Fréttablaðið - 10.10.2015, Side 16
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Fyrir hverja er miðborgin?
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Miðborg Reykjavíkur er allt í senn, miðborg
menningar, veitinga, verslunar, mannlífs og hún
er einnig hverfi og heimkynni íbúa og vinsæll
áfangastaður ferðamanna. Í blandaðri miðborgar-
byggð þurfa allir að lifa í sátt og samlyndi.
Gestir fundarins, Guðrún Jóhannesdóttir
verslunarmaður í Kokku á Laugaveginum,
Magnea Þórey Hjálmarsdóttir framkvæmda-
stjóri Icelandair hótela og Jón Kaldal miðborgar-
búi og ritstjóri Iceland Magazine ásamt Hjálmari
Sveinssyni, ræða um miðborgina frá ýmsum
sjónarhólum.
Fundirnir eru mjög vel sóttir, bæði af fagfólki og
áhugafólki um skipulag og umhverfi borgarinnar
enda rætt um málin á mannamáli út frá skemmti-
legum sjónarhornum.
Allir eru velkomnir og rjúkandi kaffi á könnunni.
Ferðamannamiðborgin verður
til umræðu í fundarröð sem
umhverfis- og skipulagssvið
Reykjavíkurborgar stendur fyrir
ásamt Hjálmari Sveinssyni,
formanni umhverfis- og
skipulagsráðs. Næsti fundur
er 13. október klukkan 20 á
Kjarvalsstöðum á Klambratúni.
Bólusetning gegn árlegri inflúensu
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins vill vekja athygli á því að skipulögð bólusetning gegn
inflúensu hefst á heilsugæslustöðvum mánudaginn 12. október 2015. Bóluefnið myndar
mótefni gegn þremur inflúensuveirustofnum þ.á m. svonefndri svínainflúensu.
Hverjum er einkum ráðlagt að láta bólusetja sig?
Öllum sem orðnir eru 60 ára
Öllum, bæði börnum og fullorðnum, sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna-
og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi
sjúkdómum
Heilbrigðisstarfsmönnum sem daglega annast fólk með aukna áhættu, sbr. ofantalið
Þunguðum konum
Þeir sem tilheyra ofangreindum hópum fá bóluefnið sér að kostnaðarlausu en greiða
komugjald samkvæmt reglugerð nr. 1182 / 2013 með breytingu nr. 635 / 2014. Fyrirkomulag
bólusetningar getur verið mismunandi milli heilsugæslustöðva. Vinsamlegast leitið upplýsinga
á vef Heilsugæslunnar www.heilsugaeslan.is, eða hafið samband við hlutaðeigandi
heilsugæslustöð.
Heilsugæslan Árbæ, Reykjavík s: 585 7800
Heilsugæslan Efra-Breiðholti , Reykjavík s: 513 1550
Heilsugæslan Efstaleiti, Reykjavík s: 585 1800
Heilsugæslan Fjörður, Hafnarfirði s: 540 9400
Heilsugæslan Garðabæ s: 520 1800
Heilsugæslan Glæsibæ, Reykjavík s: 599 1300
Heilsugæslan Grafarvogi, Reykjavík s: 585 7600
Heilsugæslan Hamraborg, Kópavogi s: 594 0500
Heilsugæslan Hlíðum, Reykjavík s: 585 2300
Heilsugæslan Hvammi, Kópavogi s: 594 0400
Heilsugæslan Miðbæ, Reykjavík s: 585 2600
Heilsugæslan Mjódd, Reykjavík s: 513 1500
Heilsugæsla Mosfellsumdæmis s: 510 0700
Heilsugæslan Seltjarnarnesi (Landakoti) s: 513 2100
Heilsugæslan Sólvangi, Hafnarfirði s: 550 2600
Heilsugæslan Lágmúla 4, Reykjavík s: 595 1300
Heilsugæslan Salahverfi, Kópavogi s: 590 3900
Búast má við að bólusetning geti veitt a.m.k. 70% vörn gegn sjúkdómnum auk þess sem
hann verður vægari hjá þeim í hópi bólusettra sem veikjast. Þeim sem leita vilja ráðgjafar er
bent á sína heilsugæslustöð.
Frekari upplýsingar er að finna á vef Heilsugæslunnar, www.heilsugaeslan.is
Fræðsluefni um inflúensu má finna á vef Embættis landlæknis, www.landlaeknir.is
Reykjavík, 9. október 2015
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Álfabakka 16, 109 Reykjavík sími 585 1300 www.heilsugaeslan.is
Danmörk Tólf reyndir blaðamenn,
allt saman flóttamenn og flestir
nýkomnir til Danmerkur, sáu um
að skrifa föstudagsútgáfu danska
dagblaðsins Information.
Tilgangurinn er sagður vera sá
að gefa dönskum lesendum öðru-
vísi innsýn í heim flóttafólksins en
venjulega birtist í fjölmiðlum.
Forsíðufréttin fjallar um afleið-
ingar þess í heimalöndum flótta-
fólksins að meirihluti þeirra sem
flýja til Evrópu eru karlmenn.
„Þegar karlkyns flóttamenn
streyma til Evrópu, þá sitja kon-
urnar eftir í hefðbundnu íslömsku
samfélagi,” segir í undirfyrirsögn
forsíðugreinarinnar, sem skrifuð
er af Lawja Jawad Mohammadi frá
Írak.
„Það sem veldur helst áhyggjum
er að þeir ungu menn sem flýja eru
þeir sem trúa á kvenréttindi og jöfn-
uð karla og kvenna, en þeir sem eftir
sitja í samfélaginu tilheyra hinum
hópnum, sem trúir á kúgun kvenna
og íslamsvæðingu samfélagsins,“ er
haft eftir Zaytoon Kamal frá Kúrda-
borginni Erbil í Írak.
Ástæða þess að karlarnir flýja
frekar en konurnar er sögð vera sú
að karlarnir eigi auðveldara með að
fara burt.
„Konurnar verða ekki eftir í Kúr-
distan vegna þess að þær eru ánægð-
ar og þakklátar, heldur vegna þess
að þær hafa ekki möguleika á því
að ferðast,” er haft eftir konu sem
býr í Kúrdahéruðum Íraks, Khanim
Rahim Latif.
Þá er í blaðinu grein sem fjallar
um lífið í flóttamannabúðum, þar
sem því er lýst að fólki finnist það
vera þátttakendur í happdrættisleik.
Sá vinnur sem fær hæli. Fyrirsögnin
er: „Ég verð svo öfundsjúkur þegar
aðrir fá hæli.“
Sex þeirra blaðamanna sem
skrifa blað föstudagsins, eru frá
Sýrlandi, tveir frá Afganistan, en
hinir frá Sómalíu, Kenía, Taílandi
og Kúrdasvæðum Íraks. Þeir fengu
aðstoð frá starfsfólkinu á Inform-
ation við upplýsingaöflun og þýð-
ingar, en réðu efnisvali og fram-
setningu.
gudsteinn@frettabladid.is
Flóttamenn
skrifa dagblað
Danska dagblaðið Information fékk tólf flóttamenn
til þess að skrifa föstudagsútgáfu blaðsins.
SýrlanD Bandarísk stjórnvöld hafa
ákveðið að hætta að þjálfa upp og
styrkja her uppreisnarmanna í Sýr-
landi.
Bandaríkjamenn segja lítinn
árangur sjáanlegan af þeirri aðstoð,
sem þeir hafa veitt uppreisnar-
mönnum með ærnum tilkostnaði.
Þess í stað er ætlun Bandaríkja-
manna að aðstoða uppreisnarsveitir
sem þegar hafa sýnt fram á árangur
í baráttunni gegn vígasveitum Ísl-
amska ríkisins.
Þessi stefnubreyting af hálfu
Bandaríkjamanna kemur í beinu
framhaldi af því að Rússar hófu
loftárásir á uppreisnarmenn í Sýr-
landi. – gb
Bandaríkin hætta að
þjálfa uppreisnarmenn
Konurnar verða
ekki eftir í
Kúrdistan vegna þess að þær
eru ánægðar og þakklátar.
Khanim Rahim Latif, kona í Kúrda
héruðum Íraks
Sýrlenskur uppreisnarmaður býr sig undir að verjast liðsmönnum stjórnarhersins.
Fréttablaðið/EPa
Þúsundir manna tóku þátt í mótmælum í Kaupmannahöfn í vikunni, þar sem
flóttafólk var boðið velkomið. Fréttablaðið/EPa
1 0 . o k t ó b e r 2 0 1 5 l a U G a r D a G U r16 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð