Heimsmynd - 01.04.1993, Page 36

Heimsmynd - 01.04.1993, Page 36
MALCOLM X Músliminn Malcolm (Denzel Washington) biður til Allah í Musteri 7. Félagatalan í samtökum svartra múslima frá því að Malcolm gekk í samtökin og þar til honum var úthýst óx úr 400 hrœðum upp í 40 þúsund manns og musteri risu í öllum ríkjum Bandaríkjanna. húsinu og voru nú á flótta. Húsið stóð í ljósum logum og fjölskyldan rétt náði að komast út, móðir Malcolms með nýfædda dóttur í fanginu, áður en þakið féll. „Við stóðum grátandi á nær- klæðunum fyrir utan ásamt slökkviliðsmönnum og lögreglu og horfðum á heimili okkar verða eldinum að bráð.“ I kjölfarið var faðir Malcolms kallaður í yfirheyrslu til lögreglunnar vegna byssunnar sem hann hafði notað til að hleypa af á eftir brennuvörgunum. Og lögreglan kom iðulega við á heimili þeirra til að leita að þessari byssu. Foreldrum hans kom ekki vel saman. Hún var betur menntuð en hann, sagði Malcolm síðar, og hann hefur átt bágt með að þola að hún leiðrétti hann. Stundum barði Earl Louise og jafnvel bömin líka en hann lagði aldrei hendur á Malcolm. „Faðir minn, eins mikil og andúð hans á hvíta manninum var, var einnig smitaður af fordómunum og hélt mest upp á mig af því að hömnd mitt var ljósara en hinna bamanna.“ Blökkumennirnir í Lansing voru afar illa settir þegar Malcolm var að alast upp. Misskilin stéttvísi þeirra var meðal annars fólgin í því að mati Malcolms að stæra sig af því að vera næstum meðteknir í samfélag hvítra. Það var litið upp til þeirra sem voru þjónar í fínasta klúbbi hvíta mannsins eða burstuðu skó hans. Þeir negrar þóttu hafa náð langt í lífinu. Þennan hóp lærði Malcolm með tíð og tíma að fyrirlíta. Little-fjölskyldan var fátæk en samt betur sett en margir aðrir því hún ræktaði grænmetið sitt sjálf. Þegar Malcolm var sex ára var faðir hans myrtur. Malcolm minnist spennunnar þetta síðdegi árið 1931. Ljölskyldan hafði orðið fyrir hótunum áður. Malcolm var að koma heim ásamt eldri systkinum sínum. Foreldrar hans voru að rífast og faðir hans skipaði móður hans að sjóða kanínu, sem hann hafði afhausað með berum höndum svo nautsterkur sem hann var. Earl Little fór út og skellti á eftir sér hurðinni. Malcolm horfði á eftir honum ganga upp veginn. Allt í einu tók Louise á rás og hljóp grátandi út á eftir honum. Hann sneri sér þá við og veifaði til hennar en hélt áfram ferð sinni. Hún var grátandi og neri hönd- unum í svuntuna sína. Um nóttina vaknaði Malcolm við hávaða. Lögreglan var komin í húsið og móðir hans fór með þeim á sjúkrahúsið til að bera kennsl á lík Earls. Höfuðkúpan hafði lagst saman öðru megin og líkami hans var klofinn í tvennt. Það var augljóst að hann hafði orðið fyrir áras og hafði verið lagður á brautarteina þar sem keyrt var yfir hann í kjölfarið. Ekkjan stóð uppi 34 ára gömul með átta böm og enga fyrir- vinnu. Þau fengu aðeins hluta tryggingarinnar greidda sem Earl hafði verið svo forsjáll að kaupa. Eitthvað entist hún en Louise Little neyddist brátt til að kaupa út á krít. Hún gekk í alls konar störf, þreif heimili hvítra og saumaði fatnað, þar til fólk komst að því hvers ekkja hún var. Þá missti hún vinnuna. Loks þurftu þau að þiggja styrk frá bæjaryfirvöldum. Móðirin var stolt og leiðin niður á við erfið. Kreppan mikla reið yfir og árið 1934 var sem enginn hefði nóg að bíta og brenna. Stundum voru böm Louise Little svo LEIÐTOGINN MALCOLM Hann hafði einstaka hœfileika til að ná tilfólks, missti aldrei stjórn á sér opinberlega og hafði til að bera persónutöfra hins sanna leiðtoga. Washington í hlutverki Malcolms. Beecher Stowe, breiddu út sögur til hvíta mannsins um róttækar skoðanir Earls Little. Og nótt eina árið 1929 minnist Malcolm þess að hafa vaknað við mikil læti, byssuskot, reyk og loga. Faðir hans hafði öskrað á eftir tveimur hvítum mönnum sem höfðu kveikt í HEIMS 36 MYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.