Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Side 23
18. október 2019 FRÉTTIR 23 klárast ansi hratt og ein verslun­ arferð í viku var skyndilega orðin alltof lítið fyrir okkur. Það var svo ekki fyrr en í janúar á þessu ári að ég skaust og sótti manninn minn í afmæli og þegar við kom­ um til baka stóðu dyrnar að íbúð­ inni upp á gátt. Þetta var stór og mikil brunavarnahurð og því ekki líkleg til að opnast aftur ef henni hafði á annað borð verið skellt í lás. Það voru þó engin ummerki um innbrot og allt á sínum stað. Það var þó augljóslega búið að liggja í rúminu mínu því teppið var komið á gólfið. Ég bý alltaf um rúmið og krossbrá auðvitað við að sjá þetta enda mjög ógeðfelld tilhugsun.“ Léttvæg viðbrögð lögreglu Parið var á þessum tímapunkti farið að fylgjast vel með ferðum mannsins og fljótlega kom að því að hann bankaði upp á að nýju. „Hann spurði mig hvort ég væri hætt í vinnunni enda hefði hann ítrekað lagt leið sína þang­ að og spurt eftir mér, en ekki feng­ ið nein svör. Ég greindi honum frá því að við hefðum ákveðið að slíta leigusamningnum þar sem við hefðum í hyggju að flytja á Sel­ foss og þaðan til útlanda. Honum þótti þetta miður, sagði okkur að við værum frábærir leigjendur og við mættum alveg hugsa þetta að­ eins betur og vera svo í sambandi við hann. Við stóðum engu að síður föst á okkar ákvörðun. Við bjuggum enn í íbúðinni meðan leigusamningurinn var enn í gildi en fljótlega kom nágranni að máli við okkur og spurði hvort maður­ inn væri virkilega með aðgang að íbúðinni. Við svöruðum því skilj­ anlega neitandi, en hann sagðist þá hafa séð manninn bæði úti á svölunum okkar og eins að ganga út úr íbúðinni með fulla poka af mat. Samdægurs fórum við til lögreglunnar á Akranesi og til­ kynntum þetta, en mér var skapi næst að kæra hann bæði fyrir innbrot og þjófnað. Lögreglan tók þessu hins vegar á afar léttvægan hátt og sagði orðrétt að þetta væri ekki maður sem við þyrft­ um að hræðast, hann væri bæði meinlaus og misskilinn og myndi aldrei þora að gera flugu mein. Okkur var jafnframt tilkynnt að vegna nýrra persónuverndarlaga væri það á mjög gráu svæði að setja upp öryggismyndavélar í von um að góma hann, en við gætum vissulega reynt að leggja fyrir hann gildru. Í framhaldi af því ættum við allan rétt á að skipta um skrá á útidyrahurðinni, á okkar kostnað.“ Skiptu um skrá „Við byrjuðum á því að leggja fyrir hann gildru og fórum að heiman í nokkra klukkutíma,“ segir kon­ an. „Þegar við komum til baka var fullljóst að hann hafi reynt að komast inn, án árangurs. Þar sem lögreglan vildi ekkert gera og okk­ ur óheimilt að setja upp mynda­ vélar vegna persónuverndar ákvað ég að testa hann. Ég stakk sem sé tannstöngli í skráargatið, þegar ég kom heim var aug­ ljóst að hann hafi reynt að ham­ ast á hurðinni og greinilega meitt sig því það var blóð í kringum hurðarhúninn. Daginn eftir skipt­ um við um skrá. Maðurinn minn sendi honum smáskilaboð þar sem hann gerði honum þetta ljóst og það er skemmst frá því að segja að maðurinn brást illa við. Hann varð með öðrum orðum alveg brjálaður og sagði okkur engan rétt hafa til að gera svona lagað. Þarna var orðið mjög stutt í flutn­ inga og við ákváðum að heyra í föður mannsins sem hafði reynst okkur vel. Hann var skiljanlega miður sín yfir því sem við höfðum að segja og sagðist ætla að ræða við son sinn í rólegheitum. Hann sýndi því sömuleiðis fullan skiln­ ing að við hefðum þurft að bregð­ ast svona við og hét því að þaðan í frá færu öll okkar samskipti fram í gegnum hann en ekki mann­ inn. Þegar kom að því að taka út íbúðina ákváðum við að ég yrði ekki viðstödd, en ég var á þessum tíma farin að þróa með mér mik­ inn kvíða gagnvart manninum og vildi alls ekki eiga á hættu að rek­ ast á hann vegna atburðanna á undan. Það kom líka á daginn að