Skessuhorn - 27.06.2018, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 201814
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Al-
þýðusambands Íslansd, tilkynnti á
miðstjórnarfundi sambandsins sl.
miðvikudag að hann hyggðist ekki
bjóða sig fram til endurkjörs á þingi
ASÍ í október. Gylfi hefur ver-
ið forseti ASÍ undanfarinn áratug.
Hann var fyrst kjörinn í október
2008 og hefur fjórum sinnum ver-
ið endurkjörinn. Þar áður var hann
framkvæmdastjóri ASÍ, frá 2001 en
hann kom fyrst til starfa hjá verka-
lýðshreyfingunni 1989 sem hag-
fræðingur ASÍ hjá kjararannsókn-
arnefnd. Gylfi segir að það hafi ekki
verið einföld ákvörðun að stíga til
hliðar, en hann telji hana engu að
síður rétta. „Ég tók við sem for-
seti ASÍ þremur vikum eftir hrun
og það var gríðarleg áskorun sem
beið okkar sem vorum í forystu á
vinnumarkaðinum á þeim tíma. Nú
tíu árum síðar erum við komin fyrir
vind og vel það. Kaupmáttaraukn-
ingin á síðustu þremur árum er sú
mesta í Íslandssögunni, atvinnu-
leysi er lítið, verðbólga lág og vext-
ir í sögulegu lágmarki, þótt enn séu
þeir alltof háir. Allir þessir þættir
skipta launafólk miklu máli,“ seg-
ir Gylfi.
Hann segir deilur innan verka-
lýðshreyfingarinnar hafa harðnað
undanfarið og tekist sé á um leið-
ir í kjarabaráttunni. „Í þeim deil-
um virðist því miður sem persóna
mín, í stað skoðana minna, sé orð-
in aðalatriði og þá á kostnað mál-
efnalegrar umræðu. Alþýðusam-
bandið er meira en 100 ára gamalt
og gríðarlega mikilvægt í allri rétt-
inda- og kjarabaráttu launafólks
á Íslandi. ASÍ er mun stærra en
nokkur einstaklingur, en ég viður-
kenni að það er erfitt og lýjandi að
eiga í átökum við félaga sína. Ég hef
ávallt verið reiðubúinn til að berjast
með félögum mínum og fyrir þá, en
að berjast við þá gefur mér ekkert
og skilar heldur engu fyrir hreyf-
inguna,“ segir hann.
Gylfi kveðst sannfærður um að
sýn sem forysta ASÍ og aðildar-
félaga hefur haft að leiðarljósi síð-
ustu áratugi hafi skilað miklum ár-
angri. Vonast hann til að áhersla
verði áfram lögð á að tryggja stöð-
ugleika og langtímaárangur í kjara-
baráttu. „Ef brotthvarf mitt getur
orðið til þess að auka líkurnar á að
áfram verði haldið á svipuðum nót-
um ber mér að íhuga stöðu mína og
hlutverk. Það hef ég nú gert og nið-
urstaða mín er sú að ég mun ekki
gefa kost á mér sem forseti ASÍ á
þinginu okkar í haust. Ég tek þessa
ákvörðun í þakklæti og auðmýkt
fyrir að hafa fengið að starfa fyrir
íslenska verkalýðshreyfingu allan
minn starfsferil. Ég vona sannar-
lega að hreyfingin nái vopnum sín-
um og sameinist í störfum sínum
fyrir launafólk á Íslandi í komandi
kjarasamningum. Verkalýðshreyf-
ingin er nefnilega svo miklu öflugri
þegar allir róa í sömu átt,“ segir
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
kgk
Gylfi hættir sem forseti ASÍ
Gylfi Arnbjörnsson í ræðustól. Ljósm. ASÍ.
Skessuhorn greindi frá því fyrr í
mánuðinum þegar Grettir BA, skip
Þörungaverksmiðjunnar á Reyk-
hólum, strandaði á grynningum
skammt frá Stykkishólmi. Greint
var frá því að ástæða strandsins hafi
verið sú að grynningarnar hafi ver-
ið ranglega merktar inn á sjókort
sem siglt var eftir.
Ásgeir Erlendsson, upplýsinga-
fulltrúi Landhelgisgæslunnar, hafði
samband við Skessuhorn í gær
vegna þessa. Hann segir að svo
virðist sem skipstjóri Grettis hafi
ekki notað opinbert sjókort, sem
sýni umrætt sker. „Landhelgisgæsla
Íslands ber ábyrgð á útgáfu opin-
berra sjókorta. Þau eru gefin út á
tvennu formi, sem prentuð sjókort
auk þess að vera gefin út rafræn.
Leiðréttingar á pappírssjókortum
eru birtar í tilkynningum til sjófar-
enda og eru þær aðgengilegar á vef
Landhelgisgæslunnar,“ segir Ás-
geir. „Það er á ábyrgð og í höndum
skipstjórnarmann að uppfæra þau
sjókort sem notuð eru hverju sinni.
