Fréttablaðið - 10.10.2015, Page 102
„Við vitum kannski aldrei nákvæmlega
hvað gerðist vestur á fjörðum fyrir 400
árum. Engar heimildir eru um illvirki
hvalveiðimanna frá Baskalandi þar en
þegar þeir voru drepnir var það sagt
vera fyrir glæpina sem þeir ættu eftir að
fremja, meðal annars nauðganir,“ segir
Sigrún Antonsdóttir, fornleifafræðingur
og leiðsögumaður. Hún er aðalhöfundur
texta á skilti því sem afhjúpað verður í
Ögri við Ísafjarðardjúp í dag til að minn
ast víga sem Íslendingar unnu á skipreika
Böskum árið 1615. Þau hafa hingað til
verið kölluð Spánverjavígin.
Sigrún segir atlöguna einkennilega í
ljósi þess að hvalveiðimennirnir hafi verið
búnir að dvelja hér við land allt sumarið
1615 og heimamenn keypt af þeim ódýrt
hvalkjöt. Þegar þeir hafi verið að leggja af
stað heim með fullfermi af lýsi hafi komið
aftakaveður með hafísreki og brotið skip
þeirra þrjú. „Danski kóngurinn gaf út til
skipun um að Íslendingar yrðu að koma
Böskum af sér og allar aðferðir væru leyfi
legar. Ari sýslumaður í Ögri tók því svo
að þeir væru réttdræpir óbótamenn. Þeir
bændur sem ekki kæmust í aðför að
þeim yrðu að greiða sektir og allan skaða
sem þessir menn mundu valda.“
Átján Baskar höfðu komist til Æð
eyjar, meðal annars skipstjórinn Martin
de Villafranca sem henti frá sér vopni
og bað mönnum sínum griða. „Þau grið
voru ekki haldin svo hann kastaði sér til
sunds af kletti og synti frá eyjunni syngj
andi fagran söng. Heimamenn reru á eftir
og vógu hann og svo alla hina. Nokkrum
dögum fyrr höfðu þrettán hlotið sömu
örlög í Dýrafirði,“ lýsir Sigrún.
Baskavinafélagið á Íslandi, Ögur ehf.,
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum og Súða
víkurhreppur standa að gerð skiltisins.
Sigrúnu er ljúft að leggja sitt af mörkum
enda er hún hálfur Baski. „Faðir minn
var frá San Sebastian og ég hef dvalið
dálítið í þeirri fögru borg. Samkvæmt
Íslendingabók er ég reyndar afkomandi
Ara í Ögri líka. Enda er það svo að þegar
ég er í Baskalandi reyni ég að fegra hlut
Íslendinga í málinu en hér heima dreg ég
taum Baska.“ gun@frettabladid.is
Minnisvarði um illvirki
Skilti um víg verður afhjúpað í Ögri í dag. Tilefnið er að 400 ár eru frá því sýslumaðurinn
Ari í Ögri safnaði saman liði til að vinna á átján baskneskum hvalveiðimönnum.
„Það er mikill áhugi núna fyrir þeim atburðum sem áttu sér stað í Djúpinu fyrir 400 árum,
nokkrar bækur hafa komið út á árinu og einhverjar bíómyndir eru í pípunum,“ segir Sigrún.
Fréttablaðið/Vilhelm
Heittelskuð mamma okkar,
tengdamamma, amma, dóttir og
systir,
Dagmar Sævaldsdóttir
sjúkraliði, nuddfræðingur,
leiðsögumaður og ævintýrakona,
lést á Landspítala Íslands mánudaginn
21. september. Útförin hefur farið fram
frá Kópavogskirkju. Innilegar þakkir til
starfsfólks 11E, 11G og heimahjúkrunar
Karítas. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á minningarsjóð Sjúkraliðafélags
Íslands.
Sóley Guðmundsdóttir
Bjarni Bjarnason Erla Þórey Ólafsdóttir
Sævaldur Bjarnason Rakel Sveinsdóttir
Theodór Bjarnason Íris Hlín Bjarnadóttir
Sævaldur Runólfsson Sigurbirna Hafliðadóttir
Þór Sævaldsson
og ömmubörn.
Ástkær móðir okkar,
Erla Stefánsdóttir
píanókennari,
sem lést 5. október,
verður jarðsungin frá Neskirkju
þriðjudaginn 13. október kl. 13.00.
