Skessuhorn - 27.06.2018, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 201818
Linda Björk Pálsdóttir hefur verið
ráðin sveitarstjóri Hvalfjarðarsveit-
ar og tekur við starfinu um næstu
mánaðamót. Linda er fædd og upp-
alin á Akranesi en flutti í Borgar-
fjörðinn árið 1994 þegar hún hóf
nám í rekstarfræði við Samvinnu-
skólann á Bifröst og Karvel L. Karv-
elsson, eiginmaður hennar, hóf nám
á Hvanneyri. Að námi loknu fluttu
þau ásamt tveimur börnum sínum
að Hýrumel í gömlu Hálsasveit
árið 1999 og Linda tók til starfa
á skrifstofu Borgarfjarðarsveit-
ar. Árið 2003 var Linda ráðin sem
sveitarstjóri og gegndi því starfi allt
þar til sveitarfélagið sameinaðist
Borgarbyggð árið 2006. Linda varð
þá fjármálastjóri Borgarbyggð-
ar til ársins 2011. Þá breyttust að-
stæður þeirra hjóna og þau fluttu
til Akraness og Linda tók til starfa
hjá Landsbankanum. Á síðasta ári
sá hún auglýst laust starf skrifstofu-
stjóra hjá Hvalfjarðarsveit og sótti
um og tók þar til starfa í júlí fyr-
ir rétt um ári. Blaðamaður Skessu-
horns settist niður með Lindu fyrir
helgina og ræddi við hana um ráðn-
ingu hennar í stöðu sveitarstjóra og
það sem framundan er í Hvalfjarð-
arsveit.
Er vel tengd
Hvalfjarðarsveit
„Það kom mér skemmtilega á óvart
að verða boðin staða sveitarstjóra.
Ég þurfti þó ekki langan tíma til
að hugsa mig um, enda hef ég áður
verið sveitarstjóri og vissi hverju ég
mætti búast við,“ segir Linda og
bætir því við að sér þyki mjög vænt
um að vera treyst fyrir þessu starfi.
„Hvalfjarðarsveit er mér einstak-
lega kær og ég þekki sveitina nokk-
uð vel og er vel tengd. Þó ég hafi
alist upp í öðru sveitarfélagi þá er
Hvalfjarðarsveit svona sveitin okk-
ar Akurnesinga og hér hef ég tölu-
vert mikið verið. Amma mín og afi
áttu bústað í Ölveri þar sem ég var
mikið og núna búa foreldrar mínir
þar í húsinu sem við hjónin byggð-
um okkur á Hýrumel, en það var
flutt í Ölver. Dóttir mín býr líka
hér í Hvalfjarðarsveit með tveim-
ur börnum.
Brýnt að tryggja
öllum faglega og
góða þjónustu
„Ég hef verið svo heppin að hafa
unnið hér sem skrifstofustjóri í næst-
um ár og er því vel að mér í flestum
málum sveitarfélagsins. Auk þess
sem það hefur gefið mér kost á að
kynnast íbúunum og öllu því góða
starfsfólki sem hér er,“ segir Linda.
Aðspurð segir Linda að eitt brýn-
asta verkefnið sé að standa vörð um
faglega og góða þjónustu við íbúa
sveitarfélagsins og hlúa að því öfl-
uga og metnaðarfulla skólastarfi
sem til staðar er. Jafnframt þurfi að
vera í góðu samstarfi við atvinnulíf-
ið á svæðinu, hvort sem er landbún-
að, ferðaþjónustu eða iðnað. Hvað
varðar áherslur í framkvæmdum
eða vatnsmálum segist Linda lítið
geta sagt til um hvað sé nákvæm-
lega framundan í þeim málum þar
sem það sé fyrst og fremst í hönd-
um sveitarstjórnar að marka stefnu
til framtíðar hvað þau mál varðar.
„Mitt verkefni er síðan að fram-
fylgja og vinna með sveitarstjórn að
þeim málefnum sem hún ákveður,“
segir Linda.
