Heimsmynd - 01.07.1992, Blaðsíða 54

Heimsmynd - 01.07.1992, Blaðsíða 54
Magdalena ber nafn ömmu sinnar, Magdalenu Schram sem bjó á Stýrimannastígnum og lagði til lík tveggja eiginmanna langömmu minnar á Vesturgötunni. „Guð, en óhuggulegt“, segir Magdalena. í gamla daga þótti þetta víst heið- ur og verkið ekki falið hverjum sem var. Dauðinn finnst henni sjálfri ekkert óhuggu- legur né heldur gömlu tímarnir sem hún sækir margt í. Ég man eftir Magdalenu í samkvæmi fyrir mörgum árum. Hún var innan við þrítugt þá, skelegg með gleraugun sín og ræddi ófrelsi kvenna. Fyrir utan mig var Magdalena lang- yngst í boðinu en hún talaði samt eins og aldursforseti og gerði langan róm að því hvað hún hlakkaði til að verða gömul, eldgömul. Ekki man ég svo gjörla hver rökin voru en þá virtist lífið svo óendanlega beinn og breiður vegur. Endalaus lang- ferð og bugður vart sjáanlegar á þeirri braut. Nokkrum árum síðar var Magdalena komin á kaf í Kvenna- framboðið og var á framboðslistanum til borgarstjórnarkosn- inga 1982. Hún er enn á kafi í kvennapólitíkinni þrátt fyrir al- varlegar hindranir sem orðið hafa á vegi hennar. Árið 1988 greindist hún með brjóstakrabbamein. Annað brjóstið var fjarlægt og hún sett í geisla- og lyfjameðferð. í upphafi þessa árs, sem markar tímamót tíu ára framboðs kvenna, kom í Ijós að krabbameinið hafði sáð sér í kviðarholið og hún er aftur komin í lyfjameðferð. „Hún er auðvitað hundveik hún Malla“, segir aðstandandi hennar og bætir við „hún er bara svo mikill töffari." „Mamma var hjartveik í tíu ár“, segir Magdalena, „og það talaði enginn um hvað hún væri dugleg.“ Hún situr í sófanum í stofunni á Grenimel. Þrjár dætur eru inni í íbúðinni á aldrin- um átta til fimmtán ára. Allar með þennan sérkennilega Schramsvip. Magdalena fær sér sígarettu og segir „Schram- svip“ þennan frá móður sinni, Aldísi, sem er af Bergsætt en ekki frá föður sínum Björgvini Schram. „Hann Ellert bróðir er til dæmis alveg snýttur út úr nös á henni mömmu.“ Magdalena er að sjálfsögðu upptekin af lyfjameðferðinni en vill ekki gera þessi veikindi að umræðuefni. Hún þolir lyfja- meðferðina ágætlega, „ég svara henni vel“, hefur ekki misst hárið, „þótt mér finnist baðkarið stundum fullt af hárum eftir þvott“, og hún kvartar undan því að hún sé orðin allt of grönn. Þess utan finnst henni talað óþarflega mikið um krabbamein sem einhvern vofveiflegan vágest. „Krabbamein- ið er eins og hver annar sjúkdómur en fólk þreytist seint á því að gefa manni hin ótrúlegustu ráð við því. Um daginn sagði einhver mér að það væri óbilandi ráð að borða rauðrófur og gott ef ekki fylgdi sögunni að best væri að snúa í norður með- an maður skæri þær. Það er mikið bullað í sambandi við krabbamein.“ Hún segist vera dálítil Pollýanna í sér. „Ég hef lifað ágætu lífi þó að ég hafi átt í þessum veikindum. Fólk bregst ein- kennilega við krabbameini. Auðvitað eru til margar tegundir af krabbameini en fólk hefur tilhneigingu til að setja allt krabbamein undir einn hatt og lítur á það sem dauðadóm. í þeirri örvæntingu, sem oft er á misskilningi byggð, grípa sjúkl- ingar oft til ótrúlegustu ráða án samráðs við lækna, sem það fer jafnvel að vantreysta. Það fer í taugarnar á mér þegar þessi veikindi eru gerð að einhverju persónulegu stríði manns við „vágestinn“ ólíkt mörgum öðrum alvarlegum sjúkdómum. Auðvitað las ég sjálf fjölda bóka um krabbamein þegar það greindist fyrst í mér. Ég las meðal annars sögu Jill Ireland, sem nú er reyndar dáin. Sú bók sem mér hefur fundist skrifuð af mestri skynsemi er eftir rithöfundinn Susan Sontag, en hún fékk krabbamein fyrir tæpum tuttugu árum. Sontag fjallar um allar bábiljurnar í tengslum við krabbamein. Hún segir að ótt- inn og ruglingurinn í kjölfarið dragi bæði kjark og þrek úr sjúklingum og komi í veg fyrir að þeir umgangist þennan sjúk- dóm sem hvern annan. Hún segir krabbameinið hafa tekið við af berklunum sem ógnvald en það var óhemju vinsælt að láta aðalsöguhetj urnar í óperum og bíómyndum tærast upp af berklum hér á árum áður. Síðan tók krabbameinið við og ætli alnæmið verði ekki næst. Ég tek einnig eftir því þegar ég les minningargreinarnar í Mogganum“, segir hún og grípur fram í fyrir sjálfri sér, „sem ég las ekki mikið hér áður fyrr og það stingur mig hve auðvelt er að lesa á milli línanna ef fólk hefur dáið úr krabbameini því þá er talað um hinn illvíga sjúkdóm. Það er ennþá á bannlistanum að nefna krabbameinið sjálft.