Fréttablaðið - 10.10.2015, Side 55

Fréttablaðið - 10.10.2015, Side 55
Laus störf SkurðlækningasviðiTaugalækningarHjartarannsóknastofa Röntgendeild OKKUR VANTAR MIKILVÆGA HLEKKI Í KEÐJUNA Ef þú hefur áhuga á að takast á við krefjandi starf í líflegu og skemmtilegu umhverfi á erum við að leita að þér Meltingar- og nýrnadeild HJÚKRUNARFRÆÐINGUR Deildin er 19 rúma legudeild og þjónar sjúklingum með bráða og langvinna sjúkdóma í meltingarfærum og nýrum. Lögð er áhersla á að skapa uppbyggjandi starfsumhverfi og veita einstaklingshæfða hjúkrun. Helstu verkefni og ábyrgð • Sérhæfð hjúkrun meltingar- og nýrnasjúklinga • Skipuleggja hjúkrun sjúklinga og skráir meðferðir í samræmi við reglur LSH • Fylgjast með nýjungum í faginu • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu Hæfnikröfur • Góð samskiptahæfni • Faglegur metnaður • Íslenskt hjúkrunarleyfi Starfshlutfall og vinnutími er samkomulagsatriði en fastar næturvaktir koma vel til greina. Starfið er laust frá 1. nóvember 2015 eða eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar veita Hildur Þóra Hallbjörnsdóttir, deildarstjóri (hildurha@landspitali.is, 825 5153) Þórdís Ágústa Ingólfsdóttir, mannauðsráðgjafi (thoring@landspitali.is, 824 5480) Hjartarannsóknastofa LÍFEINDAFRÆÐINGUR Starf við hjartaómun á hjartarannsóknarstofu við Hringbraut. Þekking og reynsla af hjartaómun æskileg. Til greina kemur að þjálfa einstakling sem áhuga hefur á verkefninu. Möguleiki er á að vinna að mastersverkefni tengt starfinu. Helstu verkefni og ábyrgð • Ómanir af hjarta og varðveisla gagna þar að lútandi • Úrvinnsla og túlkun niðurstaðna í samvinnu við hjartalækna • Þátttaka í öðrum verkefnum á hjartarannsókn eftir nánari ákvörðun stjórnanda Hæfnikröfur • Sjálfstæð og skipulög vinnubrögð • Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum • Þekking og reynsla af hjartaómun æskileg • Góð íslenskukunnátta skilyrði • Íslenskt starfsleyfi em lífeindafræðingur Starfið er 100% eða eftir samkomulagi og unnið í dag- vinnu. Starfið er laust frá 1. desember 2015 eða eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar veita Davíð Ottó Arnar, yfirlæknir (davidar@landspitali.is, 543 1000) og Jóhanna S. Gunnlaugsdóttir, yfirlífeindafræðingur (johsgunn@landspitali.is, 543 6158) Skurðlækningasvið SÉRGREINARITARAR/ SKRIFSTOFUSTJÓRAR Tvö störf sérgreinaritara/ skrifstofustjóra, í háls-, nef- og eyrnalækningum annars vegar og í lýtalækningum hins vegar. Helstu verkefni og ábyrgð • Umsjón með rekstri skrifstofu • Umsjón og frágangur sjúkraskráa og læknabréfa • Upplýsingagjöf og samskipti við t.a.m. sjúklinga og starfsmenn • Ýmiss verkefni fyrir yfirlækna og sérfræðilækna • Aðstoð við skipulagningu kennslu og vísindastarfa á vegum sérgreinanna • Þátttaka og þróun í upplýsingatækni við ritun í rafræna sjúkraskrá sviðsins • Ýmiss verkefni tengd klínískri skráningu og skjalastjórnun Hæfnikröfur • Tölvufærni, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð eru skilyrði • Mjög góð kunnátta í íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi • Löggilding í læknaritun æskileg sem og góð starfsreynsla Starfshlutfall er 50% dagvinna. Störfin eru laus 15. nóvember 2015 eða eftir samkomulagi. Nánari uppl. veita Hannes Petersen, yfirlæknir (hpet@landspitali.is, 543 1000) og Gunnar Auðólfsson, sérfræðilæknir ( gunnara@landspitali.is, 543 1000) Taugalækningar SÉRGREINARITARI/ SKRIFSTOFUSTJÓRI Starf sérgreinaritara/ skrifstofustjóra í taugalækningum. Helstu verkefni og ábyrgð • Umsjón með rekstri skrifstofu sérgreinarinnar • Umsjón og frágangur sjúkraskráa og læknabréfa • Upplýsingagjöf og samskipti við t.a.m. sjúklinga og starfsmenn • Ýmis verkefni fyrir yfirlækni og sérfræðilækna sérgreinarinnar • Aðstoð við skipulagningu kennslu og vísindastarfa á vegum sérgreinarinnar • Þátttaka og þróun í upplýsingatækni við ritun í rafræna sjúkraskrá sviðsins • Ýmis verkefni tengd klínískri skráningu og skjalastjórnun Hæfnikröfur • Mjög góð kunnátta í íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli • Góð tölvukunnátta, skipulögð, sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð • Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót • Löggilding í læknaritun æskileg og góð starfsreynsla Starfshlutfall er 75%, dagvinna. Starfið veitist frá 1. janúar 2016 eða eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar veita Elías Ólafsson, yfirlæknir (eliasol@landspitali.is, 543 1000) og Þórdís Ingólfsdóttir, mannauðsráðgjafi (thoring@landspitali.is, 543 9106) Hjartarannsóknastofa LÍFEINDAFRÆÐINGUR Starf á hjartarannsóknarstofu við Hringbraut. Möguleiki er á að vinna að mastersverkefni tengt starfinu. Helstu verkefni og ábyrgð • Vinna við framkvæmd áreynsluprófa, úrlestur sólarhringshjartarita, gangráðseftirlit og fleira • Vinna á hjartaþræðingarstofu t.d. við að aðstoða við gangráðsísetningar, ýmsar raflífeðlisfræðilegar aðgerðir og kransæðavíkkanir • Úrvinnsla og túlkun niðurstaðna í samvinnu við hjartalækna • Þátttaka í öðrum verkefnum á hjartarannsókn eftir nánari ákvörðun stjórnanda Hæfnikröfur • Sjálfstæð og skipulög vinnubrögð • Frumkvæði og faglegur metnaður • Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum • Góð íslenskukunnátta skilyrði • Íslenskt starfsleyfi em lífeindafræðingur Starfið er laust frá 1. desember 2015 eða eftir samkomulagi. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi, unnið er í dagvinnu og á bakvöktum. Nánari upplýsingar veita Davíð Ottó Arnar, yfirlæknir (davidar@landspitali.is, 543 1000) og Jóhanna S. Gunnlaugsdóttir, yfirlífeindafræðingur (johsgunn@landspitali.is, 543 6158) Röntgendeild DEILDARLÆKNAR Um er að ræða tvær stöður. Annars vegar í 6 eða 12 mánuði. Boðið er upp á allt að tveggja ára stöðu sem nýtist til sérnáms fyrir þá sem hafa hug á sérfræðinámi í myndgreiningu. Hins vegar starf með sérstakri áherslu á ísótóparannsóknir og „molekular imaging”. Boðið er upp á allt að tveggja ára stöðu sem nýtist til sérnáms. Helstu verkefni og ábyrgð • Almenn störf deildarlæknis á röntgendeild • Þátttaka í kennslu og þjálfun læknanema • Þátttaka í rannsóknarvinnu Hæfnikröfur • Nákvæmni í vinnubrögðum • Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum • Íslenskt lækningaleyfi Starfshlutfall er 100% og eru störfin laus frá 1. desember 2015 eða eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar veitir Pétur H Hannesson, yfirlæknir (peturhh@landspitali.is, 824 5322). Umsóknarfrestur ofangreindra starfa er til og með 26 október 2015. Umsóknum fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Laun skv. kjarasamningi fjármálaráðherra og stéttarfélags. Sótt er um starfið rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf”. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. Landspítali er lifandi og fjölmennur vinnustaður með um 5.100 starfsmenn. Hann er aðalsjúkrahús landsins og miðstöð menntunar og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Á Landspítala er lögð áhersla á öryggi, jafnrétti, ábyrgan rekstur, góðan starfsanda og bættan húsakost.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.