Heimsmynd - 01.04.1993, Blaðsíða 18
Efri mynd:
Fundur hjá hreska
Þjóðernisflokknum.
NeÖri mynd:
Christian Worch, einn talsmaður
ungra nýnasista í Þýskalandi.
Ásjóna nýnasismans er ekki eingöngu merkt af fátækt og atvinnu-
leysi. Snoóinkollarnir í Austur-Evrópu eru ekki dæmigerðir
ungliðar heldur teygir nýnasisminn sig inn í hóp ungra og
velstæðra hægrimanna hvarvetna í Evrópu. Þeir ræóa uppáklæddir
á fundum það sem snoóinkollamir öskra á götum úti og lofa og
prísa það ofbeldi sem snoóinkollamir framkvæma og halda þannig
útlendingum og öómm minnihlutahópum í heljargreip óttans.
Uppgangur nýnasista í Austur-Þýskalandi
hefur verið hermdur upp á snögga samein-
ingu ríkjanna, félagsleg upplausn er mikil og
öll löggæsla í lágmarki. Kynþáttahatur í kjöl-
far atvinnuleysis hefur lengi verið staðreynd í
Evrópu og mátti sjá fyrir að það yrði ennþá
stærra vandamál í kjölfar sameiningar Þýska-
lands. Hægri öfgahópar víðast hvar hafa þó
heldur betur fengið andlitslyffingu og segja
má að fasískar tilhneigingar séu ekki lengur
feimnismál í hópum hinna betur settu. Ný
kynslóð nasista hefur klætt málstað sinn í búning hins skynsama,
raunsæja og þjóðemissinnaða og fengið fyrir þær hljómgrunn hjá
ungu fólki sem engum dytti í hug að óathuguðu máli að kenna við
fasisma. Vinnuaðferðir flokkanna sem em famir að laða til sín ungt
fólk em meira í takt við lýðræði en aðgerðir snoðinkollanna og þó að
nýnasistahópamir haft augljósa og opinskáa samúð með aðgerðum
þeirra kjósa þeir hefðbundnari leiðir til valda. „Leiðir sem munu
virkja hinn þögula kjósanda, sem í hjarta sínu samsamar sig
nýnasistum,“ sagði meðlimur breska Þjóðemisflokksins í viðtali við
þarlendan blaðamann.
Alls rakti þýska lögreglan 17 dauðsföll og meira en tvö þúsund
árásir til nýnasistahreyfingarinnar í Þýskalandi í fyrra en nýjasta
fómarlambið á þessu ári er tuttugu og tveggja ára ökumaður vinstri
sinnaðrar rokkhljómsveitar, en hann varð fyrir áras nýnasistahóps
og lést af sámm sínum nokkmm dögum seinna. Fátækt hefur aukist
mjög í Þýskalandi og Hjálparstofnun heimilislausra segir um 30.000
manns lifa á götunum og það sem af er þessum vetri haft 29 manns
frosið til dauða, ýmist á götum úti, bílastæðum eða í strætisvagna-
skýlum.
I borgar- og sveitastjómarkosningum í Þýskalandi nýlega fengu
rebúblikanar átta til níu prósent heildaratkvæða og athyglis-
verðastur þótti framgangur þeirra í Frankfurt þar sem þeir fengu tólf
UPPAFASISTAR
í UPPSVEIFLU
18
HEIMS
MYND