Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Side 26
26 PRESSAN 18. október 2019 „Þetta eru hræætur glæpaheimsins“ n Sérstaklega gróft myndefni af barnaníði gengur kaupum og sölum n Stóru hulduneti lokað í Suður-Kóreu H undruð einstaklinga hafa verið handteknir í al- þjóðlegri lögregluaðgerð vegna huldunets (e. Dark web) þar sem hægt var að kaupa og selja myndbönd af barna- níði. Vefurinn var hýstur í Suður- Kóreu en yfirvöld í Bandaríkjun- um, Bretlandi og Suður-Kóreu segja vefinn þann stærsta sinnar tegundar sem lögregla hefur komist á snoðir um. Vefurinn hét Welcome To Video og var rafmyntin bitcoin notuð til að selja aðgang að 250 þúsund myndböndum af barn- aníði. Lögregluyfirvöld segja að myndefnið hafi verið afar gróft, en á þessu hulduneti var sér- staklega tekið fram að ekki mætti hlaða upp klámefni þar sem full- orðnir eru í aðalhlutverki. Það er því ljóst að vefurinn var eingöngu ætlaður fyrir myndefni af barna- níði og ofbeldi gegn börnum. „Huldunet sem hagnast á kyn- ferðislegu ofbeldi gegn börnum eru meðal viðbjóðslegustu og vítaverðustu glæpanna,“ segir bandaríski saksóknarinn Brian Benczkowski í samtali við The Guardian. Rafmyntin þvættuð Lögregluyfirvöld hafa bjargað að minnsta kosti 23 brotaþol- um undir lögaldri í Bandaríkjun- um, Bretlandi og Spáni sem voru ítrekað beittir kynferðislegu of- beldi af kaupendum á síðunni. Ekki er búið að bera kennsl á mörg börnin í myndböndunum. Samkvæmt glæpastofnun Bretlands er myndefnið á Welcome To Video táknmynd um að barnaníð á netinu sé að verða alvarlegra og grófara og að starf- semin sé orðin stærri og flóknari en áður. Búið er að handtaka manninn á bak við síðuna, hinn suðurkóreska Jong Woo Son, sem er 23 ára. Búið er að ákæra 337 notendur síðunnar í tólf mis- munandi löndum. Jong afplánar nú þegar átján mánaða fangels- isdóm í Suður-Kóreu en einnig er búið að kæra hann í Bandaríkjun- um. Margir af notendum hafa nú þegar verið dæmdir í fangelsi og er þyngsti dómurinn fimmtán ár. Welcome To Video er fyrsta vefsíðan til að selja myndbönd af barnaníði með því að nota bitcoin, en rafmyntin gerir not- endum kleift að fela auðkenni sitt í peningaviðskiptum. Vefurinn virkaði þannig að notendur gátu skipt rafmyntinni fyrir stig, sem þeir eyddu síðan í að hlaða niður myndefni eða kaupa sér aðgang að sérstökum VIP-aðgangi. Þá var hægt að vinna sér inn stig með því að hlaða inn á síðuna myndefni af barnaníði. Talið er að forsprakki síðunnar hafi þénað það sem samsvarar 370 þúsund dollurum í rafmynt áður en síðan var tek- in niður í mars á seinasta ári. Þá er talið að rafmyntin hafi verið þvættuð í gegnum ónefndan raf- myntabanka. „Þetta eru hræætur glæpa- heimsins,“ segir Don Fort, yfir- maður glæparannsókna hjá skatt- yfirvöldum í Bandaríkjunum. Það voru skattyfirvöld sem áttu frum- kvæði að rannsókninni á starf- semi Welcome To Video. Don segir að rannsókn hafi farið af stað eftir ábendingu frá ónefnd- um einstaklingi. Glæpastofnun Bretlands segist hins vegar hafa komist á snoðir um vefsíð- una þegar rannsókn á breskum manni stóð sem hæst í október árið 2017. Sá var sakfelldur fyrir að kúga fleiri en fimmtíu manns, þar á meðal táninga, til að senda honum myndir sem hann deildi á netinu. „Við höfum ekki verið að sinna þessu“ Þessar fréttir koma í kjölfar frétta um rannsókn á vefsíðu þar sem hægt var að panta sér barnaníðs- brot á netinu. Sú rannsókn teygir anga sína til Íslands en síðustu fimm árin hefur lögreglan í Dan- mörku rannsakað 25 mál sem fjalla um kaup á barnaníði í gegn- um netið. Sjö Danir hafa verið dæmdir fyrir brotin, þar af fimm á síðasta ári. Vefsíðurnar virka þannig að notendur geta pantað brot á börnum í gegnum netið og brotinu síðan streymt um leið og það gerist. Rætt var við Karl Steinar Vals- son, yfirlögregluþjón hjá mið- lægri rannsóknardeild lög- reglunnar, í kvöldfréttum Stöðvar 2 fyrir stuttu en hann seg- ir lögregluna líta á þessi brot mjög alvarlegum augum. „Þú getur óskað eftir tilteknu broti og selt aðgang að því. Þessu er streymt í gegnum netið á sama tíma og þetta á sér stað.“ Flestir mannanna sem panta brotin búa í Evrópu, en flest börnin sem brotið er á búa í Asíu. Lögreglan hér á landi rannsakar núna hvort einhverjir Íslendingar hafi gerst sekir um þessi brot. „Við höfum fengið ábendingar frá erlendum aðilum um að Ís- lendingar séu að tengjast inn í margs konar brot sem eru á netinu. Þannig að það er ástæðan fyrir því að við viljum stíga meira inn í þessa rannsókn,“ sagði Karl Steinar á Stöð 2. Líkt og á suðurkóreska vefnum eru brotin sögð sérstaklega gróf enda geta þeir sem panta brotin falið sig á bak við tölvuskjá í tug- þúsunda kílómetra fjarlægð frá barninu sem verið er að brjóta á. Karl Steinar sagði lögregluna ekki hafa horft á þessi mál nægilega alvarlegum augum. „Við höfum ekki verið að sinna þessu og ekki horft á þetta nægi- lega alvarlega augum. En við höf- um áhuga á að breyta því.“ n Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is „Huldunet sem hagnast á kyn- ferðislegu of- beldi gegn börn- um eru meðal viðbjóðslegustu og vítaverðustu glæpanna Rannsókn í Danmörku Flest börnin sem brotið er á búa í Asíu. Lokað Mikill áfangi er að loka Welcome To Video.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.