Heimsmynd - 01.04.1993, Qupperneq 34
Sá Malcolm barðist fyrir upplýsingu meðbræðra sinna,
sjálfsvirðingu og sjálfsábyrgð. Hann var tákn stolts
þeirra og manndóms, eins og leikarinn Ossie Davis
orðaði það. „Fyrir okkur var hann eins og geðlæknir,“
segir fyrrum borgarstjóri Atlanta, Andrew Young:
„Honum tókst að gera svarta stolta af sjálfum sér og
litarhætti sínum.“
Svartir unglingar stórborganna og fátækrahverfanna sem nú
ganga um götur í X-bolum með X-húfur vita fátt um heimsmynd
Malcolms X en þau vita flest að hann var einn fyrsti blökku-
maðurinn sem þorði að standa upp og segja hvíta manninum til
syndanna.
Malcolm X var alinn upp í göturæsinu og hann varð fómarlamb
þess. Hann þekkti skuggahliðar gettóanna betur en nokkur annar
blökkumannaleiðtogi fyrr og síðar. Hann féll fyrir morðingjahendi
1965, fómarlamb þess málstaðar sem hann glaður lét lífið fyrir.
Hann varð goðsögn með tíð og tíma og nú sem aldrei fyrr þegar
væntanleg er á markaðinn kvikmynd blökkumannsins Spike Lee
sem er um 3 klukkustundir og 21 mínúta að lengd. Myndina byggir
Lee á sjálfsævisögu Malcolms sem Alex Haley skráði. Denzel
Washington leikur Malcolm og er tilnefndur til Oskarsverðlauna
fyrir.
Þessi mynd Spike Lee er fyrsta Hollywood-kvikmyndin sem
geislar af svörtu stolti, segir Newsweek nýlega. Margir voru þó
„Síðar hataði ég hvern blóðdropa
þessa hvíta nauðgara sem rann í
æðum mínum.“
efins um- að Spike Lee gæti fangað flókna hugmyndafræði
Malcolms X á filmu. Hann var hreinlega talinn of borgaralega
þenkjandi og upptekinn af sjálfum sér til að geta birt trúverðuga
mynd af því mikilmenni sem mönnum ber nú sarnan um að
Malcolm X hafi verið.
í tvö ár hefur Lee unnið að myndinni. Alex Haley sem skrifaði
ævisöguna með Malcolm sá myndina rétt áður en hann dó og sagði:
Malcolm hefði þótt vænt um þessa útgáfu.
Lee leiðir getgátur að því í lok myndarinnar að um samsæri hafi
verið að ræða þegar Malcolm X var myrtur. Hann var skotinn niður
af þrernur mönnum í Harlem sunnudaginn 21. febrúar 1965 þar
sem hann var að flytja ræðu. Þeir sem hafa lesið ævisögu Malcolms
vita að hann var viðbúinn. Samsæriskenning Lee kemur þeim ekki
á óvart. Malcolm hafði verið úthýst úr þeirri reglu múhameðstrúar-
manna sem hann hafði átt einna stærstan þátt í að byggja upp en
það var fyrrverandi lærimeistari hans, sem Malcolm tilbað, leiðtogi
múslima Elijah Muhammad, sem stóð fyrir því. Malcolm vissi að
Elijah vildi hann feigan og Lee kemst að því að alríkislögreglunni
hafi verið kunnugt um samsærið. En Lee er ekki að leika sama
leikinn og Oliver Stone í myndinni JFK. Honum er ekkert
kappsmál að sanna að um samsæri hafi verið að ræða þegar
Malcolm var myrtur. Líf hans var merkilegra en dauðinn. Þau
skeið sem Malcolm gekk í gegnum á þroskaferli sínum heilla Lee
sem flesta aðra.
En hvað er það sem heillar fólk við Malcolm X? Þeir sem til
þekkja eru ekki í nokkrum vafa um mikilvægi lífshlaups þessa
merka manns. Margir í hópi hvítra eru ekki sérlega vel upplýstir
urn Malcolm X og mörgum svörtum stendur einnig á sama um hver
hann var og hvað hann stóð fyrir.
Þó var þannig komið fyrir Malcolm áður en hann dó að margir
hinna meðvituðu í hópi hvítra óttuðust um hann á þeirri forsendu
að boðskapur hans ætti ekki síður erindi til þeirra hvítu en svörtu.
