Heimsmynd - 01.07.1992, Qupperneq 42
VARA
GLANS
fegurð
Gloss heitir það á ensku
en hér er um að ræða
glansandi varir sem svo
lengi voru í tísku en viku
um skeið fyrir möttu
varalitunum. En vara-
glansinn á alltaf sína
áhangendur, sérstaklega
þær sem finna fyrir vara-
þurrki. Margir nota vasel-
ín eða sérstakan varasalva
til þess að verjast þurrkin-
um, sem fylgir útiveru og
sólböðum en
það er
heppilegra
og ólíkt fal-
legra að
nota varagloss. Þessi gloss
er hægt að fá í mörgum
litum og litlausa. Chanel
er með þrjár tegundir í
sumar (Eclat 15, Limpide
16, Eclipse 18). Sumarlit-
urinn frá Jil Sander er
Nude 01 og frá Lanca-
ster er Cuivre 03. Sum-
arliturinn frá Yves Sai-
nt Laurent er Fuchsia
Pink 03 og Orange Poppy
04. Dior er með gloss nr.
421 Wicker.
Eini ókosturinn við
varaglossinn er að hann
endist ekki eins vel og
varalitur. Og það er ekk-
ert ráð við því nema að
bera hann oftar á.M
* *m
FÖLAR
NEGLUR
júkir, fölir
pastellitir eru
helsta nýjungin
í naglalökkum. Föl-
bleikir litir, skeljalitir
með perluáferð eru
fallegir á öllum nögl-
um, sérstaklega á
sumrin. Aðallitirnir frá
Chanel núna eru
Accent nr. 35 og In-
tensive Rose nr. 17.
Clarins er með Rose
Satin nr. 4 og Rose Hi-
biscus. Dior er með
Linnen nr. 314.
Maybelline er með
Romantic Mauve
Creme nr. 7 og og
Candted Coral Creme
nr. 12. Spennandi
naglalökk frá Yve;
Saint Laurent eru
Rosy Coral nr. 52 og
Crystal White nr. 79.
Sumarlínan frá Isa-
bel Lancray heitir
Cocooning Line nr. 63
- 64. >rcancil er nýtt
merki á markaðinum
en sumarliturinn frá
þeim í naglalakki er
Paris Next Wave nr.
428. Frá Lancaster
er sumarliturinn Mel-
ange nr. 97.
Ljósu naglalökkin
þola betur að flagna
og því má ekki gleyma
að naglalakkið ver
neglurnar vel. Það er
glansáferð á nagla-
lökkum sumarins og
nú eiga neglurnar al-
veg eins að njóta sín,
stuttar og vel snyrtar.
Ljósir litir á nöglum
fara vel við andlits-
förðunina sem er í
tísku í sumar. Eitt að
lokum: Liturinn á fing-
urnöglum þarf alls
ekki að vera í stíl við
litinn á tánöglunum.
Þær mega þess vegna
vera eldrauðar, til
dæmis Juvena nr. 46
Red.B
MUNDU
EFTIR
AÐ
TELJA
Sumarfríið er kærkomin tilbreyting fyrir
margra hluta sakir. Fyrir hjón og pör er fríið
oft kærkomið tækifæri til að njóta ásta, en
samlífið situr gjarnan á hakanum hjá stress-
uðum uppum. í fríinu fer fólk oftar út að
borða, sérstaklega ef það er erlendis og fær sér gjarnan
vín með matnum. En ykkar er valið. Vín er verulega fit-
andi. I amerískri metsölubók var eitt sinn haft á orði að
munnfylli af sæði karlmanns væri álíka rík af hitaeining-
um og eitt hvítvínsglas. Hvort viljið þið nú heldur leggja
ykkur til munns? Munið bara eftir hitaeiningum og það
er í góðu lagi að sleppa hvoru tveggja. Hér er tafla yfir
hitaeiningainnihald nokkurra vinsælla sumardrykkja.
Miðað er við eitt glas:
Rauðvín: 131 hitaeiningar
Hvítvín: 137 hitaeiningar
Kampavín: 126 hitaeiningar
Prippsbjór: 150 hitaeiningar
Daiquiri: 305 hitaeiningar
Martini: 200 hitaeiningar
Pina Colada: 305 hitaeiningar
Koníak: 230 hitaeiningar
BRÚNÁN SÓLAR
tveimur klukkustundum er hægt að
verða sólbrúnn án þess að stíga undir
bert loft eða fara á sólbaðsstofu. Nú
eru komin á markaðinn sérstök
brúnkukrem sem borin eru á allan
líkamann eins og
venjulegt body-lo-
tion og þau má einnig
nota á andlitið. Síðan
er beðið í tvær klukku-
stundir og þá er komi-
inn frísklegur litur á
líkamann. Kremin frá
Clarins og Estée
Lauder eru fullkom-
lega skaðlaus. Það er
meira að segja sólar-
vörn í þeim.B
42 HEIMSMYND