“ Hún sendir yngstu dóttur sína, Guðrúnu, út í búð að kaupa plástur. „Með taui á, elskan, ekki plasti og þú mátt kaupa ís fyrir afganginn." Sú stutta kemur aftur að vörmu spori með ís en engan plástur. Hann hefur ugglaust ekki fengist í ísbúðinni. Spikfeitur köttur Iiggur á stofugólfinu og vermir sig í lang- þráðum sólargeislum sumarsins. Magdalena er með djúpt sár á handarbakinu eftir sterkt lyf sem lak út úr æð í sprautugjöf, gat inn að beini. Hún blæs frá sér reyknum, hristir höfðuðið og gleymir sárinu. Hún skammast sín fyrir að reykja. „Ég vildi að til væru hæli fyrir reykingafólk rétt eins og alkana. Hugs- aðu þér hvað sjúkdómar tengdir reykingum kosta þjóðfélagið. Ég var að velta fyrir mér að hætta reykingum þegar ég vakn- aði upp eftir aðgerðina 1988 en þá sögðu einhverjir að ég væri undir svo miklu álagi og þá afsökun greip ég náttúrulega fegins hendi.“ Hún upplifði það sem mikinn létti þegar búið var að fjarlægja brjóstið. Hún segist lítið hafa vitað um þennan sjúkdóm. „Eins og flestir hélt ég að þetta væri alger dauðadóm- ur. Mér finnst ergilegast að hafa ekki eins mikla starfsgetu og áður. Ég hef ekki unnið sem blaðamaður árum saman, stokkið inn á Veru, blað Kvennalistans, af og til. Ég væri örugglega með fremstu blaðamönnum landsins ef heilsan hefði ekki bilað. Annað hvarflar að sjálfsögðu ekki að mér.“ Fyrstu kynni hennar af Kvennaframboðinu voru þegar hún var blaðamaður á Vísi. „Þessum konum sem byrjuðu datt í hug að bjóða fram sumarið 1981. Þær voru tólf eins og postul- arnir forðum. Ég las eitthvað um þetta en var ekkert spennt, hafði aldrei verið í rauðsokkahreyfingunni enda erlendis á þeim árum, sem hún var virk. í uppvextinum hvarflaði ekki að mér að það myndi trufla mig á ferð minni í gegnum lífið að ég væri kona. Ég trúði því að konur ættu jafnan rétt alveg frá því að ég var í skóla enda reif ég kjaft á fundum rétt eins og strák- arnir. Ég varð stúdent 1968 og þá trúði maður því að samstaða gæti breytt heiminum.“ Samferða henni í menntaskóla voru ýmsir þjóðkunnir einstaklingar. „Vilmundur Gylfason, Ingólf- ur Margeirsson, Steinunn Sigurðardóttir, Pétur Gunnarsson, Hrafn Gunnlaugsson og Davíð Oddsson. Skemmtilegt fólk. En þetta lið endurspeglar sumpart þær rosalegu breytingar sem hafa átt sér stað í þjóðfélaginu síðan þá. Vilmundur stóð fyrir nýju afli í stjórnmálum og Davíð varð helsti talsmaður frjálshyggjunnar sem sett hefur mestan svip á pólitíska um- ræðu undanfarin ár. Þar er hver sjálfum sér næstur og sam- kenndin fótum troðin. Enda er allt að fara til fjandans. Bilið hefur breikkað á milli fólks og ég hef verulegar áhyggjur af því. Þrátt fyrir jafnréttisbaráttuna er staða kvenna enn mjög veik þótt þær hafi sótt fram á mörgum sviðum. Þær hafa verið duglegar að hasla sér völl í stjórnsýslunni, sem segir þó ekki alla söguna. Konur eru miklu sýnilegri á öllum sviðum þjóðfé- lagsins nema við kjötkatlana. Ungir karlkyns lögfræðingar og viðskiptafræðingar fara ekki lengur inn í ráðuneytin heldur leita þeir út á markaðinn þar sem peningarnir eru því þar finnst þeim statusinn vera.“ Hin ójafna staða kynjanna hefur runnið upp fyrir henni í ár- anna rás, segir hún. „Þegar ég var Iítil minnist ég þess að hafa frekar viljað vera strákur. Ég og Líney vinkona mín vorum al- „Hún er auðvitað hundveik hún Malla. Hún er bara svo mikill töííari. “ 54 HEIMSMYND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.