Fréttablaðið - 10.10.2015, Page 6
AROUNDTHEWORLD.IS
Kiktu á vefinn
www.aroundtheworld.is eða
sendu tölvupóst á
info@aroundtheworld.is
Ennþá eru nokkur
sæti laus
Aðventuferð til
Heidelberg
26. - 29. nóvember
2015
Nýr Landspítali loks í augsýn.
Málþing Spítalans okkar
þriðjudaginn 13. október 2015 frá kl. 16.00-18.00,
Icelandair Hótel Reykjavík Natura við Reykjavíkurflugvöll
Setning:
Anna Stefánsdóttir, formaður stjórnar Spítalans okkar
Nýr Landspítali – nýtt heilbrigðiskerfi
Birgir Jakobsson, landlæknir
Er ódýrara að reka spítala í nýju húsnæði? - reynsla Norðmanna
Hulda Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri, Norlandia Care Group AS
Nýr Landspítali – nauðsynleg tækniþróun.
Gísli Georgsson, verkfræðingur á Landspítala
Nýtt húsnæði – aukið öryggi sjúklinga.
Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala
Fræðasamfélagið og sérstaða háskólasjúkrahúss.
Guðmundur Þorgeirsson, prófessor í lyflækningum við Háskóla Íslands
Spítali í borg - skipulag Vatnsmýrar.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar
Lokaorð – Ólöf Nordal, innanríkisráðherra
Fundarstjóri:
Svana Helen Björnsdóttir , stjórnarformaður Stika
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest
10% af sölu
á Bleiku línu
aPÓTeksins
rennur Til
kraBBameinsfélags
íslands í okTÓBer
lýðheilsa Eftir að gjaldskrárhækk-
anir Reykjavíkurborgar í sund taka
gildi verður 60 prósentum dýrara
fyrir fjögurra manna fjölskyldu að
fara í sund í Reykjavík en í Hafnar-
firði sé greitt fyrir staka ferð.
Fulltrúar annarra sveitarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu segja enga
umræðu hafa farið fram um að
hækka gjaldskrár í sund. Hins vegar
standi vinna að fjárhagsáætlun fyrir
næsta ár yfir og þar verði allar gjald-
skrár teknar til skoðunar og því sé
ekki hægt að útiloka verðskrárhækk-
anir á næsta ári.
Sé miðað við fjögurra manna fjöl-
skyldu, tvo fullorðna og tvö börn, eitt
sex ára og annað tólf ára, mun sund-
ferðin í Reykjavík, eftir að gjaldskrár-
hækkun tekur gildi, kosta 2.080 krón-
ur en um 1.300 krónur í Hafnarfirði,
1.330 krónur í Kópavogi og Garðabæ
og 1.350 krónur í Mosfellsbæ.
Næstdýrast er fyrir fjölskylduna að
fara í sund á Seltjarnarnesi en ferðin
mun kosta hana 1.440 krónur. Í
Hafnarfirði eru hins vegar rukkaðar
100 krónur aukalega fyrir hvern full-
orðinn einstakling sem ætlar í gufu-
bað. Þá hækkar sundferðin í 1.500
krónur og verður næstdýrust.
Mun minni verðmunur er milli 10
skipta korta og árskorta en stakra
sundferða. Tíu skipta kort er dýrast
í Kópavogi en þar kostar það 4.700
krónur. Hins vegar fást 2.500 krónur
endurgreiddar sé rafrænu korti sem
notað er til að greiða fyrir hverja ferð
skilað.
Ódýrast er tíu skipta kortið í
Hafnarfirði þar sem það kostar
3.300 krónur. Það sama er rukkað í
Mosfellsbæ en þar þurfa notendur
að greiða 570 krónur sérstaklega
fyrir Moskortið sem sundferðirnar
eru fylltar á. Þá kostar tíu skipta kort
í Garðabæ 3.600 krónur, 4.000 krón-
ur á Seltjarnarnesi og 4.300 krónur í
Reykjavík.
Árskortið í Garðabæ er dýrast en
það kostar 32.000 krónur og litlu
minna í Reykjavík og Mosfellsbæ.
Ódýrast er árskortið í Hafnarfirði þar
sem það kostar 25.200 krónur.
Fyrir börn er ódýrast að fara í sund
á Seltjarnarnesi þar sem ferðin kostar
120 krónur en dýrast í Mosfellsbæ og
Kópavogi þar sem sundferðin kostar
150 krónur.
