Heimsmynd - 01.07.1992, Blaðsíða 69
%
Morðið á Stefano Bontate, sei
uppnefndur var Prinsinn, árið 198
markaði upphaf mafíustríðsin
mikla á árunum 1981 til 1983.
Legtllo. Sa«ía «»/«» « !"''i'2“í"*19T4'
er nú guðfaðir sikileysku mafíunnar þótt hann se enn i fangelsi.
um. Allir helstu toppar Sikileyjarmafíunnar voru líka á fund-
inum undir forustu Don Giuseppe Genco Russo sem þá var
orðinn capo di tutti capi. Allir þessir mafíósar áttu það sameig-
inlegt að vera komnir á kaf í eiturlyfjasölu. Fundurinn vakti
litla opinbera athygli, en vegna uppljóstrana nú á allra síðustu
árum, hefur komið í ljós að þarna fór bandaríska mafían fram
á það við þá sikileysku að hún tæki að sér innflutning og dreif-
ingu á heróíni í Bandaríkjunum. Petta var samþykkt og síðan
hefur sikileyska mafían haft undirtökin í allri eiturlyfjaverslun
í heiminum og er stærsta og voldugasta glæpahreyfing nútím-
ans. Á þessum fundi var svokölluð Cupola stofnuð sem er eins
konar stjórnarnefnd sikileysku mafíunnar.
Mafían hefur mjög á orði hugtök eins og heiður, virðingu,
þagmælsku, fjölskyldubönd og svo framvegis. Þrátt fyrir það
er henni fátt heilagt og hún svífst einskis til að ná fram mark-
miðum sínum. Sikileyingar eru yfirleitt elskulegt fólk. Og ör-
ugglega er þeim flestum meinilla við mafíuna og vildu helst
vera lausir við hana. En þeir lifa undir dulinni ógnarstjórn og
segja því fátt. Mafían er sjaldnast nefnd í sikileyskum blöðum.
Almennt gengur hreyfingin undir nafninu Kolkrabbinn
(octopus). Talið er að um 15 þúsund manns séu í sikileysku
mafíunni. Og hver einasti þeirra er morðingi. Það er inntöku-
skilyrði að hafa drepið. Með því er tryggt að mafíósar séu
nægilega blóðþyrstir og komið í veg fyrir útsendara yfirvalda.
Margir telja að bandaríska mafían hafi úrkynjast á síðustu ár-
um og misst völd. Margir helstu foringja hennar eru nú komn-
ir bak við lás og slá, samanber dóminn yfir John Gotti nú í
vor, og fjölskyldurnar hálflamaðar. Þá hafa verið leyfðar gift-
ingar inn í fjölskyldurnar út fyrir hinn sikileyska uppruna og
margt af yngra fólkinu skortir grimmd. Það á ekki við um
sikileysku mafíuna. Þar koma sífellt fram nýir og ungir menn
sem eru tilbúnir til hvers kyns óhæfuverka. Núverandi capo di
tutti capi, Luciano Leggio, er dæmigerður um feril sikileyskra
mafíósa á síðari árum.
„GÓГ OG „VOND“ MAFÍA
Eins og áður hefur komið fram er Luciano Leggio frá þorp-
inu Corleone sem frægt er úr myndum Coppola um Guðföð-
urinn. Höfundur þessarar greinar kom til Corleone nú í vor.
Þetta er bær með um 11 þúsund íbúa og ákaflega sakleysisleg-
ur á yfirborðinu. Nokkrir gamlir menn sitja á aðaltorginu og
spjalla saman og fátt virðist raska ró þeirra. Þetta sama torg
var þó vettvangur fjöldamorða fyrir aðeins fáum árum. Og frá
þessum litla bæ koma blóðþyrstustu mafíósar Sikileyjar.
Don Luciano er að afplána lífstíðarfangelsi fyrir morð og
hefur setið í fangelsi síðan 1974. Hann drepur tímann með því
að lesa Charles Dickens og gríska heimspekinga, yrkja ljóð og
mála nostalgísk landslagsmálverk af heimabyggð sinni. Sumir
kynnu að álíta að hann væri búinn að vera, en engu að síður er
hann ógnvænlegasti capo di tutti capi allra tíma. Hann skapaði
hið mikla heróínnet mafíunnar sem nær um allan heim. Hann
vann það í mafíustríðinu mikla á árunum 1981 til 1983 með því
að leggja línurnar frá fangelsisklefa sínum. Þeir sem stóðu fyr-
ir stríðinu voru liðsmenn hans, svokallaðir corleonesi, og
bandamenn þeirra og það geisaði ekki aðeins á Sikiley heldur
breiddist þaðan út til Norður-ftalíu, Vestur-Evrópu, Kanada,
Suður-Ameríku og Bandaríkjanna. Áður en því lauk lágu um
þúsund menn í valnum sem ýmist höfðu verið skotnir, kyrktir,
eitrað fyrir, sprengdir í loft upp eða stungnir, og álíka margir
höfðu horfið sporlaust. Fáir andstæðingar hans, sem nokkuð
kvað að, lifðu af þennan mikla hildarleik. En þessir fáu voru
líka svo fullir hefndarhuga gagnvart Luciano Leggio að sumir
þeirra kusu að rjúfa allra helgasta boðorð mafíunnar um þag-
mælsku og segja yfirvöldum alla söguna. Frægastur og mikil-
vægastur þeirra var mafíuforinginn Tommasso Buscetta sem
sagði frá mörgum helgustu leyndarmálum hreyfingarinnar í
hinum frægu réttarhöldum í Palermó árið 1987.
Saga Luciano Leggio, um það hvernig hann komst til valda,
er í hnotskurn saga mafíunnar frá styrjaldarlokum, hvernig
hún hefur orðið æ blóðþyrstari, spilltari og illvígari og hvernig
hin gömlu gildi um virðingu og heiður hafa horfið í skugga
milljarðaverslunar með eiturlyf. Morðin hafa stöðugt orðið
vélrænni, ópersónulegri og víðtækari. Mafían hætti að vera
staðbundið eða landbundið böl en varð alþjóðlegt glæpasam-
særi.
Margir hafa sakað Don Luciano fyrir allt þetta. Saga hans
hefur verið notuð til að undirstrika muninn á „góðu“ og
„vondu“ mafíunni. „Góðir“ mafíósar voru sagðir hafa ríkt yfir
Sikiley í hundruð ára þar til Luciano Leggio kom og eyðilagði
hin gömlu gildi. Þetta var til dæmis inntakið í málflutningi
Tommasso Buscetta við réttarhöldin 1987.
ÓHUGNANLEGUR SVEITADRENGUR
Luciano Leggio er fæddur í Corleone á köldum vetrar-
morgni árið 1925, tíunda barn bláfátækra og ólæsra foreldra.
Engar sögur fara af honum fyrr en hann var á nítjánda ári. Þá
var hann staðinn að því að stela korni af akri og settur í fang-
elsi. Þegar hann losnaði fór hann beina leið og skaut vörðinn
HEIMSMYND 69