Fréttablaðið - 10.10.2015, Page 96

Fréttablaðið - 10.10.2015, Page 96
Flugeldasýning Microsoft á Manhattan í vikunni var endanleg staðfesting á nýjum áherslum fyrir­tækisins. Tæknirisinn, sem áður fyrr var þekktur sem þokkalega fært og verulega umsvifa­ mikið hugbúnaðarfyrirtæki, hefur á síðustu árum endurskilgreint sig í augum fjárfesta, neytenda og hluthafa sem raftækjaframleiðandi í heims­ klassa. Microsoft kynnti fjölbreytta línu snjalltækja á þriðjudaginn. Þar á meðal nýja vörulínu Lumia­snjallsímanna með 20 megapixla myndavél með þre­ földu LED flassi og 5.2 LED snertiskjá, ásamt Microsoft Band, armbandi sem fylgist með hreyfingu og öðrum dag­ legum athöfnum. Microsoft Band og Lumia­línan berjast um völd á markaði sem Apple, Samsung og fleiri tækni­ fyrir tæki hafa traust yfirráð yfir og munu mæta erfiðri samkeppni. Frumsýning Lumia­línunnar og Microsoft Band var í raun hálfgerð neðanmálsgrein í kynningu Microsoft, enda hafði fyrirtækið augnablikum áður komið út úr skápnum sem einn framsæknasti snjalltækjaframleiðandi veraldar. Microsoft nær forskotinu Tvennt ber að nefna. Annars vegar Surface Pro 4 spjaldtölvuna og Surface Book, fyrstu fartölvu Microsoft. Surface Pro 4 byggir á sömu áherslum og vöktu athygli með fyrstu Surface­línunni árið 2012. Pro 4 er þynnri, léttari og öflugri en forverar hennar. Microsoft fullyrðir að spjaldtölvan sé 50% hraðvirkari en MacBook Air en þar leikur nýr örgjörvi Intel stórt hlutverk. Surface Book stal þó senunni. Þetta er fyrsta fartölva Microsoft, sem er merkileg staðreynd. Fyrir nokkrum árum náði tilraunastarfsemi Micro­ soft í tækjabúnaði til lyklaborða, tölvu­ músa og Xbox. Annars er það nánast móðgun við Microsoft að kalla Surface Book fartölvu enda hefur fyrirtækið verið fremst í flokki þegar kemur að sameiningu spjaldtölvunnar og far­ tölvunnar. Surface Book og Surface Pro 4 eru í grunninn afar áþekk tæki. Bæði státa þau af verulega öflugum snerti skjá sem virkar með griffli (e. stylus) og bæði eru hönnuð til að nota með sérhönnuðu lyklaborði. Með Surface Book gengur Microsoft lengra í hönnun sinni og hugmyndafræði. Lyklaborðið og skjárinn/spjaldtölvan eru í raun sama tækið. Verkfræðilegt listaverk Ralf Groene, sem leiðir hönnunar­ teymi Surface­vörulínunnar hjá Micro­ soft, sagði á kynningunni að öfugt við fyrri útgáfur Surface þá væri Surface Book fyrst og fremst hugsuð sem fartölva sem hægt væri að breyta í spjaldtölvu. Í framkvæmd útheimtir þessi hugmynd meiri vinnsluhraða, betri rafhlöðu ásamt öðru og það í sama ramma og neytendur sam­ þykkja sem ásættanlega stærð á spjaldtölvu. Lausnin fólst í löm sem dregst saman og út þegar fartölvan opnast og lokast. Miðað við kynningu Micro­ soft er lömin eins konar bandvefur sem tengir lyklaborðið og spjald­ tölvuna saman í eina heild. Þannig er hægt að sveigja snertiskjáinn 360 gráður og jafnvel losa skjáinn af og festa öfugt á lyklaborðið svo hægt sé að nýta öflugan tækjabúnaðinn sem leynist undir tökkunum. Því má leiða líkur að því að vinnslukrafturinn sé minni þegar spjaldtölvan er ekki tengd lyklaborðinu en um leið verði ending rafhlöðunnar betri. Að brúa bilið „Þessi vegamót sem við stöndum stundum á, þessi áskorun að velja á milli fartölvu og spjaldtölvu. Kannist þið við það?“ spurði Panay á sviði á þriðjudaginn. „Það er úr sögunni.“ Þetta er snjöll lausn á flóknu verk­ fræðilegu vandamáli. Tvö tæki með ólíka getu sameinast í einni öflugri fartölvu. Lásinn sem heldur lykla­ borðinu og spjaldtölvunni saman eru síðan engin venju­ leg klemma, heldur rafræn taug sem sendir skilaboð um að aðskilja íhluti skjásins og lykla­ borðsins þegar ýtt er á takka. Microsoft ætlar sér stóra hluti með nýrri vörulínu og Panay og Groene, ásamt Satya Nadella, framkvæmda­ stjóra Microsoft, eru óhræddir við að bera tækin saman við það besta sem Apple hefur fram að færa. Manneskjan óhagganleg breyta Nadella hefur innleitt nýja og nútímalegri stefnumótun hjá Micro­ soft. Og það var þörf á nýjungum. Windows, sem var eitt sinn notað í 90% allra tölvutækja en er nú að finna í 11% tækja, hefur þurft að lúta í lægra haldi í miskunnarlausri samkeppni við Apple, Google og fleiri. Nadella hefur nálgast vanda­ málið með því að fagna breytingum annars vegar og hins vegar með því að taka áhættu með innreið á nýja markaði. „Tækin koma og fara og þróast, en þú hverfur ekki. Vegferð tölvunnar hefur kennt okkur einfalda lexíu: Það tæki er ekki til sem verður mið­ punktur að eilífu,“ sagði Nadella á kynningu Microsoft. „Þessi mið­ punktur ert þú. Þannig þurfa gögnin þín, stillingar og smáforrit að fylgja þér og vera til staðar á því tæki sem hentar þér hverju sinni.“ Microsoft hefur forskotið á ný Panos Panay, yfirmaður vöruþróunar hjá Microsoft, lýsti því yfir á þriðjudaginn að Microsoft hefði „framleitt hina fullkomnu fartölvu“. Margt bendir til að hann hafi farið með rétt mál. Microsoft er nú fyrirtæki sem fagnar breytingum. Kjartan Hreinn Njálsson kjartanh@365.is Satya Nadella, forstjóri Microsoft, kynnti helstu nýjungar Microsoft í New York í vikunni. Mynd/Getty Þessi vegamót sem við stöndum stundum á, Þessi áskorun að velja á milli fartölvu og sPjaldtölvu. kannist Þið við Það? ✿ Surface Book Stýrikerfi Windows 10 Pro Miðverk (CPU) Intel Core i5/i7 Skylake Minni 8/16 GB Geymsla SSD 128 GB til 1TB Skjár 13.5’’ 3000 x 2000 (267 PPI) Myndavél 5.0 MP, 8.0 MP 1080p að aftan 1 0 . o k t ó B e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r40 h e L G i n ∙ F r É t t A B L A ð i ð Tækni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.