Heimsmynd - 01.04.1993, Page 11

Heimsmynd - 01.04.1993, Page 11
ingasjóði flokksins með því að hafa tekið við þóknunum undir borðið fyrir úthlutun opinberra framkvæmda til verkefna. Óskammfeilinn sjarmi ítalanna virðist hafa náð yfir landamærin, ekki satt? Eða hvað er þá svo sérstakt við ítalska skandala? Háttsettir menn í röðum franskra sósíal- ista sæta nú opinberri rannsókn fyrir svip- aða milligöngu um peningagreiðslur í sjóði flokksins. Einungis fáir þeirra eru sakaðir um auðgunarbrot í eiginhagsmunaskyni. Einn þeirra er borgarstjórinn í Angouleme, sem nú fer huldu höfði í Argentínu vegna ásakana um fjárdrátt (það var í Angouleme sem Erró málaði 190 fermetra vegg- málverk árið 1982 - ekki þó á vegum borg- arstjórans, heldur franska ríkisins). Fleiri í röðum franskra ráðamanna hafa gætt ýtrustu sparsemi urn lögmæti verka sinna einnig. Nýlega fékk ráðherrann um borga- málefni, Bernard Tapie, að hverfa aftur til starfa sinna í ráðuneytinu, eftir að dómari hafði dregið til baka ákærur um fjársvik í kjölfar sáttar Tapies utan dómstóls við fyrrverandi viðskiptafélaga sinn. Og handan Pýreneafjalla fylgir þróunin svipuðum línum. Enn ein sósíalista- stjórnin, sem vermt hefur valdastólana í nokkur kjörtímabil, glímir við vaxandi grunsemdir almennings vegna náinna tengsla stjórnmálamanna og kaupsýslu- manna. í lok janúar ljóstruðu spönsk blöð upp um það athæfi þýska fjölþjóðahrings- ins Siemens að hafa greitt milljónir enskra punda til þriggja fyrirtækja undir stjórn fyrrverandi starfsmanna Sósíalistaflokks- ins sem umbun fyrir verksamninga í tengslum við hraðlestasporið milli Madrid og Sevillu fyrir heimssýninguna Expo '92. Bíði sósíalistastjóm Felipe Gonzales ósig- ur í þingkosningunum síðar á þessu ári munu spillingarásakanir eiga þar megin- hlut að máli. En sósíalistar em engan veginn einir um hituna, þegar spillingu ber á góma í opinbem lífi í Evrópu. Á írlandi hefur öll pólitík verið í uppnámi um margra mánaða skeið vegna náinna tengsla forystumanna hægra flokks- ins Fianna Fáil, fyrrverandi forsætisráð- herranna Haughey og Reynolds, og nauta- kjötsiðnaðarins, sem er meginútflutnings- grein landsins. í Siemens-skandalanum á Spáni var fulltrúi þýsku hægri stjómarinnar, þýski ambassadorinn í Madrid, í aðalhlut- verki. Þótt sósíalistar Bettínos Craxis hafi verið í sviðsljósinu ffaman af í herferðinni Hreinar hendur, hafa böndin ekki síður beinst að öðrum flokkum og um miðjan febrúar var Amaldo Farlani, hinum valda- mikla fyrrverandi framkvæmdastjóra Kristi- legra demókrata, formlega birt tilkynning um að hafin væri rannsókn á hendur honum, sem leitt gæti til ákæm. Spillingarákæra á hendur hægri miðflokksmanninum Francois Leotard í Frakklandi var felld niður, en ein- ungis sakir formgalla. Gaullistaleiðtoginn Jackues Chirac hefur verið sakaður um það í blöðum að hafa eytt fríi sínu í Oman á vegum velviljaðs vinar, sem hann neitar að gefa upp hver hafi verið. Meðan kalda stríðið stóð sem hæst virðist hvarvetna hafa ríkt tilhneiging til að setja kíkinn fyrir blinda augað, þegar kom að brest- um í þjóðskipulagi andstæðinga kommún- ismans. Nú beinast sjónir manna inn á við og þá kemur margt ófagurt í ljós, svo margt að jafnvel menn eins og Ochetti, leiðtogi fyrrum kommúnista á Italíu, óttast hmn þess þjóðskipulags, sem hann hefur eytt ævinni í að grafa undan verði réttvísinni fylgt út í æsar. Menn geta leitað nokkurrar huggunar í þeirri staðreynd, að þótt flokkalýðræðið hafi reynst rotið, og ekki megnað að stilla upp þeim andstæðu pólum, sem eiga að hafa gætur hver á öðmm og hindra að valdamenn fari offari gegn almannahagsmunum, þá hafi þó dómskerfíð að lokum megnað að koma upp um ósómann. En hver verða hin póli- tísku áhrif í þeim ríkjum Evrópu, sem státa af einna lengstri lýðræðishefð og stjómarfari sem telst hafa heiðarleika að leiðarljósi, þegar menn hætta að sjá skýran mun á starf- saðferðum mafíunnar og stjómmálaflokk- anna. Almennt býst almenningur við því að hægri pólitíkusar sem lofsyngja kapítalisma, athafnafrelsi og einkaframtak forsómi ekki að sjá um eigin hag í því hlutverki. Finnist þeim þeir ofgera í því efni hafa þeir hingað til getað snúið sér til vinstri, til sósíalistanna og annarra hugsjónahreyfinga, sem sjálfar gera kröfu um að vera dæmdar á öðmm fors- endum, umhyggju fyrir hag almennings og óeigingjamri varðstöðu sinni um þá hags- muni. Þegar vinstri vængurinn reynist ekki aðeins að hafa blandað sér í bófahasarinn, heldur tekið forystuna í þeim efnum, er fátt eftir um fína drætti fyrir kjósendur. Atkvæðin deilast þá á öfgajaðrana til hægri og vinstri. „Þeir eru allir rotnir að innsta kjama,“ segir Le Pen æ ofan í æ og ævin- lega. Ætla andstöðuflokkar hans, að eigin sögn grunnmúraðar skjaldborgir lýðræðis- ins, að sanna kjósendum að hann hafi rétt fyrir sér og því muni ekkert gera til að lofa einum kjaftaskinum og lýðræðissinnanum enn að spreyta sig? Eða ætla þeir að taka sér tak og rifja upp Móseboðorðið: Þú skalt ekki stela, sem á máli kjósandans þýðir það sama, hvort sem stolið er í eigin þágu eða Flokksins.B Glæsilegt úrval af úrum, klukkum og loftvogum, ennfremur gull og silfurvörum. Önnumst viðgerðir á allskonar klukkum og úrum. Sérsmíðum gler á allar tegundir úra. Póstsendum. ÚRSMIÐUR VEUUSUNDI3 U, v/Hallærisplan S: 13014 HEIMS 11 MYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.