Heimsmynd - 01.07.1992, Blaðsíða 67
Greinarhöfundur ferðaðist um slóðir mafíunnar á
Sikiley í vor - skömmu áður en Falkone dómari var
sprengdur í loft upp ásamt fjölskyldu sinni á
þjóðveginum vestur af Palermó
Paradís á jörðu
er það fyrsta
sem manni
dettur í hug
þegar komið er
til Sikileyjar að
vorlagi. Oll eyj-
an er þá sem
útsprungið blómahaf og
angan frá sírenum fyllir
skilningarvitin. Blóðapp-
elsínutré og sítrónutré
eru nánast í hverjum
húsagarði og vínviður og
möndlutré teygja sig upp
eftir hlíðum fjalla. Risa-
vaxnir kaktusar og
pálmatré minna á að
Afríka er skammt und-
an. Ibúarnir eru vin-
gjarnlegir en í öllum
þessum unaði liggur falin
vá, rétt eins og skaparinn
geti ekki unnt þeim að
lifa í friði og spekt í þess-
ari paradís. Freistarinn í
líki höggorms liggur fal-
inn í hverju þorpi og
hverri borg. Greinarhöf-
undur var á Sikiley í
apríl síðastliðnum og
skynjaði vel þá ógn eða álög sem hvílir á íbúum þessarar íðil-
fögru eyjar sem liggur eins og þröskuldur um þvert Miðjarðar-
haf, ákjósanleg sem miðstöð verslunar milli Evrópu, Asíu og
Afríku. Héðan er mafían upprunnin og hér ræður mafían öllu.
Þrátt fyrir hetjulega baráttu yfirvalda gegn henni er hún aldrei
sterkari en nú. Morðið á dómaranum Falkone 23. maí síðast-
liðinn undirstrikar það
rækilega, en hann var að-
aldómari við mafíuréttar-
höldin miklu í Palermó
fyrir fimm árum sem
komu mörg hundruð
mafíósum bak við lás og
slá.
Sagt er að mafían á
Sikiley hafi undirtökin í
allri eiturlyfjaverslun í
heiminum. Réttarhöld og
fangelsanir hafa þar lítil
áhrif á. Medellin-furst-
arnir í Kólumbíu hafa fal-
ið Sikileyjarmafíunni að
annast kókaínmarkaðinn
og heróínflutningar frá
Asíu til Evrópu og Am-
eríku fara um hennar
hendur. Bandaríska maf-
ían er hálflömuð vegna
uppljóstranna og hefur
misst tökin víða en sikil-
eyska mafían blómstar.
Mafíufjölskyldur frá Sikil-
ey hafa nú aðsetur víða
um heim. Þær eru í Cara-
cas, Sao Paulo, Bangkok,
Múnchen, Marseilles,
Montreal, London, Hong
Kong, Sidney og um 25 borgum í Bandaríkjunum. Nauðsyn-
legt er að gera skýran greinarmun á sikileysku mafíunni og
þeirri bandarísku þó að þær séu báðar af sömu rót. Neti þeirr-
ar fyrrnefndu er stjórnað frá Palermó á Sikiley og þar er einn
maður sem allir lúta, sjálfur guðfaðirinn. Hann heitir Luciano
Leggio og er frá Corleone, litlu þorpi í miðju fjalllendi eyjar-
eftir GUÐJÓN FRIÐRIKSSON
HEIMSMYND 67