Heimsmynd - 01.04.1993, Síða 20

Heimsmynd - 01.04.1993, Síða 20
Efst til hœgri: Jörg Haider, leiðtogi hins hœgri sinnaða frelsisflokks í Austurríki. Efst til vinstri: Alexandra Mussolini, barnabarn hershöfð- ingjans. Neðsta mynd: David Duke, ásamt dóttur sinni. prósent allra greiddra atkvæða. Þetta er ekki síst ískyggileg niðurstaða með tilliti til þess að fái þeir yfir fimm prósent í þing- kosningum ná þeir að koma þingmönnum að. Þá gæti einnig komið upp sú staða að hvorugur stærri flokkanna, Sósíaldemókratar eða Kristilegir demókratar, gæti myndað stjórn án samstarfs við rebúblikana. Þetta er fyrsta allsherjarframboð rebúblikana en það er einnig athyglisvert að kosningaþátttaka nú var dræm. Nýjar heimildir gefa til kynna að Jean Marie Le Pen og Þjóðfylkingin í Frakklandi hafi tuttugu prósent fylgi kjósenda. Flokkurinn fór fram úr björtustu vonum fylgismanna sinna þegar hann náði ellefu prósent fylgi í kosningunum 1984 og síðan hefur fylgismönnum hans farið fjölgandi. Auk fastafylgis síns hjá óánægðum kjósendum úr lágstétt og atvinnuleysingjum á flokkurinn víst fylgi hjá snoðinkollum og öðrum kynþáttahöturum auk þeirra velstæðu ungmenna sem farin eru að verða æ meira áberandi þáttur í starfi nýnasista, en Þjóðfylkingin rekur samhliða flokksstarfinu ungliðahreyfingu sem samanstendur af þúsundum ungmenna, þar af fjölda námsmanna. Bresk fasistahreyfing námsmanna hótaði að leysa upp uppákomu þýska, andfasíska rapparans J í Goldsmith-framhaldsskólanum í nóvember en gerði ekki alvöru úr hótun sinni og tónleikamir fóru fram undir lögregluvemd. Breski þjóðernisflokkurinn bauð fram tólf fulltrúa í kosn- ingunum 1992 og kosningabaráttan kostaði alls tvær og hálfa milljón króna svo það er deginum ljósara að flokkinn skortir ekki peninga. Þó að það kunni að hljóma fáránlega í hugum einhverra óttast breskir baráttumenn gegn kynþáttafordómum í æ rikara mæli að jarðvegurinn kunni að reynast jafn frjór í efnahagsþrengingum dagsins í dag og hann var fyrir nasískan áróður í Þýskalandi árið 1930. I stað slagorða og gífuryrða gegn lituðum og minnihluta- hópum er kominn vinalegri tónn í nýnasistaboðskapinn. Tónn sem reynir að höfða til föðurlandsástar og bágborins atvinnuástands en þó meðalið sé annað er tilgangurinn sá hinn sami, að virkja atvinnu- ótta hins vinnandi manns og benda þeim sem ekki hafa vinnu á svarta sauði. Með öðrum orðum kappkosta hópamir að ala á hatri í garð erlends vinnuafls á líkan hátt og snoðinkollamir í Þýskalandi en það eru einmitt umbúðimar sem gera boðskapinn enn hættulegri en ella. „Við viljum virkja ótta og áhyggjur hins venjulega manns,“ sagði Richard Edmonds. Og líkt og hjá Hitler sem sagði hálf milljón atvinnulausra og 400.000 þúsund gyðingar, em forréttindi hvítra allsherjarlausn í Evrópu. „Ef litaðir yrðu frá að hverfa yrðu næg spítalarúm, húsnæði og atvinna fyrir alla hvíta,“ er viðkvæðið hjá nýnasistum. I grein í breska blaðinu Company um þetta efni er tekið sérstak- lega til kvenna í nýnasistahópunum og höfundurinn segir þær ekki skýla sér bak við karlpeninginn heldur vera talsmenn stefnunnar út á við. Meðal áberandi kvenna þar má nefna bamabam Mussolinis, Alexandra, en hún er virkur talsmaður fasisma á Ítalíu auk þess sem hún hrósar sér af því að vera