Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Page 4
4 18. október 2019FRÉTTIR
Aumingjakeppni sem ekki er hægt að vinna
Í
sland er eins og lúpínan,“
hugsaði Svarthöfði með sér er
hann tók sopa af morgunkaff-
inu. „Ægifagurt land, en djöf-
ull sem ég hata þjóðarsálina sem
teygir úr sér í allar mögulegar og
ómögulegar áttir í æsingi, pirr-
ingi og vitleysu. Svo er ekki hægt
að uppræta þetta helvíti því það
má ekkert segja.“
Svarthöfði er orðinn svo lang-
þreyttur á Íslandi. Svo mikið
að hann er meira að segja far-
inn að skoða falleg timburhús
í skandinavískum stíl í upp-
sveitum Svíþjóðar. Gæti haldið
nokkrar hænur. Gaggið í þeim
er allavega margfalt þolanlegra
en gaggið í þessum helvítis Ís-
lendingum.
Hvert sem Svarthöfði lítur
er gagg, nöldur, væl og rifrildi.
Svarthöfði má varla opna frétta-
síður, dagblöð, samfélagsmiðla
eða bara gluggann án þess að
vera bombarderaður af hálfvita-
skap. Svarthöfði hélt að þetta
yndislega sumar myndi kannski
setja landsmenn í jákvæðari gír,
en svo um leið og haustmyrkrið
skall á fylgdi tuðið með.
Svarthöfði hefur á tilfinn-
ingunni að Íslendingar séu í
gríðarlegri aumingjasamkeppni
um hver hefur það verst. Keppni
sem ekki hægt er að sigra í því
það virðist nánast hver einasti
landsmaður hafa það skítt. Og ef
hann hefur það ekki skítt þá er
tíminn drepinn með því að agn-
úast út í náungann. Búa til gróu-
sögur og samsæriskenningar.
Allt í einu er landið allt orðið að
einum, stórum, fúlum heitapotti
þar sem allt er glatað.
Svo er þetta ríka fólk nátt-
úrulega bara aumingjar og
auðnuleysingjarnir láta ginn-
ast af misgáfulegum skilaboð-
um úr dægurmenningu um að
þeir eigi auðvitað að slátra þeim
sem hafa það best. Á internetinu
hleypur fólk upp til handa og
fóta ef minnihlutahópar, fíklar,
langveikir, fatlaðir, millistéttin,
fátækir, hinsegin fólk, mæður,
feður, systur, bræður, börn og
aðrir minna þroskaðir menn
eru gagnrýndir. FORDÓMAR, er
öskrað á torgum.
Hænurnar í Svíþjóð hljóma þá
bara ansi vel. Gott ef Svarthöfði
bætir ekki við sig eins og einni
gyltu og tveimur hundskvikind-
um. En kannski er Svarthöfði
bara ekkert betri en þið hin fyrst
hann eyddi sínum dýrmæta tíma
í að skrifa tuð um tuð. n
Svarthöfði
Það er
staðreynd að…
Fílar sofa að meðaltali í tvær klukku-
stundir á dag.
Tannburstinn á uppruna sinn að rekja
til Kína og var fundinn upp árið 1498.
Sigmund Freud var með fóbíu fyrir
burkna.
Það eru fleiri en 600 herbergi í
Buckingham-höll.
Einn af hverjum 230 bílum er
stolinn.
Hver er
hún
n Hún er fædd 29.
nóvember 1965.
n Hún starfaði sem
fjölmiðlamaður hjá
Bylgjunni og Stöð 2.
n Hún er mikill matgæðingur og
hefur skrifað matreiðslubækur.
n Hún kom inn á þing sem vara-
maður fyrir Sjálfstæðisflokkinn
árið 2008.
n Hún starfaði sem fram-
kvæmdastjóri Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna.
