Fréttablaðið - 10.10.2015, Page 114
Sigurður Árni Sigurðs-son á að baki glæsilegan feril í myndlistinni en í verkum sínum hefur hann oft velt upp spurn-
ingum um hlutverk fyrirmynda
eða forma á myndfletinum og vægi
forgrunns og bakgrunns. Í sumum
verkum Sigurðar Árna er jafnvel að
finna skugga þessara fyrirmynda
sem eru ekki til staðar í myndinni
sjálfri. Sigurður Árni hefur í gegnum
tíðina fengist við ýmsa miðla þó svo
að málverkið sé hans aðalmiðill. En
á sýningunni VARP kemur hann
enn á óvart með nýjum verkum og
ferskri nálgun á mörkum málverks
og skúlptúrs.
„Ég var með tvær sýningar í
Frakklandi, og önnur var býsna stór
og á safni, en þar var ég einvörðungu
að sýna málverk og teikningar.
Það getur verið að það sé hluti af
ástæðum þess að ég sýni núna þessi
verk í Hverfisgalleríi. Þetta eru verk
sem ég vil bara kalla málverk en þau
eru engu að síður ekki olía á striga
heldur eru efnistökin önnur. Þetta
er svolítið öðruvísi en ég hef verið
að gera en samt sem áður algjörlega
eðlilegt framhald. Ég held að ég hafi
drifið í að gera þessi verk núna, eftir
að þau höfðu legið lengi í undir-
meðvitundinni, eftir að ég var búinn
að vera með þessar tvær sýningar á
klassískum málverkum.“
Bakgrunnsvandamálið
„Þó svo að ég vilji kalla þetta mál-
verk þá er þetta útskorið ál og ég átt-
aði mig ekki á því fyrr en ég fór að
vinna þessi verk að það hefur verið
einhver árátta hjá mér í gegnum tíð-
ina að taka form úr málverkunum
mínum og gera þau þrívíð. Ástæðan
fyrir því, sem ég er alltaf að skynja
betur og betur, er þetta endalausa
vandamál með bakgrunninn. Bak-
grunninn í málverki. Þetta hef ég
verið að fara í gegnum í mínum fyrri
verkum eins og t.d. í trjágörðunum
mínum, kúlutrén, sem ég endaði
með að gera í módel og eins er með
hluta af útilistaverkum sem ég hef
gert. Þar eru hlutir sem hafa sprottið
beint út úr málverkinu. Hlutir sem
krefjast þess af mér á endanum að
vera raungerðir.“
Ein hugmynd í marga miðla
„Þess vegna lít ég á þessi verk sem ég
er að sýna núna sem málverk. Þetta
er framhald af því sem hefur gerst
áður, eins og þegar trjágarðarnir
urðu að módelum eða þegar ég fór
að gera glerverk út frá hugmyndum
sem voru búnar að vera að gerjast í
málverki.
En svo veit maður aldrei alveg
hvort var á undan, eggið eða hænan,
því þetta er allt eitt endalaust sam-
tal.“
Þrátt fyrir þessa þróun í verkum
Sigurðar Árna snýr hann sér þó
alltaf aftur að striganum. Hann segir
að þetta sé í raun þróun. „Ég sé þetta
frekar þannig að það sem ég vinn
með utan strigans bakkar upp hug-
myndirnar. Ég er alltaf að sannreyna
þær hugmyndir sem ég er að velta
áfram á undan mér og þess vegna fer
sú hugmynd kannski í gegnum fleiri
en einn eða jafnvel tvo miðla.
Það eru engin skilaboð fólgin í
miðlinum hverju sinni heldur er ég
fyrst og fremst að takast á við form
og vídd. Ég er núna að vinna með
ál og það er engin dýpri meining í
því efnisvali. Samt veit ég að ál er
iðnaðarvara og þar að auki þá er
það pólýhúðað svo efnið er algjör-
lega dautt sem slíkt. En ég vel álið,
umfram t.d. við sem myndi fela í sér
ákveðna áferð sem ég vil ekki, svo
ég leita bara uppi efni sem þjóna
hugmyndinni hverju sinni. Á end-
anum er þetta leikur með formið
og þar sem þetta er orðið þrívítt
þá myndast bein tenging við birtu
hvort sem það er rafmagnsljós eða
dagsbirta. Þannig eru til að mynda
útilistaverkin mín.“
Nábýlið við náttúruna
Í verkum Sigurðar Árna er oft að
finna sterka skírskotun í náttúruna,
til að mynda í litum og formi. Það
leiðir hugann að því hvort náttúru-
hringnum sé lokið með efnisvali á
borð við álið. „Ég nota reyndar sex-
hyrninginn mikið í því sem ég er að
gera núna og það er eitt af grunn-
formum náttúrunnar. Þannig að
náttúran er enn til staðar. En hún
er ómeðvituð í mínum verkum
og þannig hefur það alltaf verið.
Íslenskir listamenn finna þetta
þegar þeir fara út í heim. Útlend-
ingar telja sig alltaf sjá náttúruteng-
ingu í öllu sem við gerum. Ég held
að þetta sé rétt hjá þeim vegna þess
að þó svo að við séum komin inn í
tuttugustu og fyrstu öldina þá lifum
við í svo miklu nábýli við náttúruna
að þessi ómeðvitaða náttúrutenging
er alltaf til staðar. Þetta er hluti af
okkur, hluti af því sem við erum og
það finnst mér fallegt.“
Ég veit ekki
hvort var á undan,
eggið eða hænan
Sigurður Árni Sigurðsson myndlistar-
maður opnar í dag þriðju einkasýningu
sína á aðeins einu ári. Sýningin VARP
verður opnuð í Hverfisgalleríi en hinar
voru báðar í Frakklandi.
Sigurður Árni Sigurðsson við eitt verka sinna á sýningunni VARP sem opnar í dag í Hverfisgalleríi. Fréttablaðið/Vilhelm
Eitt af verkum Sigurðar Árna á sýningunni VARP. Fréttablaðið/Vilhelm
Ég eR AlltAF Að
SAnnReynA þæR
HugmyndiR Sem Ég eR Að
VeltA ÁFRAm Á undAn mÉR og
þeSS VegnA FeR Sú Hugmynd
kAnnSki í gegnum FleiRi en
einn eðA jAFnVel tVo miðlA.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
1 0 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r58 M e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð
menning