systurdóttir Sophiu Loren og slær þannig stjörnuryki í augu ungra kjósenda. Hún er stöðugur blaðamatur og birtist lesendum á myndum sem elegant kona klædd í dýra loðfeldi og fatnað frá frægum tískuhönnuðum, hlaðin skart- gripum. Nýlega þurfti hún að hætta við opinbera heimsókn til Bretlands vegna mótmæla frá andnasistum en hægri öfgamenn þar telja það þó aðeins tímaspursmál hvenær hún verður boðin velkomin. A Spáni leggur önnur yfirstéttarkona, Carmen, á sig ómælt erfiði við að halda á loft og heiðra minningu föður síns, Francos hershöfðingja. Kynþáttahatur í Bandaríkjunum fer einnig vaxandi. Efnahags- þrengingar ásamt lélegri heilsugæslu og félagslegri aðstoð í fátækari hópum samfélagsins hefur komið harðar niður á þeim verst settu en oft áður. Líkt og í Evrópu er svar hægri öfgamanna að benda á svarta sauði og nýlegar heimildir gefa til kynna að Ku Klux Klan- hreyfingum í Bandaríkjunum hafi fjölgað um 73 frá árinu 1990 er þær voru alls 273. Hvítu, ungu fólki úr millistétt hefur fjölgað í Klan-hópunum frá því sem var og kynþáttaóeirðimar í Los Angeles í fyrra urðu áróðursvopn í höndum þeirra, sönnun þess að hvítt fólk þyrfti að lifa í stöðugum ótta við ofbeldi af hálfu svartra. David Duke, einn af æðstuprestum Klan, reyndi fyrir sér sem öldungadeildarþingmannsefni í heimafylki sínu Louisiana árið 1990. Eftir að hafa freistað þess að fanga fölnandi æsku í þágu mál- staðarins og gengist til þess undir að minnsta kosti eina andlits- lyftingu hlaut hann 44 prósent atkvæða kjósenda. Það þyrfti ekki að klingja ógnandi í eyrum nema í ljósi þess að fólki er ekki kleift að reka svona framboð í bandaríska kosningakerfinu nema það haft opinberan stuðning innan síns flokks og sterka fjárhagslega bak- hjarla. Með slíkt bákn til að styðja við bakið á sér gæti Duke hæg- lega reynt aftur og þá með betri árangri. Það er ljóst að hvort sem um er að ræða Neo nasista eða uppafas- ista er hin nýja ógn frá hægri komin til að vera í einhverri mynd og hvort sem hún er framreidd í neytendaumbúðum eða kynnt með hörðu götuofbeldi er hún grein af sama fjandsamlega meiði. En ógnin er þó sýnu meiri þegar hún er komin innundir í valdastofn- unum samfélaganna heldur en í hörðum veruleika götunnar. Við Islendingar höfum löngum hrósað okkur af því að vera víðsýn og frjálslynd og lítið ginnkeypt fyrir hverskyns öfgastefnum og kynþáttafordómum. En það segir þó ekki nema hálfa söguna því að við höfum lítið haft af öðrum kynþáttum að segja. Rasisminn laumaði sér inn í frétt af götuofbeldi í Þýskalandi þegar sagt var frá því í íslensku dagblaði að skotmörk snoðinkolla í Austur-Þýska- landi væru ekki aðeins litaðir heldur einnig fatlaðir og sam- kynhneigðir eða „kynvillingar“ eins og það var orðað í blaðinu. Þegar orðið „kynvillingur“ er notað í fúlustu alvöm í frétt um alvar- legt ofbeldi gagnvart samkynhneigðum er stutt í sömu mannfyrir- litningu og málgögn nýnasista útbreiða. Semsagt, heimilislegt of- beldi í neytendaumbúðum og kannski er ekki enn kominn nýnasistaflokkur hér vegna skorts á „svörtum“ sauðum þegar kemur að atvinnuleysi og efnahagsörðugleikum. Uppskriftin er líklega aðeins meiri kreppa og nokkrir flugvélafarmar af flóttamönnum. ■ 20 HEIMS MYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.