Heimsmynd - 01.04.1993, Side 90

Heimsmynd - 01.04.1993, Side 90
 » h„ bergið mitt og segir mér að mamma sé dáin og farin upp til guðs. Eg fór að gráta og svaf í rúminu hjá ömmu þá um nóttina. Það er svo skrítið að eftir að ég gat sofnað þessa nótt svaf ég betur en nokkru sinni fyrr og mér leið svo vel að ég vaknaði brosandi um morguninn. Daginn eftir fór ég til vinkonu minnar til að segja henni að mamma væri dáin. Þegar ég hafði sagt henni frá því fór ég að hlæja og fékk eiginlega hláturkrampa og þurfti að leggjast í gólfið og halda um magann. Hún fór inn til mömmu sinnar og sagði henni frá þessu og þær komu báðar inn í stofuna og störðu á mig alveg furðulostnar. Ég á mjög erfitt með að horfa upp á fólk gráta og á þessum tíma sneri ég mér undan ef ég sá ömmu eða pabba gráta út af mömmu. Ég reyndi líka að hugga og virðast sterk, kannski sterkari en ég var því að ég var bara tíu ára gömul. En ég grét mikið í einrúmi, fannst betra að hafa það þannig. Ég held að þetta hafi verið miklu erfiðara fyrir bróður minn því að hann reyndi svo mikið að vera harður af sér að hann gat aldrei grátið. Hvorki þá eða seinna. Það var ekki bara áfallið sjálft sem var erfitt heldur geta böm verið ákaflega kvikindisleg við hvert annað þegar eitthvað bjátar á. Ég varð fyrir barðinu á því og á ekki góðar minningar frá þessum ámm. Ég fékk vissa samúð í skólanum frá kennurunum og þau þoldu það ekki. Á þessum tíma var ég líka að syngja í íslensku óper- unni svo að öfund hefur sjálfsagt spilað mikið inn í. Ég tók þetta mjög nærri mér en lét það aldrei buga mig svo að ég stend jafn sterk á eftir. Þegar ég var orðin ungling- ur komu til mín stelpur sem tóku þátt í þessu og báðu mig fyrirgefn- ingar. Þær voru þá orðnar aðeins eldri og vitrari. Ég fór aldrei að leiðinu hennar mömmu á þessum árum. Treysti mér ekki til þess. Ég kom þar fyrst í fyrra en þá var ég að keyra framhjá kirkju- garðinum og ákvað með sjálfri mér að láta verða af því. Ég fór ein að leiðinu og sat þar dágóða stund og mér líður vel að hafa yfir- stigið þetta. Ég er í rauninni þakklát í dag fyrir að lífið hafi verið mér erfitt á þessum árum. Mér finnst ég hafa þroskast við það og vera betri manneskja á eftir. Ég lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund í fyrra- vor,“ segir hún þegar ég spyr út í framtíðaráætlanir. „Ég valdi mér málabraut og það réð úrslitum að það var minnsta stærðfræðin þar. Mér gekk mjög vel að læra þegar ég var h'til en með árunum hefur árangurinn farið versnandi. Enda hef ég svo mikið af öðrum áhugamálum. Fyrsta árið mitt tók ég þátt í leiklistarstarfinu en ákvað að hætta því til að bæta námsárangurinn. En mér bara gekk ekkert betur að læra fyrir það. Síðasta veturinn minn í MS var ég að vinna í myndinni á fullu og það var lítill tími afgangs fyrir námsbækumar. Mér fannst fínt að vera í MS, það er skemmtilegur skóli og þessi menntaskólafílingur er fínn. Ég sakna hans þó ekkert og það er fínt að þurfa ekki lengur að lesa undir próf. Mér ggret í ein- rúmi. Fannst það betra finnst af öllu sem ég geri drepleiðinlegast að taka próf.“ Hún þagnar um stund og verður hugsandi á svipinn. „Þegar ég sit við próflestur langar mig alltaf til að gera svo mikið af hlutum sem ég geri aldrei annars og langar heldur aldrei til að gera, nema þegar ég er að lesa undir próf.“ „Ég kynntist henni á fyrsta ári í menntó,“ segir Fanney vinkona hennar. „Við vorum saman í leiklistar- starfinu enda stefnum við að sama markinu. Við náðum strax mjög vel saman og mér finnst hún vera toppkarakter, heilmikill húmoristi og aldrei merki- leg með sig. Hún er ofboðslega traust en líka viðkvæm og skapmikil og getur komið sjálfri sér í bobba við að verja þá sem henni eru kærir. Hún gefur líka skít í allar kjaftasögur og leið- indagagnrýni, það eiginlega merkilegast við hana hvað hún er ofboðs- lega eðlileg og hrein og bein. Hún væri kannski verri ef hún væri betri. Hún er ofboðslega dugleg að bjarga sér og það er enginn jafnoki hennar hvað það snertir en hún er óheppin. Hún var að sýna mér nýju íbúðina sína um daginn og þegar við ætluðum að fara heim fann hún hvergi bfllykl- ana. Þegar við höfðum leitað bæði inni og úti í tvo klukkutíma náðum við ellefu strætó heim. Bfllykl- amir hafa ekki ennþá fundist. Eftir stúdentsprófið var ég atvinnulaus í nokkra mánuði og var geðveikasta manneskjan í cc Reykjavík,“ segir Ingibjörg. „Það var ömurlegur tími. Ég svaf til eitt, tvö á daginn en vaknaði samt dauðþreytt og það varð ekkert úr neinu hjá mér. Ég er því fegin að vera komin í vinnu núna. Ég er ákveðin í því að verða leikkona en hvort ég fer í leiklistarskóla úti eða héma heima er óvíst. Svo er ég auðvitað að syngja með hljómsveitinni Pís of keik og við ætlum að gefa út geisladisk fyrir næstu jól. Ég syng líka með ellefu manna hippabandi sem heitir Babalú og það er mjög skemmtilegt. Að öðru leyti er ég mjög óákveðin um allt. Kannski gerum við aðra kvikmynd. Hver veit.“ Nú kemur stelpa að borðinu og heilsar henni og þær tala dálítið saman og svo segir stelpan: „Ertu ekki að fara að syngja í írlandi eftir tvær vikur.“ „Ha,“ segir Ingibjörg. „Já, þama í Júrovisjón- keppninni,“ segir vinkonan. „Nei, það er ekki fyrr en í maí,“ svarar Ingibjörg og kveikir sér í sígarettu. „Já, er ekki apríl núna,“ hún ætlar sér ekki að gefast upp. „Nei, það er febrúar,“ upplýsir Ingibjörg og þær horfast stundarkom í augu og vinkonan segir: „Já, auðvitað, það er febrúar. Það hlaut eitthvað að vera. Svo kveðjast þær eftir þessa stuttu upplýsingamiðlun og viðtalið held- ur áfram. Á úrslitakvöldi Júróvisjón-keppninar var myndavélin reglulega á sigurstranglegustu keppendunum og á skjánum og orkuðu viðbrögð Ingibjargar á marga eins og hún væri áhugalaus um sigurinn, við það að geispa af leiðindum. Meðan á flutningi sigurlagsins stóð var hún þó sérstaklega glæsileg og bar af öllum 90 HEIMS MYND
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.