Heimsmynd - 01.04.1993, Side 63
risavaxið stúlkubam. Þá hafði prinsinn skil-
að skyldu sinni, ríkisarfa, en Karólína hafði
reynst léleg fjáröflunarleið og upp frá því
kom hann gagngert illa fram við hana, heima
sem heiman. Það er hér, sem grimmdin tekur
við af tillitsleysinu. Móðir hans drottningin
og hann völdu bamfóstrur ungu prinsess-
unnar og nefndu það ekki einu sinni við
Karólínu, hvað þá höfðu samráð við hana.
Bamið var tekið af henni nýfætt, komið fyrir
í einkaíbúð sinni í Carlton House og til-
kynnt, að móðir hennar ætti engin afskipti að
hafa af henni. Georg lék umhyggjusaman
föður, sem sýndi ekki meiri umhyggju en
svo, að það tók hann meira en ár að upp-
götva að Karólína stalst til að sinna baminu.
Karólínu hundleiddist. Hún var vanrækt,
bæði sem eiginkona og manneskja og eins
og var útskýrt fyrir henni hvað eftir annað:
Það em takmörk fyrir hvað kóngafólk getur
gert sér til afþreyingar. Hún tók mark á því,
annað en Díana, sem endurtekið var gagn-
rýnd fyrir diskóferðir með vafasömum
vinum á meðan Karl sat heima og las fom-
sögumar.
I byrjun naut Karólína öðru hverju heim-
sókna mágkvenna sinna. Þær voru sex að
tölu og ftmm í föðurhúsum, því Georg
konungur hafði trú á að senda syni sína sem
lengst burtu, en halda dætmnum ógiftum
heima. Charlotta drottning hafði verið á móti
ráðahagnum frá upphafi, henni var meinilla
við mágkonu sína, móður Karólínu, og
meinið flutti hún fyrirhafnarlítið yfir á
tengdadóttur sína. Fljótlega hurfu líka mág-
konumar og þá húkti Karólína ein í drag-
súgnum í Carlton House.
En hún var ekki af baki dottin. Hún var
aldrei af baki dottin, en sjaldan varð henni
snilld á í viðureign sinni við eiginmanninn
og brezku krúnuna. Kvöld eitt datt henni í
hug að skreppa í leikhús. Maður hennar var
að vanda úti að spila og drekka og sinna
hjákonum, svo það kom ekkert til greina að
spyrja hann hvort hann vildi koma með.
Þrammaði Karólína með föruneyti inn í
stúku sína í leikhúsinu og viti menn, gestir
risu úr sætum og hylltu hana. Þetta kom
henni þægilega á óvart.
Þjóðin var ekki búinn að gleyma henni,
þótt tengdafjölskyldan gerði allt hvað hún
gat til þess. Þjóðin tók eftir, að þau hjón
sáust aldrei saman, rétt eins og þjóðin tók
eftir því þegar Karl og Díana tóku að sjást
sitt í hvoru lagi og þá sjaldan að þau sáust
saman, hversu ruddalegur Karl var við hana.
°g þá, eins og nú, tók þjóðin málstað
eiginkonunnar sem sætti illri meðferð.
Leikhúsferðir Karólínu urðu ekki fleiri í
bili. Georg frétti af lýðhylli hennar. Það
fannst honum jaðra við uppreisn gegn sér,
tilraun til að steypa honum af þeim stóli sem
hann var ekki enn kominn í. Hann bannaði
leikhúsferðir.
Kafólína snéri á hann. Hún bað um hest-
vagn sinn og fór út að aka með dóttur
sína. Það spurðist, að krónprins-
essan æki um garðinn á
ákveðnum tíma með litlu
prinsessuna með ljósu
lokkana, og sjá, al-
þýðan streymdi að
og hyllti þær.
Georg þoldi það
ekki heldur. Hann
bannaði
ökuferðir.
Karólína kleif
þá upp á loft og
veifaði fólkinu út
urn glugga bama-
herbergisins með
dóttur sína í fang-
inu. Enn meiri vin-
sældir, enn meiri reiði
Georgs. Nú lagði hann
blátt bann við að Karó-
lína kæmi inn í íbúð bams-
ins og að þær mæðgur hittust
yfirhöfuð. Eftir að Karólína
sendi konungi bænabréf um
málið, neyddist Georg til að
slaka á reglunum: Karólína
fékk að sjá dóttur sína „í
hálftíma á dag. fyrir eða
eftir viðrun“, en aldrei skyldu færri en tveir
verðir vera viðstaddir.
