Skessuhorn - 27.06.2018, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018 19
Kl. 13:00 Karl Aspelund heldur fyrirlestur um Sigurð málara í Eldfjallasafninu.
„Málarinn, búningarnir og byltingin“.
Kl. 14:00 Gestum í þjóðbúning boðið í kaffi og pönnukökur í stofum Norska hússins.
Kl. 14:00 - 17:00 Heimilisiðnaðarfélag Íslands kynnir starfsemi sína í Norska húsinu.
Kl. 16:00 Spilmenn Ríkínís. Tónleikar í Gömlu kirkjunni.
Allir hjartanlega velkomnir og aðgangur ókeypis.
Skotthúfan 2018
Þjóðbúningadagur Norska hússins - BSH 30. júní 2018
Umboð og þjónusta
Ryksugar og
skúrar á
sama tíma
Verð
29.865 kr.
Auðveldaðu
hreingerninguna
Gólfþvottavél fyrir
heimili
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akra-
nesi er lýðræðislegasti framhaldsskóli
landsins, samkvæmt niðurstöðum
Skuggakosninganna sem fram fóru
12. apríl síðastliðinn. Skuggakosn-
ingarnar voru haldnar í tengslum við
sveitarstjórnarkosningarnar í vor og
eru hápunktur lýðræðisherferðiar-
innar Ég kýs. Herferðin er samstarfs-
verkefni Sambands íslenskra sveit-
arfélaga og Landssambands ung-
mennafélaga.
Lagt er upp með að kosningarn-
ar séu sem líkastar almennum kosn-
ingum, með kjörkössum, kjörseðlum
og kjörskrá. Þá eru skólarnir hvattir
til að standa fyrir lýðræðislegum við-
burðum dagana fyrir kosningar.
Að þessu sinni var efnt til keppni
um lýðræðislegasta framahaldsskól-
ann. Voru það nemendur í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands sem báru
sigur úr býtum, þar sem kjörsókn
var 74,92% í skuggakosningun-
um. Guðjón Snær Magnússon, for-
maður Nemendafélags Fjölbrauta-
skóla Vesturlands, þakkar það góðri
skipulagningu nemenda með stuðn-
ingi kennara skólans. „Það var mikil
stemning í skólanum og nemenda-
hópurinn sem stóð að framkvæmd-
inni tók þetta alla leið,“ segir hann.
„Við smíðuðum kjörklefa og gengum
í stofur með gjallarhorn til að hvetja
fólk til að kjósa. Einnig voru kenn-
arar duglegir að hleypa nemendum
úr tímum til að fara á kjörstað. Ég tel
skuggakosningarnar afar mikilvægan
lið í því að auka lýðræðisvitund ungs
fólks og verkefnið ýta undir það að
nemendur taki upplýsta ákvörðun
sem aftur vonandi skilar þeim á kjör-
stað í almennum kosningum,“ segir
Guðjón Snær. kgk
FVA er lýðræðislegasti
framhaldsskólinn
Guðjón Snær Magnússon, formaður NFFA, tekur við viðurkenningu úr hendi Snæþórs
Bjarka Jónssonar, margmiðlunarstjóra SÍS. Ljósm. Ég kýs.