Það er gert annars vegar með því að
leiðrétta þau samkvæmt tilkynning-
um til sjófarenda, eða að vera með
áskrift að rafrænum uppfærslum, sé
um opinber rafræn kort að ræða,“
segir hann. „Opinber sjókort sýna
umrætt sker. Í þessu tilfelli var gef-
in út leiðrétting af umræddu svæði
í byrjun febrúar á þessu ári,“ segir
Ásgeir.
kgk
„Virðist ekki hafa
notað opinbert sjókort“
Frá strandinu. Á myndinni má sjá Gretti BA og sjómælingaskipið Baldur. Ljósm. úr
safni/ Haukur Páll.
Hvanneyrarhátíðin verður haldin
hátíðleg í fimmta sinn á Hvann-
eyri í Borgarfirði laugardaginn 7.
júlí og verður margt í boði fyr-
ir gesti. „Undirbúningur geng-
ur vel og allt er á réttu róli,“ segja
skipuleggjendur hátíðarinnar,
þær Ragnhildur Helga Jónsdótt-
ir, safnstjóri Landbúnaðarsafns Ís-
lands, og Álfheiður Sverrisdótt-
ir, verkefnastjóri hjá Landbún-
aðarháskóla Íslands. „Það verður
nóg í boði fyrir gesti eins og síð-
ustu ár. Það er til dæmis verið að
setja upp tvær sýningar sem opna á
hátíðardegi. Annars vegar sýning-
in „Konur í landbúnaði í 100 ár“
sem Landbúnaðarsafnið, Land-
búnaðarháskóli Íslands og Kven-
félagið 19. júní standa fyrir og
annars vegar 100 ára afmæli drátt-
arvélarinnar sem Landbúnaðar-
safnið stendur fyrir í samstarfi við
Ferguson félagið. Þarna liggur
heljarinnar vinna á bak við,“ seg-
ir Ragnhildur. „Báðar sýningarn-
ar verða opnaðar 7. júlí. Sýningin
Konur í landbúnaði í 100 ár verð-
ur opin eitthvað frameftir sumr-
inu en dráttarvélasýningin verður
bara eins dags viðburður,“ bætir
Álfheiður við.
Fullt í boði fyrir gesti
Auk sýninganna mun Hvanneyr-
ingurinn Reynir Hauksson spila
Flamenco tónlist í Hvanneyrar-
kirkju. Bjarni Guðmundsson mun
kynna bók sína Íslenskir heyskap-
arhættir og er hátíðardagurinn
jafnframt útgáfudagur bókarinn-
ar. „Bækurnar hans Bjarna eru al-
gjört þrekvirki og því stórviðburð-
ur og vert að vekja athygli á,“ segir
Ragnhildur.
Ásamt Bjarna mun Guðrún
Bjarnadóttir og Jóhann Óli Hilm-
arsson kynna bók sína, Grasnytj-
ar á Íslandi, en þess má geta að
Bjarni teiknaði hluta af mynd-
unum í bókinni hennar Guðrún-
ar og því er þetta allt saman mjög
nátengt héraðinu. Fleiri viðburð-
ir verða í boði: Laufey ísgerð frá
Brekkukoti mun kynna ísinn sinn,
markaður verður í gamla leikfimi-
salnum, leiðsögn um Yndisgarða,
Eigenda- og ræktendafélag land-
námshænsna verður með sýningu
og frí andlitsmálun verður í boði
fyrir börnin. Gestum gefst einnig
kostur á að ferðast um á heyvagni
sem vakti mikla lukku gesta í fyrra.
Að auki verður frítt í Landbúnað-
arsafnið og Ullarselið verður opið.
Þetta ásamt mörgu fleiru verður í
boði og getur fólk nálgast dagskrá
hátíðarinnar á Facebook undir
Hvanneyrarhátíð.
Brottfluttir Borgfirð-
ingar koma aftur heim
Skipuleggjendur hátíðarinnar hafa
ávallt gert mikið úr því að reyna að
hafa allt sem í boði er á hátíðinni
úr heimabyggð og hátíðin í ár er
engin undantekning. „Við reyn-
um sem mest að hafa allt heima-
fengið en ekki keypta skemmtun
utan héraðsins. Einn af punktun-
um er maður er manns gaman og
leggjum við mikla áherslu á það
hér,“ segja Ragnhildur og Álfheið-
ur. „Þetta er hátíð þar sem marg-
ir brottfluttir úr Borgarfirði koma
aftur heim og nýta sér þennan dag
til að hitta marga á stuttum tíma
og endurnýja tengslin.“ Ásamt
Borgfirðingum þá er töluvert um
að fólk sem dvelur í sumarbú-
stöðum á svæðinu kíki á hátíðina
og sömuleiðis fólk að sunnan sem
hefur heyrt af hátíðinni og tekur
sér sveitarúnt frá höfuðborginni.
„Við hvetjum alla til þess að mæta
og njóta með okkur,“ segir Ragn-
hildur að lokum.
Hvanneyrarhátíðin verður eins
og fram kemur laugardaginn 7.
júlí og fer dagskráin fram milli kl.
13:30 og 17:00.
glh
Þétt dagskrá á Hvanneyrarhátíð
Ragnhildur Helga og Álfheiður sjá um að skipuleggja hátíðina ásamt fleirum.
Í fyrra fór fram leiðsögn um gömlu torfuna með Sveini Hallgrímssyni. Ljósm. kgk.