SVAR: RÓSA GUÐBJARTSDÓTTIR
SÚKKULAÐIÐ
SIGRAR
n Hrekkjavakan nálgast n Tannlæknar fara yfir skásta
nammið og versta skaðvaldinn
Skásta nammið:
n Dökkt súkkulaði
n Annað súkkulaði
n Snakk
n Kex
n Tyggjó
n Mesti
Skaðvaldurinn:
n Hlaup
n Karamellur
n Kúlur
n Súrt nammi
n Sleikjó
n Brjóstsykur
Af síðu landlæknis:
Bakteríur í munnholi loða við
yfirborð tannanna, svokölluð
tannsýkla og breyta sykri
fæðunnar í mjólkursýrur. Sýrurnar
losa um steinefni glerjungsins og
vinna eyðileggingarstarf sitt í um
það bil hálftíma eftir að sykurs
er neytt. Munnvatnið sem gegnir
lykilhlutverki í almennum vörnum
líkamans gegn tannskemmdum,
nær yfirleitt að hlutleysa sýrurnar
á þessum hálftíma svo tönnin
nær aftur til sín uppleystu
steinefnunum úr munnvatninu
og endurkalkast. Ef eðlilegur tími
líður milli mála hefur varnarkerfi
líkamans betur í baráttunni við
sýrurnar og tannskemmdum
er haldið í skefjum. Sífellt nart
er varnarkerfinu ofviða. Ostbiti
eftir mat er góð tannvernd og
það sama gildi um sykurlaust
tyggjó, munnvatnsflæðið eykst
og hlutleysing á sýru á sér stað á
mun skemmri tíma. Ef munnhirðu
er ábótavant og tannsýkla nær að
safnast fyrir, hindrar hún aðgengi
munnvatnsins að tannyfirborðinu
og varnarkerfið gagnast ekki.
H
rekkjavökuhátíðinni fylgir
gjarnan veglegt magn af
sælgæti sem grímuklædd
börn gæða sér á. Í Íslandi
hefur færst í aukana að börn
og ungmenni gangi í hús í sínu
hverfi og biðji þar um grikk eða
gott. Oftar en ekki þora íbúar ekki
annað en að eiga nóg af gotteríi
fyrir furðuverurnar sem banka
að dyrum. Of mikið gotterí getur
þó reynst skaðlegt tannheilsunni
og því ekki úr vegi að kynna sér
þær sælgætisgerðir sem reynast
tönnunum hvað verstar.
Sleikjó er skaðvaldur
Hart sælgæti er sennilegast það
nammi sem nýtur hvað mestra
vinsælda á þessum tíma árs en
brjóstsykur og sleikipinnar eru
miklir skaðvaldar. Eðli málsins
samkvæmt er ætlunin að njóta
þessarar tegundar sælgætis
í lengri tíma en margir falla í
freistni og bryðja brjóstsykurinn
og mylja hann þannig ofan í og á
milli tannanna. Tyggjókúlur hafa
sömuleiðis slæmt orð á sér enda
dvelja þær hvað lengst í munninum
og veltast um á milli tannanna.
Engilbert Ó. H. Snorrason
hefur lengi verið annálaður sem
einn skemmtilegasti tannlæknir
landsins en aðspurður hvaða
sælgæti sé verst fyrir tennurnar
segir hann að eðli málsins
samkvæmt sé það allt nammi
sem sé sykrað og klístrað.
„Alversta nammið er það sem
liggur lengst í tönnunum. Ég myndi
segja það vera karamellur og í
raun allt sem límist við tennurnar.
Í mínum huga er besta nammið
gulrætur og annað grænmeti.“
Súkkulaðið skást
Elfa Guðmundsdóttir á samnefndri
tannlæknastofu tekur undir orð
Engilberts.
„Allt nammi sem klessist við
tennurnar er það versta, gúmmí,
kúlur og karamellur sem loða
lengi við tennurnar. En það
þarf líka að hafa í huga að súrt
nammi er slæmt því sýran eyðir
glerjungnum, sykur og súrt er því
versta blandan. Ég myndi segja
að súkkulaði sé skásta sælgætið
en svo þarf að bursta vel og nota
tannþráðinn. Það er allt í lagi
borða nammi endrum og sinnum
en aðalmálið er að þrífa vel á eftir.“
Elfa segir ávaxtasafana líka
skaðlega, sérstaklega þegar þeir
eru drukknir yfir langan tíma.
„Það er eins með gosið og
orkudrykkina sem eru að reynast
bæði súrir og sykraðir. Það er vont
að vera sífellt að drekka þetta og allt
spurning um hversu lengi drykkjan
á sér stað því ef maður er sífellt
að súpa nær munnvatnið aldrei
að losa sig við sýruárásina sem
tennurnar verða fyrir. Þá er mun
skárra að drekka bara í eitt skipti og
skola svo með vatni,“ segir Elfa.
„Já, samkvæmt lýðheilsustöð
er Orkan alvarlegasti drykkurinn,“
bætir Engilbert við og heldur áfram.
„Bæði er það sýrustigið í drykknum
sem og sykurmagnið. Beint á eftir
Orkunni kemur svo Egils appelsín,
þaðan Coke og svo Pepsi Max. Só-
davatnið er skásti kosturinn jafnvel
þótt það sé bragðbætt.“ n
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is