Hins vegar er misjafnt milli sveitar-
félaga hvenær byrjað er að rukka
fyrir börn í sund. Börn í Hafnarfirði
eru rukkuð frá fimm ára aldri en ekki
fyrr en við ellefu ára aldur í Garðabæ.
ingvar@frettabladid.is
Langdýrast í Reykjavík
Sundferð fjögurra manna fjölskyldu verður 60 prósentum dýrari í Reykjavík en
í Hafnarfirði miðað við staka sundferð. Mun minni munur er á verði árskorta.
Mannmörg Laugardalslaug. Gestir hennar og annarra sundlauga í Reykjavík munu
þurfa að greiða talsvert meira fyrir staka sundferð en í öðrum sveitarfélögum á
höfuðborgarsvæðinu. FRéttabLaðið/GVa
lögreglumál Tveir menn sem
lögreglan á Suðurlandi handtók
á Kirkjubæjarklaustri á fimmtu-
dag og grunaðir eru um röð inn-
brota á Suðurlandi í vikunni eru
nítján og tuttugu ára. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu fannst
mikið magn þýfis í bíl mannanna.
Stuttu eftir handtökuna fannst
nítján ára stúlka sofandi í sumar-
bústað skammt frá Kirkjubæjar-
klaustri þar sem brotist hafði
verið inn og mikið magn af ætl-
uðu þýfi fannst. Stúlkan er grunuð
um að hafa brotist inn í á annan
tug staða með mönnunum og þau
sitja nú öll í tveggja vikna gæslu-
varðhaldi. – bá
Varðhald eftir
innbrotahrinu
Ljósin kveikt
kvikmyndagerð Baltasar Kormákur
kvikmyndagerðarmaður vill hækka
endurgreiðsluhlutfall vegna kvik-
myndaframleiðslu.
Í dag fást 20 prósent framleiðslu-
kostnaðar endurgreidd úr ríkissjóði
á Ísland. Hlutfallið er 25 prósent
eða hærra í nálægum löndum. Þetta
kom fram á hádegisfundi Amerísk-
íslenska viðskiptaráðsins á Kex
hosteli í gær. Þar fjallaði Baltasar um
fjármögnun stórra kvikmynda.
Baltas ar sagði að endurgreiðsla
úr ríkissjóði væri ekki góðgerðar-
starfsemi; stjórnvöld og kvik-
myndaiðnaður inn væru sam an í
þess um „biss ness“. Hann vill hækka
endurgreiðsluhlutfallið 25 prósent
og jafnvel upp í 30 prósent í verk-
efnum þar sem eftirvinnsla fer fram
á Íslandi.
Baltasar segist leggja mikið upp
úr því að vinna stærsta hluta kvik-
myndagerðar sinnar hér á landi.
Hann telur fjármögnunina vera
mikla innspýtingu fyrir hagkerfið.
„Ég held að við séum að skapa
einn stærsta menningararfinn í dag,”
segir Baltasar Kormákur. – sg
Endurgreiðslur í
kvikmyndagerð
verði 25 prósent
baltasar Kormákur kvikmyndagerðar-
maður. FRéttabLaðið/ViLheLM
✿ kostnaður við að fara í sund
á höfuðborgarsvæðinu frá 1. nóvember
*Með gufubaði kostar ferðin 620 kr. **Fylla þarf á Moskortið sem kostar 570 kr.
***Skilagjald á rafrænum kortum er 2.500 kr.
sundlaugar
Hafnarfjörður 5 ára 130 520* 3.600 25.200
Garðabær 11 ára 130 600 3.700 32.000
Reykjavík 6 ára 140 900 4.300 31.000
Mosfellsbær 10 ára 150 600 3.600** 31.500
Kópavogur 6 ára 150 590 4.700*** 29.500
Seltjarnarnes 6 ára 120 600 4.000 30.000
Börn fá frítt
fram að
stök sund-
ferð fyrir
börn
stök sund-
ferð fyrir
fullorðna
10 skipta
sundkort fyrir
fullorðna
árskort fyrir
fullorðna
Yoko Ono kveikti í gærkvöld á Friðarsúlunni í Viðey. Ljósin eru tendruð ár hvert á fæðingardegi Johns
Lennons, eiginmanni Ono sem var myrtur 1980. Bítillinn hefði orðið 75 ára í gær. FRéttabLaðið/anton
1 0 . o k t ó B e r 2 0 1 5 l a u g a r d a g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð