Fréttablaðið - 10.10.2015, Side 18
ILMANDI KAFFIPÚÐAR
FRÁ TE & KAFFI
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
Íslenskt fjölskyldufyrirtæki
og framleiðsla síðan 1984
Te og Kaffi hafa nú framleitt þrjár vinsælustu
kaffitegundir sínar sem kaffipúða. Sérvaldar
kaffibaunir sem halda bragðgæðum
og ilmi alla leið í bollann þinn,
Java Mokka, Espresso Roma og
French Roast.
NÝ ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
Tæplega sex hundruð manns eru í hópnum Myglusveppaþolendur á
Facebook þar sem blaðamaður hefur gert opnar og órekjanlegar kannanir
síðustu vikurnar. 50-100 manns hafa svarað hverri könnun.
Fjárhagslegt tap
56%
hafa tapað nær öllum sínum
eignum vegna myglusvepps.
Leigusalar fela myglusvepp
Þolendur segja frá
Mamma tók þetta
í sínar hendur og
þegar hún sagði stjórnendum
leigufélagsins að hún ætlaði í
mál var hlegið framan í hana
og sagt að félagið hefði her
lögmanna á bak við sig. Það er
ekki skrýtið að fólk sé hrætt
við þennan slag.
Sandra Sif
Rúnarsdóttir,
í skaðabótamáli við
leigufélag Ásbrúar
Þetta er eins og að
lenda í bruna nema án
skilnings frá samfélaginu, og án
þess að fá tjónið bætt.
Guðbjörg Þóra
Ingimarsdóttir,
fyrrverandi
leigjandi í íbúð
með myglusvepp
Heilsutjón
84%
kljást við langtímaafleiðingar
myglusvepps.
Staðan sem sjúk-
lingurinn er settur í er
að finnast hann þurfa að sanna
veikindi sín og þar sem enn er
erfitt að sanna myglusveppa-
óþol er þetta næst-
um vonlaus
staða.
Birgitta Braun,
myglusveppasjúk-
lingur síðustu átta ár
40%
eiga ekki afturkvæmt til starfa á
sama vinnustað.
Heilbrigðismál Síðustu vikur
hefur Fréttablaðið fjallað um
myglusvepp í húsnæði og alvar
legar afleiðingar myglunnar. Fólk
hefur deilt sögum sínum og allir
hafa sömu sögu að segja. Ekkert
öryggisnet grípur þolendur myglu
svepps, engar bætur eru fyrir þá
sem tapa öllum sínum eigum eða
missa starfið og margir hverjir
mæta skilningsleysi hjá heilbrigðis
kerfinu. Fólk stendur eitt í þessari
baráttu.
Í vor voru hagsmunasamtökin
Gró stofnuð, sem eru samtök um
tengsl heilsu við raka og myglu.
Fyrir sex dögum byrjuðu sam
tökin að safna undirskriftum fyrir
áskorun um úrræði fyrir þolendur
raka og myglu í húsum. Áskorunin
verður send til landlæknis og vel
ferðarráðuneytisins og hafa nú
þegar fimm hundruð manns skrifað
undir.
Vilja kveikja áhuga
Sveinlaug Sigurðardóttir er í stjórn
samtakanna og segist vonast til að
áskorunin verði til þess að farið
verði í átak vegna myglusvepps.
„Við viljum að það verði hlustað
á okkur, að það kvikni áhugi á
okkar vandamálum og einhver fari
í að skoða og skilja þennan eyði
leggjandi myglusvepp. Það er hrika
lega erfitt að standa í þessu einn og
bjargarlaus. Við skorum á stjórn
völd að efla upplýsingu, úrræði og
öryggisnet fyrir mjög veikt fólk.“
Sveinlaug segir fyrsta skrefið vera
að efla þekkingu og rannsóknir
um tengsl myglusvepps og heilsu
taps. Hún segir Ísland vera eftirbát
annarra landa þegar kemur að
viðbrögðum heilbrigðiskerfisins og
hún veit um marga sem hafa leitað
utan til að fá rannsóknir og svör um
veikindi sín. Aðrir senda sjálfir sýni
til útlanda. Það er mjög dýrt fyrir
hvern einstakling að standa í slíku.
„Það er lágmark að sú þekking
og tæki og tól sem eru þó til í
heiminum séu aðgengileg myglu
sveppasjúklingum hér á landi. Ég
hef kynnt mér þetta svo vel og lengi
að ég er farin að ráðleggja læknum,
benda á lyf og annað sem þeir vita
ekki um.“
Myglusveppur er tabú
Eftir að þekking og greining heil
brigðiskerfisins er komin í lag vill
Gró að fundin verði meðferðar
úrræði fyrir þann mikla fjölda
sem lifir ekki eðlilegu lífi vegna
veikindanna.
„Við viljum endurhæfingarsetur
eða deild sem myndi sérhæfa sig
í þessum málum. Einnig þyrfti
bráðabirgðahúsnæði fyrir fólk sem
þarf að flytja allslaust út af heim
ilum sínum.“
Samtökin Gró voru stofnuð í
kjölfar þess að nokkrir myglu
sveppaþolendur hópuðu sig saman
og fóru á kaffihús.
„Sá andlegi stuðningur sem
felst í því að hitta og tala við fólk
í sömu stöðu er ólýsanlegur. Því
það er ekkert í kerfinu sem hjálpar
manni og enginn í samfélaginu veit
hvernig á að bregðast við. Margir
hafa mætt miklum fordómum og
eru mjög feimnir við að tjá sig. Við
erum sex hundruð saman í hópi á
Facebook en ég veit um fjölmarga
sem þora ekki að vera í þeim hópi
vegna almenningsálitsins. Það má
með sanni segja að myglusveppa
veikindi séu tabú.“
Annað baráttumál sem Gró er
með á lista sínum snýr að trygg
ingakerfinu á Íslandi, en engar
vátryggingar ná yfir myglusveppa
tjón. Sveinlaug segir heilsuna þó
vera í forgangi.
„Í grunninn snýst þessi vandi um
heilsu fólks, þess vegna skorum við
á landlækni og velferðarráðuneytið.
Ef málið er þeim ekki viðkomandi,
hverjum þá?“
Krefja stjórnvöld um athygli og úrræði
Mikið úrræðaleysi ríkir vegna myglusvepps á Íslandi. Engar tryggingar eða öryggisnet grípur fólk sem missir allt sitt vegna myglunnar.
Fimm hundruð myglusveppaþolendur hafa skrifað undir áskorun til velferðarráðuneytis og landlæknis um að gera átak í málinu.
Viðbrögð stjórnvalda
Í skýrslu starfshóps umhverfis- og auðlinda ráðherra sem falið var að
endurskoða lög og reglur á sviði byggingarmála með tilliti til myglusveppa
takmarkast tillögur til úrbóta nær eingöngu við byggingariðnaðinn.
Tillögurnar felast í grófum dráttum í aukinni fræðslu, skýrari orðanotkun
í reglugerðum og skilvirkara eftirliti. Einnig er bent á leiðir til að auka neyt-
endavernd að danskri fyrirmynd þegar kemur að fasteignakaupum og lagt
til að leigusölum verði skylt að segja frá mygluskemmdum í leiguíbúð. Ekki
er fjallað um alvarleg veikindi, innbústjón og veikindarétt.
Í svari ráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins um hver næstu skref
séu segir að vinna við undirbúning eftirfylgniaðgerða standi yfir en ekki sé
hægt að segja meira um næstu skref á þessari stundu.
Fréttablaðið hafði samband við Landlækni og heilbrigðisráðherra til að
fá viðbrögð við áskorun Grós. Ekki náðist í heilbrigðisráðherra þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði embættið ekki
vera með nein sérstök viðbrögð við undirskriftasöfnuninni enda lítið sem
embættið gæti gert.
Sveinlaug fann fólk á Facebook með sömu reynslu og hún fyrir einu og hálfu ári. Hún segir þann hóp hafa bjargað geðheilsu
hennar. FréttabLaðið/ViLHeLM
Kemst ég aftur í vinn-
una? Verð ég aftur
veik? Vill einhver ráða mann-
legan myglumæli sem kemur
alltaf upp um rakaskemmdir
og rándýrar framkvæmdir
fylgja í kjöl-
farið?
Petra Eiríksdóttir,
kennari í veikinda-
leyfi
Erla Björg Gunnarsdóttir
erlabjorg@frettabladid.is
Við viljum að það verði
hlustað á okkur, að það
kvikni áhugi á okkar vanda-
málum og einhver fari í að
skoða og skilja þennan
eyðileggjandi myglusvepp.
Það er hrikalega erfitt að
standa í þessu einn og
bjargarlaus.
Veikir á vinnustað
1 0 . o k t ó b e r 2 0 1 5 l A U g A r D A g U r18 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð