ segir hún. Hörð-
ur sameinaðist síðan tveimur öðrum
félögum í Stéttarfélag Vesturlands
árið 2006. Hún segir að Stéttarfélag
Vesturlands hafi reynt að semja við
Hval vegna starfa í hvalstöðinni
árið 2009 en það hafi ekki gengið
eftir. „Sem formaður Stéttarfélags
Vesturlands hef ég sagt bæði for-
svarsmanni Hvals og starfsmönn-
um Hvals sem haft hafa samband
við félagið að meðan ekki er gerð-
ur sérstakur samningur við annað
hvort félagið um störfin í hvalstöð-
inni, geta verkamenn þar valið milli
félaganna, þ.e. bæði félögin eru aðil-
ar að almennum samningum verka-
fólks við SA,“ segir Signý.
Geta valið milli
stéttarfélaga
- segir formaður Stéttarfélags Vesturlands
Signý Jóhannesdóttir, formaður StéttVest, í ræðustól. Ljósm. úr safni.