Heimsmynd - 01.07.1992, Qupperneq 72

Heimsmynd - 01.07.1992, Qupperneq 72
___Greinarll°lllndur i Palermó. holflunum i raiennu i»ou . '. hreytt andliti sínu meö skuröaðgerð og faldi sig a bak við stór sólgleraugu. Hann ákvað að segja fra helgustu leyndarmálum mafíunnar eftir að corleo- nesi höfðu myrt tvo syni hans og fimm aðra nana ættingja. hátt eða þau skjóta gneistum svo að kaldur hrollur fer um við- stadda. Lengi gat lögreglan ekkert aðhafst þó að hún vissi að hann hafði gerst sekur um glæpi af hvers konar tagi. Pví olli meðal annars spilling, mútuþægni og ótti. Hann bjó í Palermó í tíu ár og var í felum en sjaldan á flótta. Þegar hann ferðaðist um göturnar var hann í Rolls Royce í miðri bflalest. Glæsi- kerra fór á undan og önnur á eftir og sátu jafnan virðulegir og auðugir borgarar í bflunum. Ef lögreglan gerði fyrirsát gengu þessir borgarar út og héldu lögreglumönnum uppi á spjalli meðan Leggio komst í burtu. Hann hafði í kringum sig þétt- riðið net af njósnurum og hafði ógnartök á fólki með mútum og ofbeldi. Stundum fór hann í dulargervi um götur, klæddur eins og munkur, lögregluþjónn, kona eða bandarískur túristi, hlaðinn myndavélum. Kvöldum eyddi hann í fínum samkvæm- um með fegurstu konum. Þegar hér var komið sögu var hann hættur að drepa sjálfur að mestu leyti en lét það eftir lags- mönnum sínum. Nákvæmlega þrjátíu og níu mafíufjölskyldur höfðu skipt Pa- lermó á milli sín er Luciano Leggio birtist í borginni. Þær réðu öllum viðskiptum, samgöngum og framleiðslu. Allt var skatt- lagt af mafíunni og gróðinn mikill. Öðru hvoru geisuðu stríð milli fjölskyldnanna með tilheyrandi manndrápum. Palermó varð alræmd fyrir tíð morð. Leggio var að vísu ekki algjör byrjandi í Palermó eins og áður sagði. Hann hafði stjórnað þar svarta markaðnum á kjöti um skeið. Nú braust hann með lát- um inn á kornmarkaðinn og tók tíu til tuttugu prósent af allri kornsölu. Þá náði hann tangarhaldi á billjarðstofum og leik- tækjasölum og fyrr en varði stjórnaði hann þúsundum þeirra. Hann sópaði til sín peningum og allir sem nálægt honum komu urðu ríkir því að hann borgaði vel alla þjónustu. ÁSTKONA MORÐINGJA UNNUSTA SÍNS Luciano Leggio var fyrst handtekinn árið 1964. Þá var hann í húsi sínu í Corleone, fáeina metra frá höfuðstöðvum lög- reglunnar. Þegar hún braust inn lá hann í rúmi sínu og var að lesa Stríð og frið eftir Tolstoy. Aðrar bækur við rúmið voru bænabók og heimspekirit eftir Kant. Hann var þá ekki við góða heilsu. Lyfjaflöskur, pillur og sprautur lágu eins og hrá- viði um allt herbergið. Þung leðurbrynja sást í gegnum náttföt- in en sparibrynja úr silfri lá nálægt. „Hvað viljiði mér? Ég er að verða gamall“, sagði hann næstum glaðlega og staulaðist á fætur. Hann var þá ekki orðinn fertugur. „Ef þið ætlið að halda í mér líftórunni verðið þið að fara með mig á sólríkan stað. Ég þarf mikið sólskin.“ Leggio hafði lokað sig inni í húsinu mánuðum saman. Hon- um var hjúkrað af konu sem áður hafði verið unnusta verka- lýðsforingjans Rizzotto, sem Leggio hafði drepið 16 árum áð- ur. Hún var sem sagt ástkona morðingja unnusta síns. Þegar fangelsisdyrnar lokuðust á eftir Leggio í Palermo bjuggust flestir við að þar með væri ferill hans á enda. Hann var ákærð- ur fyrir fimmtán morð og læknar töldu að hann ætti fá ár ólif- uð. En þeim skjátlaðist. Það var loks árið 1967 sem réttarhöld í máli Lucianos Leg- gios fóru fram. Dómarinn var Sikileyingurinn Cesare Terra- nova sem hafði eytt allri ævi sinni í baráttu gegn mafíunni. Réttarhöldunum lauk ári síðar með því að Leggio var látinn laus vegna ónógra sannana. Dómarinn var ekki sáttur við þessa niðurstöðu og ákvað að afla nýrra sannana og Leggio var handtekinn á ný. Hann trylltist nú gjörsamlega og um tíma neitaði hann að svara spurningum og sagði að hann væri veik- ur. Terranova tók ekki mark á slíkum yfirlýsingum og Leggio var rúllað inn í réttarsalinn í hjólastól, æfur af reiði. Hann vildi ekki svara spurningum, sagðist ekki einu sinni muna sitt eigið nafn hvað þá heldur foreldra sinna. Dómarinn lét þá bóka að Luciano Leggio vissi ekki hvers son hann væri. „Leggio bókstaflega froðufelldi og hefði drepið mig á staðn- um ef hann hefði getað“, sagði Terranova við konu sína um kvöldið. En þess var ekki langt að bíða. Nokkrum dögum síð- ar var dómarinn skotinn til bana með kalashnikov-rifli er hann var að ganga út úr húsi sínu. VITNI GUFA UPP I febrúar 1969 hófust allsherjarréttarhöld í máli Leggios í borginni Bari á meginlandi Italíu. Með honum í sakborninga- búrinu var öll Corleonemafían að þessu sinni, 64 menn, þar á meðal nánustu samstarfsmenn Leggios, þeir Salvatore Riina og Bernardo Provenzano, sem gengu undir nafninu Skepnurn- ar. Leggio kom ýmist til réttarhaldanna á sjúkrabörum eða gekk við hækjur. Hann hafði nú verið í fangelsi í fimm ár og sú vist hafði greinilega ekki læknað hann, en ekki heldur dreg- ið hann til dauða. Með ferskum eggjum og mjólk og hvers konar góðgæti að utan hafði honum tekist að verða spengi- legri en áður. Klæðaburður hans og hárgreiðsla var óaðfinn- anleg. í fjarlægð séð hefði hann alveg getað verið háskóla- kennari. En gamli Leggio skein í gegnum stórt og fölt andlitið með óskammfeilið brosið og ógnþrungið augnaráðið. Tvö vitni voru tilbúin að vitna gegn honum. Annað þeirra hætti við á síðustu stundu og varð síðan að flytja það á geð- veikrahæli. Hitt, rakari nokkur, bráðnaði er hann sá augnaráð Leggios („Nienti sacciu!“ - „ég veit ekkert“, öskraði hann á 72 HEIMSMYND
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Heimsmynd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.