Heimsmynd - 01.04.1993, Síða 60
KARÓLÍNA PRINSESSA AF WALES
DÍANA PRINSESSA AF WALES
Einstœð prinsessa með eitt barn, skilin að borði og
sæng,föl ogfeit með siðgœðið milli tanna pressunnar,
bendluð við söngvara, en með þjóðina við bakið og
stefndi að því að verða krýnd drottning.
Einstœð prinsessa með tvö börn, skilin að borði og
sœng,föl og mögur með siðgœðið milli tanna press-
unnar, bendluð við bílstjóra, en með þjóðina við bakið
og stefnir að því að verða krýnd drottning.
Karólína af Brúnsvík (1768 - 1821)
HRYGGÐARPRINSESSAN
Öðlast Díana þann titil líka?
"W" "W"armsaga þessara tveggja prinsessa af
I Wales hefst hjá eiginmönnum
1 þeirra. Það er alltaf gott að taka sök-
.X. Aina, pakka henni inn og senda
þangað sem hún á heima.
Tillitslausir, kaldlyndir, tilfinningalausir,
grimmir. Þannig lýsir Díana Karli og
mannkynssagan Georg. Um leið og þeir
sýna báðir dómgreindarleysi sem jaðrar við
fávitahátt við val á eiginkonu, þá fer sögum
af sérgáfum þeirra. Karl er hálfpipraður,
EFTIR AUÐI HARALDS
uppþomaður bókaormur sem unir sér bezt
við gmfl í fræðibókum og þá ætíð með
sígilda tónlist á fóninum. Georg er púðraður
fagurkeri, listunnandi með viðkvæmar taug-
ar, hneigður til móðursýkislegra geðshrær-
inga og aldrei með lykkjufall á silkisokk-
unum.
Skraufþurri skræðugruflarinn, orðinn
roskinn í hugarfari ef ekki að ámm, kýs sér
bamunga diskóhnátu sem les Barböm
Cartland og þegar hún er búin með heildar-
verk Barböm, byrjar hún aftur á byrjuninni.
Díönu finnst gaman að dansa, Karli finnst
gaman að íhuga.
Ilmbomi fagurkerinn með næmu taug-
amar velur sér þýzka hlussu sem er lítt geftn
fyrir líkamsþvott og hefur gaman að grófum
bröndurum. Eða, eins og franskur sendiherra
sagði eftir að hafa hitt hana: Myndarlegur
piltur í pilsi.
Þeir frændur erfðaprinsamir kvæntust
sinn af hvorri ástæðunni. Báðir, að vísu,
HEIMS
MYND