maðurinn mætti ásamt föður sín­ um og þráspurði hvers vegna við hefðum skipt um skrá á hurðinni. Maðurinn minn svaraði honum sem satt var að við vissum fyr­ ir víst að hann hefði síendurtek­ ið brotist inn á heimilið okkar og rænt bæði nærfötum mínum sem og mat úr ísskápnum okk­ ar. Hann þvertók auðvitað fyrir allt saman og öskraði á mann­ inn minn og sagðist krefjast þess að fá að vita nöfn þeirra nágranna sem hefðu borið þessar lygasög­ ur á hann. Maðurinn minn hélt ró sinni allan tímann og bað um að þetta yrði rætt með skynsam­ legum hætti, en þá rauk maður­ inn út úr íbúðinni. Pabbinn stóð þá löturhægt á fætur og viður­ kenndi að hann hafi ekki náð að ræða þessar ásakanir við son sinn og sömuleiðis gleymt að minnast á það við manninn minn að ræða þetta ekki við soninn. Í kjölfarið var maðurinn vistaður inn á geð­ deild. Að sögn föðurins tók mað­ urinn þessum ásökunum afar illa, hann ítrekaði þó að við hefð­ um reynst yndislegir leigjendur og bað okkur innilega að afsaka hegðun sonar síns og öllu því sem gengið hefði á.“ Auglýsir enn íbúðina til leigu Konan hætti fljótlega í vinnu sinni og fór á atvinnuleysisbætur en til þess að fá þær í gegn þurfti hún að sinna viðveru á sama stað og fólk sem þarf að mæta í endur­ hæfingu. Umræddur maður var þar að bíða eftir úrskurði um var­ anlega örorku. Þegar nær dró fyr­ irhuguðum flutningum á Selfoss hætti maðurinn skyndilega að mæta í endurhæfinguna og fann sér vinnu á Selfossi, þar sem hann bjó ýmist á gistiheimili eða í hús­ bíl. Þetta þótti parinu vægast sagt ólíkleg tilviljun. „Við ræddum við föður hans hvað okkur þætti þetta furðu­ leg tilviljun. Ég gleymi aldrei svipnum sem kom á föðurinn og orðunum sem hann lét út úr sér: „Ég vona að þetta sé búið núna og hann láti ykkur alveg vera.“ Við sáum hann engu að síður oft á tjaldsvæðinu á Selfossi en hann þekkti bílinn okkar og maðurinn minn var harður á því að ég væri aldrei ein. Við fluttum svo af landi brott í ágúst, en þá hafði mað­ urinn reynt að hringja í mig án árangurs. Sem fyrrverandi íbúi á Akranesi hafði ég auðvitað heyrt af máli Ölmu en trúði ekki hversu gróft þetta var hjá henni. Ég vona að frásögn mín styrki sögu henn­ ar því hún hefur vissulega þurft að kljást við hann lengst og verst. En ég fæ bara sting í hjartað við að sjá að hann sé enn að auglýsa íbúðina sína til leigu á Akranesi. Ég, rétt eins og hún, flutti af landi brott til að komast burtu, því hann var bókstaflega alls staðar þar sem ég var.“ Vissi ekki að hann væri að áreita fleiri Sjálf lýsir Alma innlögn mannsins inn á geðdeild sem um ræðir hér að framan með öðrum hætti. „Hann er búinn að kenna okk­ ur báðum um sama taugaáfallið. Ég hafði ekki hugmynd um að það væru aðrar að lenda í þessu svona alvarlega, en það er engin vorkunn eftir. Ég er svo reið að þetta skuli viðgangast. Ég setti sem dæmi aðvörun inn á Face­ book­síðu Akraness þar sem ég vara fólk við að leigja af þess­ um manni en færslunni minni var eytt. Það er enn fólk þarna sem þaggar svona áreitni niður af hreinni meðvirkni við snaróð­ an mann. Mér þykir leitt að hafa hrósað lögreglunni í viðtalinu síðast, því hún tekur augljóslega ekki mark á alvarleika málsins. Ég tel mig þekkja lögin nokkuð vel eftir allan þennan tíma en það að þessi kona hafi engan rétt til að verja sig og börnin sín er gjör­ samlega galið. Það tók mig fimm ár bara að fá lögregluna á Akra­ nesi til að taka mark á mér. Það þarf að stöðva þennan mann því þetta endar annars bara á einn veg og það er hræðilegt að hugsa til þess.“ n „Ég tók eftir því að nærfötin mín hurfu hægt og rólega úr nærfataskúffunni ALRÆMDUR ELTIHRELLIR Á AKRANESI n Fleiri konur stíga fram n Braust inn og stal nærfötum n Léttvæg viðbrögð lögreglu n Hafa báðar flúið land

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.