Heimsmynd - 01.07.1992, Síða 16

Heimsmynd - 01.07.1992, Síða 16
Nóri er sögupersóna í metsölubókinni Á slóö kolkrabbans eftir Örnólf Árnason, sem út kom fyrir síöustu jól. Nóri var helsti heimildarmaður höfundar um baksvið viöskiptalífsins. Samkvæmt bókinni er Nóri gamall skólabróðir höfundar, einhleypur lögfræðingur sem býr með móður sinni og aðstoðar hana við rekstur nærfataverslunar við Laugaveginn. Þeir Örnólfur og Nóri halda áfram að hittast og skeggræða um margvísleg málefni líðandi stundar. í þetta sinn eru það spurningar um einkavæðingu Ijósvakamiðla og hverjir séu hæfir eða óhæfir til að stýra slíkum miðlum sem eru að veltast fyrir þeim félögum. Þeim verður tíðræddast um einkasjónvarpið Veistu það, að eins og ég er áfram um að einkavæða helst allan rekstur á íslandi, nema kannski Þjóðminjasafnið og Litla-Hraun, segir Nóri, þá fer oft ískaldur hrollur um mig þegar ég sé hvers konar kújón- ar ná undirtökunum í fyrirtækjum sem hafa áhrif á hvert heimili í landinu. Til dæmis fjöl- miðla. Ég vildi ógjarnan sjá Davíð og þennan Hrein Loftsson, sem nafnsins vegna hefði held- ur átt heima í umhverfisráðuneytinu, selja Rík- isútvarpið. Reynslan af Stöð 2 gerir mann skít- hræddan um að einkarekstur ljósvakamiðla geti leitt af sér stórslys með því að þar fái tögl og hagldir alls konar nefapar og andlegar eyði- merkur. Heldurðu að það væri þokkalegt að fá inn í stofu hjá sér sjónvarp, sem einhver einka- bankinn hefur selt þeim bröskurum sem hoss- ast hæst hverju sinni í skyndiævintýrum við- skiptalífsins? Og svo eru þetta vísast óupp- dregnir lúsablesar sem varla hafa andlega burði til að reka vídeóleigu í Skuggahverfinu. Nóri fær sér sopa af mjólkurglasinu sínu: Déskoti er þetta gott lambaket hjá þér. Og að hafa kartöflurnar í ofnskúffunni svo að leki úr lærinu yfir, það er himneskt snjallræði. Þá tap- ast feitin ekki. Og steinseljan tekur mestu lykt- ina af hvítlauknum. Ekki svo að skilja að mér sé ekki sama um það því að ekki er ég í neinu kvennastússi. Hvaðan sagðirðu að uppskriftin væri ættuð? Frá Suður-Frakklandi, Provence-héraði, segi ég- Mér leiðist í útlöndum, segir Nóri og bætir svo við: En það er margt gott sem kemur það- an. Betra að fá það hingað en að þurfa að ferð- ast. Nóri er í fagurskornum dökkbláum fötum með brúnum teinum, í hvítri skyrtu og með ^ óvenjulega alvarlegt bindi um hálsinn, skárönd- S ótt í mörgum en fremur hófstilltum litum, enda ^ er hann nýkominn úr sunnudagsmessunni í ^ Dómkirkjunni. § ------------------------------------------< eftir Örnólf Árnason f CÐ 2 Z LU Manstu eftir honum frænda mínum, hagfræð- ingnum, sem hefur svo einlægan og ógnarsterk- an áhuga á góðu siðferði í viðskiptalífinu? spyr Nóri: Þeim sem vann allan sinn starfsaldur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington? 16 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.