Heimsmynd - 01.04.1993, Side 86

Heimsmynd - 01.04.1993, Side 86
Það á greinilega vel við hana að vera í sviðsljósinu og hver aðdáandi af yngstu kynslóðinni sem óskar henni til hamingju fær að launum þakklæti og geislandi bros. En er alltaf svona hlýlegt að vera í sviðsljósinu? „Sumt fólk heldur að frægðin breyti manni og hikar við að hafa samband. Hugsar sem svo, ja, hún hlýtur að vera upptekin í kvöld. Það finnst mér neikvætt. Ég gef öllum sjens og vil að aðrir gefi mér sjens. Mér leiðist þegar fólk reynir að hugsa fyrir mig. Ég er ofboðslega sjálfstæð." Hún pikkar með gafflinum í böku með rækjum sem hún fékk sér með kaffinu. Hún verður reið á svipinn þegar hún talar um kjaftaganginn sem tilheyrir jú þessu öllu saman. „Það ganga auðvitað alltaf einhverjar kjaftasögur. Ein var þannig að ég átti að vera langt leiddur dópisti. Þegar ég heyri svona hringi ég bara í viðkomandi og segi: Hvað meinarðu með því að segja svona. Ein stelpan sem ég hringdi í varð alveg eins og kúkur og skammaðist sín ofboðslega mikið. Ég þoli þetta ekki og mér er sama hvað vakir fyrir svona fólki. Er það ekki bara öfund og illgimi? Stelpur eru almennt neikvæðari í garð annarra stelpna en strákar. Einu sinni sagði ég í útvarpsviðtali að stelpur væm miklu leiðinlegri en strákar og það var ægileg móðgun sem ég er enn minnt á með reglulegu millibili. Ég meinti þetta ekki bókstaflega en að þessu leyti þá finnst mér strákar miklu heilbrigðari félagar. „Það er svo skrítið að öll þessi athygli hefur komið af sjálfu sér upp í hendumar á mér.“ Hún hikar dálitla stund. „Ég hugsa að alla langi innst inni til að prófa að vera í sviðsljós- inu. En í gær þegar ég labbaði upp Laugaveginn varð ég óþægilega vör við að fólk fylgd- ist með mér. Þegar ég þurfti síðan að gefa um tuttugu eiginhandaráritanir var það furðuleg tilfinning. Mér fannst ég þá verða óþarflega mikið meðvituð um að ég væri ekkert merki- leg og ætti þetta ekki skilið.“ Og hún fær hlátur í augun þegar hún bætir við: „Það eru allir svo góðir við mig. Ég vil bara skila þakklæti frá mér fyrir það.“ Hún segist hafa fullt af áhugamálum fyrir utan tónlistina, bæði söng og dans og svo er hún mikill dýravinur. „En ég á bara eitt dýr núna. Ofboðslega feitan kött sem er í laginu eins og mörgæs. Ég átti páfagauk en hann er dáinn fyrir stuttu.“ Hún og sambýlismaður hennar Júlíus Kemp voru líka að festa kaup á íbúð við Grundarstíg sem þau eru í óða önn að standsetja. „Þegar við fórum að skoða hana fannst mér hún ekkert sérstök, en Júlli keypti hana nú samt.“ íbúðin er stór og gamaldags, há til loftsins og víð til veggja og þau hafa lokið við að mála hana hvíta og bláa. „Veggimir á ganginum eru signubláir en annars er hún hvít. „Við ætlum líka að láta byggja stórar svalir svo að við getum spókað okkur úti á sumrin þegar sólin skín eftir hádegið.“ Hún segist ekki hafa neinar áhyggjur af því að vera að binda sig við íbúðarkaup. „Mér er alveg sama þó að ég þurfi að leggja eitthvað á mig og sleppa því að skemmta mér. Ég verð bara guðslifandi fegin ef eitthvað er. Það er alltaf hægt að redda peningum og reikningum hef ég ekki áhyggjur af.“ Það var einmitt Júlíus sem leikstýrði kvikmyndinni Veggfóður - erótísk ástarsaga þar sem hún fór með eitt aðalhlutverkið: „Við Júlli erum búin að vera vinir í mörg ár. Ég sá hann fyrst á balli í Menntaskólanum við Sund og síðan hittumst við oft í partíum eftir það. En við byrjuðum ekki að vera saman fyrr en eftir myndina. Það er gott að hafa svipuð áhugamál og sá sem maður er með og við höfum það fínt saman. Það halda margir að ég hafi verið með mörgum strákum en það er ekki rétt. Ég trúi ekki á einnar nætur ævintýri og hef alltaf lifað samkvæmt því enda er slíkt orðið stórhættulegt nú á dögum. Er það ekki annars? segir hún og lítur á mig. Fer síðan að hlæja. Hláturinn er aldrei langt undan. „Ég er mjög vandfýsin, eiginlega smámunasöm þegar kemur að karlmönnum og sambandið við Júlla er fyrsta alvarlega sambandið sem ég hef verið í. Júlli hefur alveg sérstakan og meiriháttar sjarma við sig. Hann er bæði æðislega sætur og skemmtilegur en svo er hann líka dulur og yfirvegaður karakter. Þegar Júlli hringdi í mig frá London og bað mig að vera með í myndinni varð ég alveg æðislega glöð og ég get ekki almennilega lýst til- finningunni að fá að vera með. Mér fannst öll vinnan við myndina mjög skemmtileg og hinir leikaramir frábærir. Viðtökumar voru líka mikill sigur fyrir ungt fólk sem er að gera góða hluti. Myndin var djörf að mörgu leyti og flestir þurftu að koma fram berir í ein- /jverjum atriðum myndarinnar. Fyrst eftir að myndin var sýnd var ekki óalgengt að ég værí spurð hvort ég hefði ekki verið feimin við að sýna á mér brjóstin. Einu sinni var ég stödd í félagsmiðstöð úti í bæ þegar einhverjir töffarar ruddust í veg fyrir mig og hnykl- uðu vöðvíína. Svo sögðu þeir: Sýndu okkur brjóstin, elskan,“ og nú hlær hún dátt við minninguna. Hún er aðehi.s tvítug og flestir þeirra sem stóðu að gerð myndarinnar eru lítið eldri. Fólk í kringum tv/tugt virðist vera ófeimnara við að hrinda hugmyndum sínum í fram- 86 » trúi ekki á einnar nætur œvintýri“ HEIMS MYND
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.