Mikil uppbygging í
Hvalfjarðarsveit
„Hvalfjarðarsveit er öflug sveit og
samfélagið hér sterkt og gott. Við
búum einstaklega vel hvað varð-
ar staðsetningu en við erum rétt
utan við höfuðborgina og stutt í
alla helstu þjónustu. Hér höfum við
öflugt iðnaðarsvæði og bæði ferða-
þjónusta og landbúnaður blómstra
og möguleikarnir til frekari upp-
byggingar eru miklir. Fjárhagsstaða
sveitarfélagsins er líka góð þrátt
fyrir að undanfarin ár hafi sveitar-
félagið ráðist í nokkuð stórar fram-
kvæmdir eins og byggingu skóla og
stjórnsýsluhúss og lagningu ljós-
leiðara,“ segir Linda og bætir því
við að framundan sé talsverð upp-
bygging. „Við gerum ráð fyrir að
íbúum komi til með að fjölga á
næstu árum. Undanfarið hafa lóðir
í Krosslandi selst vel og húsum þar
fari fjölgandi auk þess sem áhugi sé
fyrir lóðum í Melahverfi en þar eig-
um við til úthlutunar nú þegar níu
lóðir undir einbýlis- eða parhús og
hvet ég áhugasama til að kynna sér
þær,“ segir hún.
Vill vinna með íbúum
En hvernig manneskja er Linda?
„Ég myndi segja að ég væri jarð-
bundin, jákvæð, hreinskilin og
bjartsýn með ríka réttlætiskennd.
Ég er líka raunsæ og veit hvar mín
takmörk liggja og er tilbúin að leita
eftir aðstoð og vinna með fólki,
hlusta á það sem aðrir hafa að segja
og læra af þeirra verkum. Ég legg
mikið upp úr góðum samskiptum
og að tengjast fólki,“ svarar Linda.
Sem sveitarstjóri segist hún fyrst og
fremst ætla að láta verkin tala og að
vinna að hagsmunum heildarinn-
ar með fagmennsku og jafnræðis-
sjónarmið að leiðarljósi. „Sveitar-
stjórar eiga að vinna fyrir íbúana og
ég mun leggja upp úr því að vera í
góðu sambandi við alla íbúa í Hval-
fjarðarsveit. Ég vil vera sveitarstjóri
sem fólk þekkir, treystir og get-
ur leitað til. Ég geri mér þó fulla
grein fyrir að það er ómögulegt fyr-
ir mig að gera alla ánægða alltaf en
ég mun þó leggja mig fram við að
gera alla eins ánægða og mögulegt
er. Til að ná því markmiði þarf að
hlusta á íbúa, kynna sér ólík sjón-
armið, vera óhrædd við að leita að-
stoðar en fyrst og fremst að vera
mannleg og gera alltaf mitt besta,“
segir Linda að endingu.
arg
Kom skemmtilega á óvart að vera boðið starf sveitarstjóra
Rætt við Lindu Björk Pálsdóttur nýráðinn sveitarstjóra í Hvalfjarðarsveit
Linda Björk Pálsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar.
Dagana 13. - 15. júní síðastlið-
inn kom saman föngulegur hópur
kvenna sem útskrifaðist fyrir rétt-
um fimmtíu árum frá Húsmæðra-
skólanum á Varmalandi. Skól-
inn var á sinni tíð vinsæll og hann
sóttu konur víða af landinu. Fjór-
ir af kennurum skólans slógust í
hópinn þannig að hópur kvenna
taldi 30 en 50 með mökum. Kenn-
arar voru þær Rósa Finnsdóttir,
Katrín Hjálmarsdóttir, Snjólaug
Guðmundsdóttir og Elín Magnús-
dóttir. Steinunn Ingimundardótt-
ir sem var skólastjóri fyrir fimm-
tíu árum er látin. Hópurinn kom
saman á fimmtudeginum á heim-
ili Svövu Kristjánsdóttur og Pét-
urs Jónssonar á Hvanneyri og var
boðið upp á súpu og brauð. Gist
var á Hótel Sól á Hvanneyri.
Á fimmtudeginum var farin
skoðunarferð um héraðið. Með-
al annars var farið á Landbúnað-
arsafnið og í Ullarselið á Hvann-
eyri. Síðan var farið í Krauma við
Deildartunguhver þar sem hóp-
urinn snæddi saman. Því næst lá
leiðin á Húsafell og í kirkjunni
sagði Kristján Guðmundsson frá
sögu staðarins. Komið var við í
gamla skólahúsinu á Varmalandi,
en miklar framkvæmdir hafa stað-
ið yfir á húsinu síðustu ár og unn-
ið við að breyta því í hótel. Fram-
kvæmdir liggja hins vegar niðri nú
um stundir og hefur hótelið ekki
enn verið opnað. Hátíðarkvöld-
verður var í sal Landbúnaðarhá-
skóla Íslands á Hvanneyri og ýmis
skemmtiatriði flutt.
mm
Fimmtíu ára
útskriftarafmæli
Varmalandsmeyja
Fimmtíu ára stúlkur af skólanum ásamt fjórum kennurum sínum.
Alls mættu 50 manns í afmælið.