Heimsmynd - 01.04.1993, Blaðsíða 35
sig á því eftir heimsóknir sínar til Mekka og arabaríkja að hann átti
enn margt ólært um múhameðstrú en byssukúlur morðingja komu
í veg fyrir að umheimurinn fengi að njóta hins nýja Malcolms og
hógværari afstöðu hans í garð tengsla hvítra og svartra.
alcolm Little fæddist í Omaha í Nebraskaríki 19.
maí árið 1925. Hann var sjöunda bam föður síns,
sem átti þrjú böm frá fyrra hjónabandi. Faðir hans
Earl Little var baptistaprestur, stór og mikill vexti,
bleksvartur á lit. Móðir hans Louise var fædd í
Grenada í Vestur-Indíum en faðir hennar var hvítur
maður sem hafði nauðgað móður hennar. Hár
hennar var slétt og hún hafði ljóst hörund. Malcolm var bronslitur
á hörund með rauðleitt hár og sagðist sjálfur hafa verið nægilega
illa upplýstur til að gangast upp í því að vera ekki alveg svartur sem
unglingur. „Síðar hataði ég hvern blóðdropa þessa hvíta nauðgara
sem rann í æðum mínum.“
Þegar Louise Little gekk með Malcolm bar hóp Ku Klux Klan-
manna að heimili þeirra í Omaha nótt eina um miðjan vetur. Þeir
umkringdu húsið, vopnaðir rifflum, og öskruðu að húsbóndanum
að sýna sig fyrir utan. Louise kom í dyragættina og það fór ekki á
milli mála að hún var komin langt á leið. Hún sagðist vera ein í
húsinu ásamt þremur litlum börnum, rnaður hennar væri í
Milwaukee að predika. Ku Klux
Klan-mennirnir æptu að þungaðri
konunni ókvæðisorðum og hótunum
um að þau yrðu að hypja sig á brott
úr þessum bæ góðra, hvítra kristinna
manna. Reiði þeirra beindist að Earl
Little sem var seinþreyttur að predika
aðskilnað hvítra og svartra en hann
tilheyrði samtökum Markúsar Arel-
íusar Garveys sem vildu stuðla að
því að bandarískir blökkumenn
flyttu aftur til Afríku. Þessi hópur
áleit að blökkumenn gætu aldrei
blómstrað í Bandaríkjunum.
Earl Little varð reiður þegar hann
frétti af þessari næturheimsókn.
„Hann sagði móður minni að þau
myndu flytja eftir að ég væri fæddur.
Ég veit ekki af hverju hann vildi fara
burt. Hann var ekki einn þessara
hræddu negra,“ sagði Malcolm. Earl
Little var frá Georgíu. Fjórir af sex
bræðrum hans höfðu orðið ofbeldi að
bráð en þrír þeirra voru myrtir af
hvíta manninum, einn þeirra var
hengdur. Það átti einnig fyrir Earl að
liggja að vera drepinn á þennan hátt.
Sjálfan grunaði Malcolm að hann
yrði einnig myrtur.
Little-fjölskyldan flutti næst til
Lansing í Michigan, þar sem faðir
Malcolms keypti hús og var fljótlega
farinn að predika boðskap Garveys í
nærliggjandi kirkjum baptista. Hann
hafði lagt til hliðar til að geta fest
kaup á verslun. En þýlyndir negrar í
anda, sem Malcolm líkti við Tómas
frænda úr samnefndri skáldsögu H.
DOPSALI, DOLGUR OG
TUGTHÚSLIMUR
Malcolm (Denzel
Washington) klœddur að
hœtti harðjaxla á upphafs-
árum sínum í Harlem. Hann
var í sjö ár ífangelsi og þar
hófust kaflaskipti í lífi hans.
Stundum las hann ífimmtán
klukkustundir samfleytt. A
neðstu myndinni eru Delroy
Lindo og Denzel
Washington í hlutverkum
Malcolms og læriföður hans
í glœpum Archie.