Fréttablaðið - 10.10.2015, Page 2

Fréttablaðið - 10.10.2015, Page 2
Veður Útlit fyrir fallegt haustveður í dag, hægur vindur, svalt í veðri og góðar líkur á sól fyrir norðan. Hvessir hægt með suðurströndinni seint í kvöld og byrjar að rigna. Hiti 2 til 8 stig, en víða næturfrost. Sjá Síðu 54 Tenerife 21.október í 20 nætur Verð frá 188.900 kr. og 12.500 Vildarpunktar Á mann m.v. 2 fullorðna í íbúð á Los Alisios. Verð án Vildarpunkta 198.900 kr. Flugsæti fram og tilbaka: 69.900 kr. / 79.900 kr. VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444Flogið með Icelandair Skólamál „Það er jafn mikið jafn- réttismál að fjölga karlkyns leik- skólakennurum og að fjölga konum í stjórnum fjármálafyrirtækja,“ segir Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara. Aðeins eitt prósent leikskóla- kennara á Íslandi er karlar. Á morgunverðarfundi um málið í gær sagðist Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri tilbúinn að huga að aðgerðum í samvinnu við Félag leikskólakenn- ara. „Þetta snýst um góðar fyrirmyndir og að hvetja karlmenn til að gera starf með börnum að ævistarfi,“ sagði Dagur. – ebg Of fáir karlar á leikskólunum Mótmæltu við Stjórnarráðið Hundruð félagsmanna SFR mættu fyrir utan Stjórnarráðið í gærmorgun og vöktu athygli stjórnvalda á kjaradeilu sinni við ríkið. Forsvarsmenn Landssambands lögreglumanna, SFR og Sjúkraliðafélags Íslands afhentu Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra yfirlýsingu félaganna þar sem nýrra kjarasamninga er krafist. Fréttablaðið/SteFán Kröfðust nýrra samninga Samfélag „Þetta þýðir að þeir aðstandendur sem leita til okkar vegna útfara eiga á hættu að geta ekki nýtt sér þá aðstöðu sem er í boði,“ segir Bjarni Jónsson, framkvæmda- stjóri Siðmenntar. Fossvogskirkju var lokað þann 5. október síðastliðinn og verður hún lokuð út nóvember. Ástæða þess er að orgel kirkjunnar hefur verið tekið til gagngerra lagfæringa. Fossvogskirkja hefur hingað til verið eina kirkja þjóðkirkjunnar sem leyfilegt  er að nota undir athafnir annarra trú- og lífsskoðanafélaga. Þetta þýðir að önnur félög en þjóð- kirkjan hafa í engin hús að venda með útfarir fyrr en í lok nóvember. Bjarni segir þetta þegar bitna á útförum á vegum Siðmenntar. „Það er ein útför í næstu viku sem er enn ekki búið að fá niðurstöðu um hvar verður,“ segir hann. Að sögn Bjarna eru sterkar hefðir á bak við útfarir, jafnvel þótt þær séu veraldlegar, og aðstandendur vilji gjarnan nýta kirkjurými eða kirkjur í sínum nærsamfélögum. Siðmennt sendi alþingismönnum bréf í haust þar sem farið var fram á að útvegað yrði húsnæði sem væri óháð trúarbrögðum til að trúar- og lífsskoð- anafélög geti stundað sínar athafnir á hlutlausum vettvangi. „Við sendum innanríkisráðherra bréf þegar við fréttum af þessari lokun þar sem við óskuðum eftir því að fá niðurstöðu í það mál því það er ekki hægt að búa áfram við svona ástand,“ segir Bjarni. Siðmennt hefur ekki fengið nein viðbrögð við erindi sínu. Bjarni segir það aðkallandi að hægt verði að bjóða upp á hlutlaust rými því aðsókn í veraldlegar athafnir hafi aukist mikið á milli ára. „Giftingar 2014 voru 56 og eru komin yfir 112 það sem af er ári. Sem sagt hundrað prósenta aukning,“ útskýrir hann.  Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sið- mennt hefur verið úthýst. Árið 2012 var félaginu meinað að halda utan um útför í Neskirkju. „Það kom mjög flatt upp á aðstandendur af því að þeir voru bara að leita að húsnæði. En þeim var úthýst þarna vegna þess að við vorum fengin til að sjá um athöfnina.“ Í samþykktum kirkjuþings kemur fram að kirkjurými þjóðkirkjunnar megi ekki nota undir aðrar athafnir en á vegum kristinna safnaða. „Það stendur í þessum samþykktum að það megi ekki fara fram veraldlegar athafnir í kirkju,“ segir Bjarni Jónsson. stefanrafn@frettabladid.is Lokun Fossvogskirkju kemur ókristnum illa Fossvogskirkja er eina kirkjan sem trú- og lífsskoðanafélög utan kristilegra safnaða hafa aðgang að fyrir útfarir. Kirkjan verður lokuð út nóvember vegna viðgerðar. Siðmennt vill hlutlaust hús með tilliti til trúar fyrir ýmsar athafnir. bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri Siðmenntar, segir lokun Fossvogskirkju vegna viðgerða bitna á félögum Siðmenntar sem eiga þá í fá hús að venda með útfarir. Fréttablaðið/SteFán faSteignir Nefnd um endurskoðun á byggingarreglugerð stefnir að því að kynna tillögur sínar í nóvember. Þetta staðfestir Hafsteinn Pálsson, formaður nefndarinnar. „Við erum í miðri á,“ segir Hafsteinn. Nefndin skoðar möguleika á einföldun regluverks á sviði skipu- lags- og byggingamála. Markmiðið er að stuðla að sem hagkvæmustum aðferðum við húsnæðisbyggingar til að lækka kostnað. „Við erum búin að funda nokkrum sinnum og þurf- um að funda nokkrum sinnum í við- bót og væntum þess að geta komið fram með einhverjar tillögur í nóv- ember,“ segir Hafsteinn. – sg Breytt reglugerð er í miðri ánni Það er ein útför í næstu viku sem er enn ekki búið að fá niður- stöðu um hvar verður. DómSmál Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, og Skúli Þorvaldsson, eigandi félagsins Marple Holding og einn af stærstu viðskiptavinum Kaupþings fyrir hrun, voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdir til refsingar í Marple-málinu. Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrr- verandi fjármálastjóri Kaupþings, var sýknuð af kröfum ákæruvaldsins. Hreiðar var dæmdur í sex mánaða fangelsi, Magnús í 18 mánaða fangelsi og Skúli í sex mánaða fangelsi. Dómurinn er sá þriðji sem Hreiðar Már hlýtur fyrir efnahagsbrot á þessu ári. Hann var sakfelldur af Hæsta- rétti  í Al-Thani málinu í febrúar og fékk fimm og hálfs árs fangelsisdóm. Þá var hann  sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í markaðsmisnotkunar- máli Kaupþings í júní.  Magnús var einnig sak- felldur í Al-Thani málinu. - ngy Þriðji dómur Hreiðars Más Hreiðar Már Sigurðsson 1 0 . o k t ó b e r 2 0 1 5 l a u g a r D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.