Heimsmynd - 01.07.1992, Qupperneq 10

Heimsmynd - 01.07.1992, Qupperneq 10
FLEIRISKIP - FÆRRI ÞORSKAR „Lúðvík Barði Kjartan" - skipið um- deilda í Nes- kaupstað. Það vildi svo til að um sömu mundir og svartasta svarta skýrslan, sú frá Alþjóðahafrann- sóknaráðinu, dundi á skilningar- færum landsmanna í byrjun júní var ég að taka til á háloftinu hjá mér. Þar rakst ég á gamlar rit- smíðar mínar og útvarpserindi frá árinu 1976. Útvarpserindið bar yfirskriftina „íslensk rányrkja í stað erlendrar?“ Þar reyndi ég að færa rök að því að þá þegar hefði verið svo vel að verki staðið um endurnýjun íslenska fiskiskipaflotans, að frekari stækkun hans mundi leiða það af sér að íslendingar tækju við þar sem erlendu veiðiflotarnir hefðu orðið að láta staðar numið við endanlega útfærslu fisk- veiðilögsögunnar í 200 mflur: I stað útlendrar rányrkju fengjum við íslenska. Það fer ekki á milli mála að við samningu þessa erindis hafði ég gengið í smiðju kunningja minna hjá Haf- rannsóknarstofnun, sem sjálfir áttu óhægt um vik að setja fram opinberlega skoðanir sínar á tiltekinni stærð íslenska fiskveiðiflotans, þótt til þeirra væri leitað um vísindalegt mat á því hvað teldist hæfileg sókn á miðin innan fiskveiðilög- sögunnar. Hitt hlaut að teljast til verkahrings stjórnmálamanna að ákveða um hæfilegan fjölda skipa á fiskislóðinni. Stjórnmálamannanna? Hví þá það? Hefði það ekki átt að vera í verkahring útgerðar- manna, fiskvinnslustöðva, jafnvel sveitarfélaga? I orði kveðnu, jú. En í reynd voru það stjórn- málamenn, sem ákváðu lánakjörin til fjármögn- unar skipanna og gátu því með ítökum sínum í sjóða- og bankakerfinu ýtt undir eða dregið úr áhuga þessara aðila á skipakaupum. Um þessar mundir var Þjóðviljinn að marka sér nokkru frjálslyndari stefnu en verið hafði. Ritstjórinn, Kjartan Ólafsson, bauð mér að rita grein í blað sitt um sjálfvalið efni. Ég notaði þetta tækifæri til að ráðast á viss atriði í stefnu helsta „gúrús“ flokksins í sjávarútvegs- og at- vinnumálum, Lúðvíks Jósefssonar, í sjávarút- vegsráðherratíð hans í svonefndri Vinstri stjórn. Þetta þótti ýmsum lúalegt af mér - þar á meðal Lúðvík. Greinina kallaði ég „Liðkað til fyrir gervi- kapítalisma“. Tilefni hennar var viðtal við Lúð- vík, sem birst hafði fyrr um veturinn í Sjó- mannablaðinu Víkingi. Þar hafði Lúðvík látið í ljós ótta við að vegna smæðar íslenska flotans mundi fiskur deyja úr elli í stórum stíl á ís- landsmiðum og Bretar og Þjóðverjar gera kröfu til að fá að hjálpa upp á sakirnar og aðstoða okkur við að fullnýta auðlindina, þar sem við værum augljóslega ekki einfærir um það. Ég hafði þar uppi svipuð rök og áður. Við hefðum haft uppi þær röksemdir fyrir útfærslu fiskveiði- lögsögunnar að útlendingar væru farnir að stunda hér rányrkju í stórum stfl. Við yrðum því að gæta þess að stefna ekki sjálfir stærri flota á fiskislóðina, en þeim samanlagða flota íslenskra og erlendra skipa, sem stundað hefði veiðarnar fyrir daga landhelgisútfærslunnar. Hömlulaus fjölgun skipa mundi fyrr eða síðar leiða til sóknartakmarkana og kvótakerfis, sem yrðu róttækari hömlur á athafnafrelsi manna en nokkru sinni áður hefðu þekkst í þessu landi. Því hefði verið eðlilegt af Vinstristjórninni að stofna til Togaraútgerðar ríkisins, eins og aðild- arflokkar hennar hefðu raunar marglagt til meðan þeir voru í stjórnarandstöðu á Viðreisn- arárunum, í því skyni að sjá um hráefnisöflun fyrir hina smærri fiskvinnslustaði, og koma þannig í veg fyrir óhóflega stækkun flotans. Þetta kæmi því ekkert við hvort menn væru yf- irleitt með eða móti ríkisrekstri. Þetta væri bara að mínu áliti það eina rökrétta í stöðunni. Sem sjávarútvegsráðherra hefði Lúðvík valið þveröfuga leið. Hann hefði hækkað lánin úr framhald á bls. 88
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Heimsmynd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.