Skessuhorn - 27.06.2018, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2018 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Skagakonur máttu játa sig sigrað-
ar fyrir Fylki, 4-1, í sjöttu umferð 1.
deildar kvenna í knattspyrnu á laug-
ardag. Leikið var á Fylkisvelli í Ár-
bænum í Reykjavík.
Heimaliðið kom mjög ákveðið til
leiks og náði forystunni strax á 6.
mínútu þegar Marija Radojicic skor-
aði. Skagkonur komust betur inn í
leikinn eftir því sem leið á en Fylkis-
liðið var áfram sterkara og líklegra til
að bæta við. Sú varð einmitt raunin á
30. mínútu þegar Kristín Þóra Birg-
isdóttir kom Fylki í 2-0. En að þessu
sinni náðu Skagakonur að svara strax
þegar Bergdís Fanney Einarsdótt-
ir minnkaði muninn skömmu síðar
eftir góðan undirbúning Marenar
Leósdóttur.
Fylkiskonur gerðu síðan út um
leikinn með afar góðum kafla á loka-
mínútum fyrri hálfleiks. Kristín Þóra
skoraði annað mark sitt á 40. mínútu
og Hanna María Jóhannsdóttir kom
Fylki í 4-1 á 42. mínútu.
Töluvert meira jafnræði var með
liðunum í síðari hálfleik en í þeim
fyrri. Skagakonur gerðu hvað þær
gátu og náðu að skapa sér ágætis
marktækifæri en tókst ekki að gera
sér mat úr þeim. Fylkiskonur áttu
sömuleiðis nokkrar álitlegar sóknir
en náðu ekki að bæta við marki. Þeim
lá þó ekkert á að bæta við heldur ein-
beittu sér að því að halda fengnum
hlut, enda höfðu þær komið sér í afar
góða stöðu í fyrri hálfleik. Leikurinn
fjaraði hægt og rólega út og lauk
með öruggum sigri Fylkis, 4-1.
ÍA er eftir leikinn í fimmta sæti
deildarinnar með níu stig, tveimur
stigum á eftir næstu liðum fyrir ofan.
Næst leika Skagakonur gegn Sindra
á laugardaginn, 30. júní næstkom-
andi. Sá leikur fer fram á Akranesi.
kgk
Víkingur Ó. gerði góða ferð norð-
ur til Akureyrar í gær þar sem liðið
sigraði Þór með tveimur mörkum
gegn engu í 1. deild karla í knatt-
spyrnu. Sólskin og gola var norð-
an heiða á leikdegi og aðstæður til
knattspyrnuiðkunar góðar.
Jafnræði var með liðunum og
leikurinn fjörugur framan af fyrri
hálfleik. Heimamenn voru meira
með boltann en Ólafsvíkingar
lágu til baka og beittu skyndisókn-
um. Bæði lið sýndu ágæta takta í
fyrri hálfleik, án þess þó að ná að
skapa sér afgerandi marktækifæri.
Umdeilt atvik átti sér stað á 35.
mínútu. Langur bolti var sendur
inn fyrir á Gonzalo Zamorano sem
var sloppinn einn í gegn og kom-
inn inn í vítateiginn. Óskar Elías
Óskarsson virtist brjóta á honum
en dómari leiksins dæmdi ekkert.
Ólafsvíkingar voru mjög ósáttir
og heimamenn virtust þarna hafa
sloppið með skrekkinn. Ekkert
mark var skorað í fyrri hálfleik og
staðan því 0-0 í hléinu.
Leikmenn Víkings Ó. mættu
ákveðnir til síðari hálfleiks og tóku
yfir leikinn. Þeir voru mun sterk-
ari en tókst reyndar ekki að brjóta
ísinn fyrr en á 77. mínútu. Þá átti
Gonzalo frábæra sendingu inn
fyrir vörn heimamanna á Kwame
Quee sem lagði boltann snyrtilega
í markið.
Ólafsvíkingar létu kné fylgja
kviði því þeir bættu öðru marki
við aðeins tveimur mínútum síðar.
Ingibergur Kort Sigurðsson átti þá
glæsilegt skot rétt utan vítateigs
sem hafnaði uppi í markvinkl-
inum. Algerlega óverjandi fyrir
markvörðinn og Víkingsliðið búið
að gera út um leikinn, 2-0.
Víkingur Ó. situr í þriðja sæti
deildairnnar með 16 stig eftir átta
leiki, tveimur stigum á eftir HK
og tveimur á undan Þór. Næsti
leikur Víkings er Vesturlandsslag-
ur á móti ÍA, föstudaginn 29. júní
næstkomandi.
kgk
ÍA vann stórsigur á Magna, 5-0,
þegar liðin mættust í 1. deild karla
í knattspyrnu síðastliðinn mið-
vikudag.
Aðstæður til knattspyrnuiðkun-
ar voru með besta móti á Akranesi
þegar liðin áttust við, örlítil gola,
sólskin og hlýtt í veðri.
Skagamenn höfðu yfirburði í
leiknum og komust yfir strax á 16.
mínútu þegar Albert Hafsteinsson
skoraði eftir sendingu frá Herði
Inga Gunnarssyni. Aðeins þrem-
ur mínútum síðar skoraði ÍA aft-
ur. Albert vippaði þá boltanum
inn fyrir á Bjarka Stein Bjarkason
sem fór framhjá markverðinum og
skoraði.
ÍA réði lögum og lofum á vell-
inum út fyrri hálfleikinn og bættu
þriðja markinu við á 43. mínútu.
Steinar Þorsteinsson fékk boltann
í skyndisókn, fór framhjá varnar-
mönnum Magna og skoraði með
þéttingsföstu skoti í fjærhornið.
Staðan í hálfleik 3-0.
Skagamenn slökuðu aðeins á í
seinni hálfleik en voru áfram sterk-
ara lið vallarins. Á 72. mínútu átti
Steinar skot sem fór í hönd varn-
armanns og vítaspyrna var dæmd.
Þórður Þorsteinn Þórðarson fór á
punktinn og skoraði af miklu ör-
yggi. Fjórum mínútum síðar inn-
sigluðu Skagamenn síðan 5-0 stór-
sigur sinn. Steinar átti sendingu
inn fyrir vörnina á Albert sem lék
á varnarmann og kláraði færið með
skoti yfir markvörðinn, sem var
lagstur í grasið.
ÍA trónir á toppi deildarinnar
með 20 stig eftir átta leiki, tveimur
stigum á undan HK í sætinu fyrir
neðan. Næsti deildarleikur Skaga-
manna er Vesturlandsslagur gegn
Víkingi í Ólafsvík föstudaginn 29.
júní næstkomandi.
kgk
Skagamenn burstuðu Magna
Albert Hafsteinsson var besti maður vallarins, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt.
Ljósm. gbh.
ÍA lá gegn Fylki
Bergdís Fanney Einarsdóttir skoraði eina mark ÍA gegn Fylki.
Ljósm. úr safni/ gbh.
Tóku öll völd á vellinum
í síðari hálfleik
Sigurinn á Þór var þriðji sigur Víkings Ó. í röð. Ljósm. úr safni/ af.
Sigur í miklum
markaleik
FÓTBOLTI: Skallagrímur tók á móti
Hvíta riddaranum í 4. deild karla á laug-
ardag. Leikurinn var mikill markaleikur
sem endaði með sigri Borgnesinga, 4-3.
Gestirnir byrjuðu betur og komust yfir
strax á 6. mínútu með marki Jóhanns
Andra Kristjánssonar. Þeir bættu síðan
við á 29. mínútu þegar Ísak Máni Frið-
riksson skoraði. Skallagrímur náði hins
vegar að jafna áður en fyrri hálfleikur
var úti. Marteinn Theodórsson minnkaði
muninn á 42. mínútu og tveimur mín-
útum síðar skoraði Guillermo Gonza-
lez Lamarca. Staðan því 2-2 í hálfleik.
Skallagrímsmenn komust síðan yfir á
58. mínútu með marki frá Declan Joseph
Redmond en Gunnar Már Magnússon
jafnaði tíu mínútum síðar úr vítaspyrnu.
Það var síðan Arnór Jónsson sem tryggði
Skallagrími sigur með marki á 78. mín-
útu, 4-3. Skallagrímur háir harða topp-
baráttu í B riðli. Liðið hefur 12 stig í öðru
sæti, jafn mörg stig og topplið Reynis
S. og Elliði í þriðja sæti. Skallagrímur
og Reynir S. mætast í toppslag riðilsins
í Sandgerði á morgun, fimmtudaginn
28. júní.
-kgk
Mykolas skor-
aði öll fjögur
FÓTBOLTI: Snæfell/UDN vann stór-
sigur á KFR þegar liðin mættust í 4.
deild karla á laugardaginn. Leikið var
á Stykkishólmsvelli og lokatölur urðu
4-0 sigur heimamanna þar sem Myko-
las Krasnovskis gerði sér lítið fyrir og
skoraði öll fjögur mörk liðsins. Snæfell/
UDN af krafti og var komið í 3-0 á inn-
an við 20. mínútum. Fyrsta mark leiks-
ins skoraði Mykolas á 11. mínútu og á
þeirri 18. hafði hann bætt tveimur við.
Snæfell/UDN komið í 3-0. Þannig var
staðan í hálfleik og lengst fram af leikn-
um. Mykolas innsiglaði svo 4-0 sigur
heimamanna með fjórða marki sínu á
89. mínútu. Snæfell situr í þriðja sæti A
riðils með níu stig, með jafn mörg stig
og Berserkir í sætinu fyrir neðan. Þessi
tvö lið mætast á morgun, fimmtudag-
inn, 28. júní. Leikið verður á Víkingsvelli
í Reykjavík. -kgk
Tap á Egils-
stöðum
FÓTBOLTI: Kári mátti sætta sig við 4-1
tap gegn Hetti á Egilsstöðum þegar
liðin mættust í 2. deild karla á laugar-
dag. Jafnræði var með liðunum þar til
á lokamínútum fyrri hálfleiks. Þá áttu
Káramenn slæman kafla. Heimamenn
komust yfir með marki Ignacio Gonzalez
Martinez og staðan 1-0 í hálfleik. Brynj-
ar Árnason bætti öðru marki Hattar við
strax eftir hléið, á 48. mínútu en Andri
Júlíusson minnkaði muninn úr víta-
spyrnu á 60. mínútu. Stuttu síðar áttu
heimamenn góðan leikkafla þar sem
þeir skoruðu tvö mörk og gerðu út um
leikinn. Fyrst skoraði Miroslav Babic á
67. mínútu og næst Francisco Javier
Munoz Bernal á 70. mínútu. Fleiri mörk
voru ekki skoruð og annar tapleikur Kára
í röð staðreynd. Liðið er engu að síður í
harðri toppbaráttu í fjórða sæti deildar-
innar með 15 stig eftir átta leiki, tveim-
ur stigum á eftir Völsungi í sætinu fyrir
ofan. Þessi tvö lið mætast í næstu um-
ferð, laugardaginn 30. júní næstkom-
andi. Sá leikur fer fram á Akranesi.
-kgk