Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Síða 20
20 FÓKUS - VIÐTAL 18. október 2019
Með gott auga
Með edrúmennskunni var Frið-
geir farinn að elda fyrir með-
ferðarheimili í Los Angeles og
kom sér hægt og rólega aftur á at-
vinnumarkaðinn í kjölfar heimil-
isleysisins. Auk þess hefur hann
lengi verið landslagsljósmyndari
og hefur haldið fjölda sýninga á
Íslandi og í Bandaríkjunum. Þá
fyrstu hélt hann í Reykjavík árið
2010.
Friðgeir segir áhugann á ljós-
myndun hafa kviknað sökum
þess að hann var með gríðarlega
kvikmyndadellu. Þá ákvað hann
að prófa að fara í kvikmynda-
skóla í Los Angeles en umhverf-
ið og verkferlarnir þótti honum
svo kaotísk að hann valdi ljós-
myndun í staðinn. „Peningalega
séð hefði ég frekar átt að sleppa
náminu og fara í húsvarðaskóla,“
segir Friðgeir og skellir upp úr.
„Kvikmyndagerð er svo mikið
vesen, en í þessu námi tók ég
byrjandakúrs í ljósmyndun og
þar fann ég strax þessa köllun. En
ljósmyndunin hefur alltaf ver-
ið áhugamál. Það borgar aldrei
reikninginn. Ég uppgvötvaði
ljósmyndun þegar ég var að stúd-
era kvikmyndatöku og þurfti að
taka byrjendabekk í ljósmyndun.
Þar fann ég strax að ég gat farið
að skapa einn og milliliðalaust.“
Eldaði fyrir stjörnurnar
Á meðal þeirra verkefna sem
Friðgeir hefur tekið að sér í Los
Angeles eru veisluþjónustur og
kokkaverkefni fyrir margar frægar
stjörnur. „Ég hef líka mikið eld-
að fyrir börn stórstjarnanna og
þau eru mörg hver enn ruglaðri
og verr farin en foreldrar sínir,“
segir Friðgeir, sem bætir við að
samningar hindri að hann geti
nafngreint hvaða stjörnur hann
hefur unnið fyrir, en hann full-
yrðir að þær séu margar hverjar
stórfrægar og skrautlegar, eins og
sögur af þeim vitni um.
Hann segist þó hafa hitt átrún-
aðargoð sitt á einum tímapunkti
en það hafi verið á Íslandi. „Ég
hitti „aðalædolið“ mitt árið 1986
þegar við vinir mínir fluttum inn
Nick Cave og hljómsveitina hans.
Þeir voru að spila á skemmti-
staðnum Roxy þá og ég braust inn
í bát til að stela dópi handa Nick
svo hann gæti spilað,“ segir hann.
Fegurðin á Flatey
Friðgeir er sæll og sáttur við líf-
ið í dag að eigin sögn og segir
að heimildamynd sé í vinnslu
um líf hans. Hann er kvæntur
Susan Bolles sem vinnur sem
leikmyndahönnuður í sjón-
varpi í Hollywood. Þau eru bú-
sett við rætur San Gabriel-fjall-
anna, í Altadena, fyrir ofan Los
Angeles þar sem þau eru með sex
appelsínutré og þrjú sítrónutré í
garðinum.
Síðustu þrjú sumur hefur
Friðgeir starfað sem yfirkokkur
á Hótel Flatey og segir hann það
vera einn af fallegri stöðum jarð-
ar, það jafnist fátt á við að fara í
kyrrðina á Íslandi eftir hasartörn
í Kaliforníu.
„Það er ómetanlegt að stíga úr
átján milljóna manna borg yfir
á litla eyju í þrjá mánuði. Eftir
alla geðveikina í Los Angeles var
ég farinn að íhuga að gefa upp
kokkaríið, en svo kom það allt
saman aftur þegar ég var ráðinn á
Hótel Flatey,“ segir Friðgeir.
„Áhuginn kviknaði alveg á
hundrað í kjölfarið á því. Það er
íslenskt yfirbragð á matnum sem
ég geri á Hótel Flatey, en svo
kemur alltaf bakdyramegin þessi
keimur frá New Orleans, sem ger-
ir matinn bragðmeiri að mínu
mati. Þetta er svolítið sambland
af öllu sem ég hef lært í kokka-
mennsku um allan heim.“
Friðgeir stendur í því þessa
dagana að „hössla“ sig út í Los
Angeles með matseld sinni, sem
hann segir vera nýja áskorun
fyrir sig. Hann segist hafa verið
vanur því í gegnum árin að elda
fyrir aðra en honum líst vel á til-
breytinguna sem fylgir því að vera
sinn eigin yfirmaður, með sinn
eigin matarstíl. Þá bætir hann við
að það sé lúmskur aukadraumur
hjá honum að spreyta sig meira í
glútenlausri kleinugerð.
„Konan mín er með glúten-
óþol, þannig að ég ákvað að prófa
mig áfram með ýmsu. Næsta
viðskiptaplanið mitt er að vera
glútenlausi kleinukóngur Kali-
forníu,“ segir Friðgeir hress. n
Það var enga
leið að fara
nema upp eða
í gröfina
„Ég var
orðinn
geðveiki
róninn sem
aðrir
benda á“
Skid Row í Los Angeles