Fréttablaðið - 10.10.2015, Qupperneq 26
Í tilefni alþjóðlega bangsa-dagsins verður bangsaspít-ali á Barnaspítala Hringsins um helgina þar sem öllum börnum ásamt foreldrum eða forráðamönnum er
boðið að koma með slasaða eða
veika bangsa í heimsókn á spítal-
ann. „Tilgangur verkefnisins er tví-
þættur. Til að fyrirbyggja hræðslu
hjá börnum við lækna, heilbrigðis-
starfsfólk og spítalaumhverfið og
hins vegar að gefa læknanemum á
yngri árum tækifæri til að æfa sam-
skipti við börn,“ segir Íris Kristins-
dóttir, formaður Lýðheilsufélags
læknanema sem stendur fyrir við-
burðinum.
„Það voru um 1.000 bangsar
læknaðir í fyrra og 700 árið áður
þannig að þetta hefur verið að
aukast. Við búumst við svipuðum
fjölda í ár,“ segir Íris. Það er ýmis-
legt sem amar að þeim böngsum og
dúkkum sem koma í fylgd eigenda
sinna á bangsaspítalann. „Margir
koma með magapínu, sumir eru
handleggsbrotnir eftir að hafa
dottið af trampólíni eða fram úr
rúminu,“ segir Íris.
Gott er ef foreldrar eða forráða-
menn geta verið búnir að ræða
við börnin fyrirfram um hvað það
sé sem ami að böngsunum. Hvort
hann sé veikur með til dæmis háls-
bólgu, magapest eða brotinn fót.
Þegar á spítalann er komið fær
barnið að innrita bangsann og að
því loknu kemur bangsalæknir og
vísar barninu inn á læknastofu þar
sem læknirinn skoðar bangsann og
veitir honum þá aðhlynningu sem
hann þarf á að halda. „Á bangsa-
spítalanum eru allir bangsar lækn-
aðir,“ segir Íris. viktoria@frettabladid.is
Allir bangsar fá bót meina sinna
Bangsaspítalinn verður á Barnaspítala Hringsins um helgina. Tilgangurinn að kynna börn fyrir heilbrigðisstarfsfólki
og spítölum auk þess sem læknanemar fá þjálfun í samskiptum við börn. Í fyrra komu yfir 1000 bangsar á spítalann.
Hér má sjá bangsalækni líta á bangsa sem kom á spítalann þegar hann var haldinn í fyrra. Fréttablaðið/Ernir
Ég er kominn í hestamennsku. Hef
reyndar bara aðgengi að einum smá-
hesti en hann er af miklum gæðum.
Hann verður viðraður. Þá er það
einhver vinna. Þarf að reyna að finna
út úr því hvernig bæta eigi nýtingu
fangarýma fyrir minni pening.
Hrista gæsir, bæði í Bollywood
og Beyoncé, og gott ef ég er ekki
að taka eitt Tinu Turner-gigg líka.
Steindór vinur minn heldur svo
upp á afmælið sitt um kvöldið.
Sunnudagurinn verður mók til að
hlaða batteríin.
Hristir gæsir
Margrét Erla Maack sjónvarpskona
Horfðu
á stúlkurnar á
Kleppjárnsreykj-
um í Bíói Paradís
um helgina.
Hlustaðu
á Todmobile-
plötuna sem á
25 ára afmæli
um þessar
mundir.
farðu
í ratleik í Þjóð-
minjasafninu
með börnunum.
lEstu
Svo þú villist
ekki í hverf-
inu hérna
eftir Nóbels-
verðlauna-
hafann Patrick
Modiano.
Ég er að fara í leikhús að sjá meistara-
verk Harolds Pinter, Heimkomuna,
um helgina. Þar leikstýrir Atli Rafn
Sigurðsson og ég býst ekki við neinu
minna en meistaraverki. Svo er stefn-
an sett á pabbakvöld á laugardaginn,
því mamma þarf jú að djamma.
Valur grettisson blaðamaðurPaul Winkel fangelsismálastjóri
Um helgina, af hverju ekki að…
PabbakVöld og PintErsMáHEstur og Vinna
1 0 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r26 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
helgin