Heimsmynd - 01.04.1993, Side 47

Heimsmynd - 01.04.1993, Side 47
HEIMS 47 MYND ,,Er það sonur minn sem tekur svona hrikalega á við æfingamar?“ Eg geng síðan inn í æfinga- salinn og sé hann hlammast niður á bekk og augun eru starandi. Eg hljóp fram og kallaði á hjálp og þegar ég kem til baka liggur hann í gólfinu og eins og hristist allur, lfkt og hann sé með krampa. Síðan varð hann hreyfingar- laus.“ „Ég heyrði hann segja: „Ég held að það sé að líða yfir mig, strákar,“ segir Jóhann Möller. „Þegar ég kom inn í salinn sá ég hvar hann féll síðan niður að bekknum. Mér fannst þá strax að þetta væri eitthvað meira en venju- légt yfirlið. Ég byrjaði strax á því að losa um æfingabeltið og vafning um hnésbætur. Ég hringdi síðan á sjúkrabíl en breytti strax þeirri pöntun og kallaði á hjartabíl. Ég fór strax að reyna hjartahnoð, munnöndun og aðrar lífg- unartilraunir þegar bíllinn kom fengum við aðstoð við það. Það var reynt að gera allt sem í mannlegu valdi stóð. Það var ekki öfundsvert verk að reyna hjartahnoð á manni með jafn sveran brjóst- kassa. Ég fann að þetta var búið áður en sjúkrabíllinn kom. Það má eiginlega segja að hann hafi dáið í höndunum á mér.“ Lífgunartilraunir báru engan árangur. Þegar komið var á spítalann skömmu eftir klukkan þrjú var Jón Páll úrskurðaður látinn. Við krufningu kom í ljós að banameinið var kransæðastífla.“ Missir Jóhanns er mikill. Fyrir aðeins um ári lést sonur Jóhanns og meðeigandi í líkamsræktarstöðinni og nú Jón Páll Sigmarsson besti vinur þeirra beggja. Sigmar Jónsson er orðinn meðeigandi í líkamsræktarstöð aðeins níu ára gamall. Það voru alls um eitt þúsund manns viðstaddir útför Jóns Páls frá Hallgrímskirkju. I þeim hópi voru vinir, ættingj- ar og félagar Jóns úr íþróttunum heima og erlendis. Ragnheiður Jónína sagði frá því að eftir jarðarförina tóku í höndina á henni þekkt útigangshjón úr Reykja- vík og vottuðu henni samúð sína. Hún sagði við þau, hálf hissa: „Ég vissi ekki að þið hefðuð þekkt Jón Pál.“ Þau svöruðu að bragði. „Jú, elskan mín. Hann henti okkur svo oft út af Borginni í gamla daga.“ Öll þjóðin átti hlutdeild í Síðasta myndin sem var tekin afJóni Páli tveimur dögum áður en hann lést. Ragnar Axelsson Ijósmyndari og œskuvinur Jóns Páls tók myndina. þessum frægasta íþróttamanni íslendinga. Eftir á talar móðir hans þó um tómleikann. í kringum andlátið og jarðarförina var stöðugur straumur af fólki á heimili hennar í Mosfellsbænum, það bárust sjötíu blómvendir fyrstu tvo dagana og ógrynni af samúðarkortum frá íslandi og erlendis frá. Þá var hún dofin og ófær um að horfast í Ragnheiður Jónína Sverrisdóttir, fyrrverandi samhýliskona og barns- móðir Jóns Páls. Saman áttu þau soninn Sigmar Frey, sem er níu ára. Heli Okkomen, var unnusta Jóns Páls þegar hann lést. Þau kynntust í Finnlandi fyrir aðeins um ári. augu við áfallið. Þegar það loksins ríður yfir kemur enginn. Aðeins nístandi þögnin og tómleikinn. „Ég finn ekki enn fyrir því að hann sé farinn fyrir fullt og allt. Mér finnst frekar eins og hann sé erlendis. Að ég megi eiga von á að heyra hann ganga inn um útidymar og kalla á mig eins og áður.“ ■
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.