En 84 af hundraði ungra blökkumanna álíta Malcolm X hetju
samkvæmt nýlegri skoðanakönnun og telja hann næstan á eftir
Martin Luther King. En þeir eru líka til sem telja að Malcolm hafi
haft meira til síns máls en Martin Luther King og eigi meira erindi
í samtímanum en King. En til að skilja Malcolm, segja svartir
fræðimenn, er nauðsynlegt að skilja þá mörgu ólíku þætti sem
Malcolm stóð fyrir.
Malcolm X fékk á sig mörg viðurnefni. Hann var fæddur
Malcolm Little; uppnefndur Red vegna hárlitar síns (móðurafi hans
var hvítur), gekk undir nafninu Satan í fangelsi og hlaut síðar
nafnið X þegar hann tók múhameðstrú. Skömmu áður en
Malcolm var úthýst úr reglu þeirri sem hann tilheyrði kom hann á
fund blaðamannsins M.S. Handler hjá The New York Times og
hann lýsir heimsókninni svo: „Konan mín hafði aldrei hitt
Malcolm fyrr. Hún bar okkur kaffi og kökur. Malcolm ræddi málin
á sinn kurteisa og yfirvegaða hátt sem hans var von og vísa þegar
hann talaði við fólk utan ræðupúltsins. Það var augljóst að konan
mín var heilluð af Malcolm.“ Og Handler sem hafði fylgst með
Malcolnr undanfarin ár, en þetta var skömmu fyrir dauða hans,
lýsir því ennfremur að líkast hafi verið á þéssum fundi að Malcolm
hafi verið að reyna að tjá sig en stolt hans og reisn hafi meinað
honum að segja það upphátt. Malcolm vissi um sverðið sem hékk
yfir höfði hans en hann brosti bara á sinn sérstaka hátt. „Þegar hann
var farinn var konan mín þungt hugsi og sagði svo: Mér finnst ég
hafa setið að tedrykkju með svörtu pardusdýri.“ Handler segist
hafa brugðið við lýsinguna. En honum fannst hún við hæfi. Svarta
pardusdýrið er aristókrat í dýraríkinu. Sem maður hafði Malcolm X
líkamsbyggingu, reisn og sjálfstraust eins og sá sem er fæddur
aðalsmaður. Af honum stafaði einnig ógn svarta pardusdýrsins en
af engum samtímamanni stóð hvíta manninum eins mikill stuggur
og af Malcolm X vegna þess að í honurn skynjaði hvíti maðurinn
þann fjandmann sem aldrei yrði hægt að kaupa, múta eða ná á sitt
band, hugsjónamann fyrir baráttu svartra í bandarísku þjóðfélagi
frernur en blökkumannaleiðtoga sem vildi leiða svarta og hvíta
saman.
Handler lýsir fyrstu kynnum þeirra Malcolms í mars 1963,
tveimur árum fyrir dauða hans. Malcolm var þá orðinn var um sig
og skammt í að hann yrði fórnarlamb samsærisins. Malcolm
viðraði ekki aðeins skoðanir sínar á hvíta manninum við Handler á
þessum fundi, „án þess að láta mér finnast ég sekur eða ábyrgur
fyrir hegðun kynbræðra minna í aldanna rás. Hann talaði almennt
...“ Og hann talaði einnig um hugarfar blakkra, um það hvemig
menn skyldu átta sig á því að blökkumenn þyrðu sjaldnast að segja
raunverulegan hug sinn í garð hvíta mannsins. Eftir þennan fund
segist blaðamaðurinn hafa áttað sig á því að opinber persóna
Malcolms var allt öðru vísi heldur en sá Malcolm sem talaði við
fólk í einrúmi. En afdráttarlausar skoðanir Malcolms á hvíta mann-
inum breyttust mjög þegar samband hans og Elijah Muhammad
slitnaði. Kenningar Muhammeds gengu út á að hvíti maðurinn
væri djöfullinn sjálfur. Þegar hér var komið sögu var Malcolm
einnig orðinn það víðförull utan Bandaríkjanna sem innan og hann
hafði kynnst nægilega mörgu hvítu fólki vel til að átta sig á því
ofstæki sem skoðanir hans höfðu mótast af. Hann hafði einnig áttað
34
HEIMS
MYND