Fréttablaðið - 10.10.2015, Qupperneq 96
Flugeldasýning Microsoft á Manhattan í vikunni var endanleg staðfesting á nýjum áherslum fyrirtækisins. Tæknirisinn, sem áður fyrr var þekktur sem
þokkalega fært og verulega umsvifa
mikið hugbúnaðarfyrirtæki, hefur
á síðustu árum endurskilgreint sig í
augum fjárfesta, neytenda og hluthafa
sem raftækjaframleiðandi í heims
klassa.
Microsoft kynnti fjölbreytta línu
snjalltækja á þriðjudaginn. Þar á meðal
nýja vörulínu Lumiasnjallsímanna
með 20 megapixla myndavél með þre
földu LED flassi og 5.2 LED snertiskjá,
ásamt Microsoft Band, armbandi sem
fylgist með hreyfingu og öðrum dag
legum athöfnum. Microsoft Band og
Lumialínan berjast um völd á markaði
sem Apple, Samsung og fleiri tækni
fyrir tæki hafa traust yfirráð yfir og
munu mæta erfiðri samkeppni.
Frumsýning Lumialínunnar og
Microsoft Band var í raun hálfgerð
neðanmálsgrein í kynningu Microsoft,
enda hafði fyrirtækið augnablikum
áður komið út úr skápnum sem einn
framsæknasti snjalltækjaframleiðandi
veraldar.
Microsoft nær forskotinu
Tvennt ber að nefna. Annars vegar
Surface Pro 4 spjaldtölvuna og Surface
Book, fyrstu fartölvu Microsoft. Surface
Pro 4 byggir á sömu áherslum og vöktu
athygli með fyrstu Surfacelínunni árið
2012. Pro 4 er þynnri, léttari og öflugri
en forverar hennar. Microsoft fullyrðir
að spjaldtölvan sé 50% hraðvirkari en
MacBook Air en þar leikur nýr örgjörvi
Intel stórt hlutverk.
Surface Book stal þó senunni. Þetta
er fyrsta fartölva Microsoft, sem er
merkileg staðreynd. Fyrir nokkrum
árum náði tilraunastarfsemi Micro
soft í tækjabúnaði til lyklaborða, tölvu
músa og Xbox. Annars er það nánast
móðgun við Microsoft að kalla Surface
Book fartölvu enda hefur fyrirtækið
verið fremst í flokki þegar kemur að
sameiningu spjaldtölvunnar og far
tölvunnar.
Surface Book og Surface Pro 4 eru í
grunninn afar áþekk tæki. Bæði státa
þau af verulega öflugum snerti skjá sem
virkar með griffli (e. stylus) og bæði eru
hönnuð til að nota með sérhönnuðu
lyklaborði. Með Surface Book gengur
Microsoft lengra í hönnun sinni og
hugmyndafræði. Lyklaborðið og
skjárinn/spjaldtölvan eru í raun sama
tækið.
Verkfræðilegt listaverk
Ralf Groene, sem leiðir hönnunar
teymi Surfacevörulínunnar hjá Micro
soft, sagði á kynningunni að öfugt við
fyrri útgáfur Surface þá væri Surface
Book fyrst og fremst hugsuð sem
fartölva sem hægt væri að breyta í
spjaldtölvu. Í framkvæmd útheimtir
þessi hugmynd meiri vinnsluhraða,
betri rafhlöðu ásamt öðru og það
í sama ramma og neytendur sam
þykkja sem ásættanlega stærð á
spjaldtölvu.
Lausnin fólst í löm sem dregst
saman og út þegar fartölvan opnast
og lokast. Miðað við kynningu Micro
soft er lömin eins konar bandvefur
sem tengir lyklaborðið og spjald
tölvuna saman í eina heild. Þannig
er hægt að sveigja snertiskjáinn 360
gráður og jafnvel losa skjáinn af og
festa öfugt á lyklaborðið svo hægt sé
að nýta öflugan tækjabúnaðinn sem
leynist undir tökkunum. Því má leiða
líkur að því að vinnslukrafturinn sé
minni þegar spjaldtölvan er ekki
tengd lyklaborðinu en um leið verði
ending rafhlöðunnar betri.
Að brúa bilið
„Þessi vegamót sem við stöndum
stundum á, þessi áskorun að velja á
milli fartölvu og spjaldtölvu. Kannist
þið við það?“ spurði Panay á sviði á
þriðjudaginn. „Það er úr sögunni.“
Þetta er snjöll lausn á flóknu verk
fræðilegu vandamáli. Tvö tæki með
ólíka getu sameinast í einni öflugri
fartölvu. Lásinn sem heldur lykla
borðinu og spjaldtölvunni
saman eru síðan engin venju
leg klemma, heldur rafræn
taug sem sendir skilaboð um
að aðskilja íhluti skjásins og lykla
borðsins þegar ýtt er á takka.
Microsoft ætlar sér stóra hluti með
nýrri vörulínu og Panay og Groene,
ásamt Satya Nadella, framkvæmda
stjóra Microsoft, eru óhræddir við að
bera tækin saman við það besta sem
Apple hefur fram að færa.
Manneskjan óhagganleg breyta
Nadella hefur innleitt nýja og
nútímalegri stefnumótun hjá Micro
soft. Og það var þörf á nýjungum.
Windows, sem var eitt sinn notað
í 90% allra tölvutækja en er nú að
finna í 11% tækja, hefur þurft að
lúta í lægra haldi í miskunnarlausri
samkeppni við Apple, Google og
fleiri. Nadella hefur nálgast vanda
málið með því að fagna breytingum
annars vegar og hins vegar með því
að taka áhættu með innreið á nýja
markaði.
„Tækin koma og fara og þróast, en
þú hverfur ekki. Vegferð tölvunnar
hefur kennt okkur einfalda lexíu:
Það tæki er ekki til sem verður mið
punktur að eilífu,“ sagði Nadella á
kynningu Microsoft. „Þessi mið
punktur ert þú. Þannig þurfa gögnin
þín, stillingar og smáforrit að fylgja
þér og vera til staðar á því tæki sem
hentar þér hverju sinni.“
Microsoft hefur forskotið á ný
Panos Panay, yfirmaður vöruþróunar hjá Microsoft, lýsti því yfir á þriðjudaginn að Microsoft hefði „framleitt hina
fullkomnu fartölvu“. Margt bendir til að hann hafi farið með rétt mál. Microsoft er nú fyrirtæki sem fagnar breytingum.
Kjartan Hreinn
Njálsson
kjartanh@365.is
Satya Nadella, forstjóri Microsoft, kynnti helstu nýjungar Microsoft í New York í vikunni. Mynd/Getty
Þessi vegamót sem við
stöndum stundum á,
Þessi áskorun að velja
á milli fartölvu og
sPjaldtölvu. kannist
Þið við Það?
✿ Surface Book
Stýrikerfi
Windows 10 Pro
Miðverk (CPU)
Intel Core i5/i7
Skylake
Minni
8/16 GB
Geymsla
SSD 128 GB
til 1TB
Skjár
13.5’’ 3000 x
2000 (267 PPI)
Myndavél
5.0 MP, 8.0 MP
1080p að aftan
1 0 . o k t ó B e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r40 h e L G i n ∙ F r É t t A B L A ð i ð
Tækni