Karólínu hefur verið brigslað urn litlar til-
finningar í garð dóttur sinnar. Færri hafa
spurt, hvemig tilfinningar geta enzt í tuttugu
ár hjá móður sem fær ekki að halda eðlilegu
sambandi við bam sitt. Georg úrskurðaði
hana óhæfa og siðspillandi móður án þess að
svo mikið sem fimm mínútna reynsla
kæmist á hana í því hlutverki. Ef einhver var
siðspilltur, þá var það Georg sjálfur.
Þetta reyndi Karl ekki við Díönu.
Kannski vegna þess hversu áberandi kær-
leiksrík móðir hún var og hann ekkert
áberandi góður faðir, að minnsta kosti ekki
svo að stingi í augun, og kannski vegna þess
að hann átti erfiðara um vik á þessum
síðustú og upplýstu tímum. Díana átti líka
eyra drottningar á meðan Karólína átti engan
að nema Georg konung, málsvara sem var
afskaplega upp og niður og á endanum sér
og öðrum gagnslaus.
Hingað komið sögu höfðu Napóleon-
stríðin geysað árum saman. Stríð kosta.
Enska þjóðin var mergsogin, það urðu
uppskerubrestir, fólk svalt. A sama tíma
63
eyddi krónprinsinn hömlulaust og vantaði
sífellt meiri peninga til að leika sér fyrir.
Tómstundaiðjur hans voru listsöfnun, fjár-
hættuspil, nýjar innréttingar í húsin sem
hann átti fyrir og bygging nýrra húsa.
Stundum komst hann ekki leiðar
sinnar af því að múgurinn
gerði aðsúg að vagni hans.
Það er því skiljanlegt, að
vinsældir Karólínu,
sem hann hataði
innilega, færu fyrir
brjóstið á honum.
Hann byrjaði
fljótt að reyna að
fá skilnað frá
henni. Kóngur
faðir hans tók
ekki slíkt í mál á
meðan honum
entist heilsa.
Georg konungur,
segja læknar í dag,
þjáðist líklega af pro-
phyria, arfgengum
efnaskiptasjúkdómi sem
þeir hafa rakið alla leiðina
aftur til Maríu Skotadrottningar
(þeir hafa eitthvað hikað
við að rekja hann í hina
áttina, fram á okkar dag).
Sjúkdómurinn veldur
kvölum innvortis, al-
mennri veiklun, tauga-
veiklun, oft lömun og stundum geðveiki.
Georg konungur hafði öll einkennin. Eftir
örfá köst með bata á milli, hvarf hann í
andlegt myrkur, án þess þó að sýna þá
sómatilfinningu að deyja. Geðveikir kóngar
eru pínlegri en aðrir veilir menn. Upphaf
endalokanna var dálítið hjákátlegt: Hann
greip tengdadóttur sína Karólínu, skellti
henni á næsta sófa og sjálfum sér ofan á.
Það bjargaði heiðri hennar, að sófinn var
baklaus og hún gat velt sér út af hinum
megin og komist undan á flótta.
Þegar sýnt var að Georg konungur ætti
ekki afturkvæmt til andlegrar heilsu, var
Georg prins settur ríkisstjómandi. Fyrsta
embættisverk hans var að hækka sjálfan sig
í tign í hemum og hið næsta að setja af stað
rannsókn á siðferði Karólínu. Hann vantaði
sönnunargögn fyrir framhjáhaldi hennar, en
það hefði verið haldbær skilnaðarorsök.
Karólína lagði honum vopnin í hendur,
það verður að segjast. Hún hafði þá fengið
það frelsi, að hún var laus úr prísundinni í
Carlton House og losnaði líka við lafði
Jersey úr návist sinni. Nú bjó hún í litlu húsi
nálægt Blackheath ásamt hirðmeyjum að
eigin vali. Fjölskyldulaus til langs tíma og
BARTOLOMEO PERGAMI
Karólína kynntist honum á
Sikiley. Hann þóttist vera
barón en var réttur og sléttur
svikahrappur.
HEIMS
MYND