Salome Ásta Arnardóttir
Sigþrúður Erla Arnardóttir
Stefán Örn Arnarson
Ástkær eiginkona mín,
móðir okkar og tengdamóðir,
Sigríður Gröndal
söngkona,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi miðvikudaginn 7. október.
Útför hennar fer fram í Hallgrímskirkju
föstudaginn 16. október kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið,
endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og
aðstandendur þeirra.
Kristinn Gestsson
Kristín Halla Kristinsdóttir Friðþjófur Þorsteinsson
Atli Þór Kristinsson
Alúðarþakkir til ykkar allra sem sýnduð
okkur hluttekningu við fráfall okkar
elsku besta pabba, tengdapabba, afa
og míns einstaka og góða Palla,
Páls Eyvindssonar
yfirflugstjóra,
Digranesvegi 64, Kópavogi.
Drottinn Jesús blessi ykkur öll.
Helga Ragna Ármannsdóttir
Björg Ragnheiður Pálsdóttir Benjamín Ingi Böðvarsson
Ármann Jakob Pálsson Áslaug Guðmundsdóttir
Sverrir Gaukur Pálsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýju við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa, langafa og
vinar,
Vigfúsar Magnússonar
læknis,
Sóltúni 10, Reykjavík.
Kristín Vigfúsdóttir Finnur Ingólfsson
Ragnhildur Vigfúsdóttir Hafliði Helgason
Ástríður Vigdís Vigfúsdóttir Árni Leifsson
Guðrún Þórðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sambýlismaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Reynir Ingi Helgason
lést á líknardeild Landspítalans
1. október síðastliðinn.
Útförin fer fram þann 15. október kl. 13.00
frá Digraneskirkju.
Sigurlaug E. Rögnvaldsdóttir
Harpa J. Reynisdóttir Jóhann P. Jónsson
Hafþór J. Reynisson
Ragnheiður R. Reynisdóttir Hákon H. Leifsson
Sigurjón Ari Reynisson
Elísabet Eir Reynisdóttir Kristján Ágústsson
Tryggvi Hrafn Hafþórsson
Leifur Ernir Hákonarson
Reynir Helgi Hákonarson
Eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gestur Þorsteinsson
frá Raufarhöfn,
Melteig 9, Garði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
24. október sl. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gunnlaug Hólm Hallgrímsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Katrín Árnadóttir
kennari,
Höfðagrund 17, Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness 7. október.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
fimmtudaginn 15. október kl. 14.00.
Guðbjörg
Guðmundur Anna Lea
Haukur Jónína
Reynir
Ragnhildur Jón Birgir
Erna
ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær eiginkona mín,
móðir okkar og amma,
Heike Alpers
Skaftahlíð 8,
lést þann 17. september.
Útför fer fram í kyrrþey að hennar ósk.
Innilegar þakkir til ættingja og vina fyrir
auðsýnda hlýju og samúð.
Karl Kristjánsson,
Brynja, Katrín og Kristján Karlsbörn,
barnabörnin Anton, Arna Björk,
Hrafnhildur, Kjartan,
Karl og Logi.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærs sambýlismanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Jóhanns Karls Bjarnasonar
Svarthömrum 68,
Reykjavík.
Þórunn K. Jónsdóttir
Álfhildur S. Jóhannsdóttir Þórarinn Gunnarsson
Gunnar Þór Jóhannsson Þóra Egilsdóttir
Guðmundur Ingi Jóhannsson
Jóna G. Ragnarsdóttir Ísak J. Ólafsson
Kristín G. Jóhannsdóttir Sumarliði Kristmundsson
Bjarni Jóhann Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
elskulegrar eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður og ömmu,
Helgu Víglundsdóttur
Álfkonuhvarfi 23.
Innilegar þakkir fær starfsfólk í
Heimahjúkrun Karitas, 11E Landspítala og líknardeild
Landspítalans fyrir góða og alúðlega umönnun í
veikindum hennar.
Stefán Runólfsson
Sóley Stefánsdóttir Þorsteinn Kristvinsson
Smári Stefánsson Guðrún J. Sæmundsdóttir
Guðný S. Stefánsdóttir Jón H. Pétursson
og barnabörn.
1 0 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r46 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót