Fréttablaðið - 10.10.2015, Page 124
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Lífið í
vikunni
4.10.15-
10.10.15
#ÉGEREKKITABú
Netheimar loguðu í kjölfar uppátækis
þeirra Bryndísar Sæunnar S. Gísladóttur,
Töru Aspar Tjörvadóttur og Silju Bjarkar
Björnsdóttur þar sem þær skáru upp herör
gegn tabúi geðsjúkdóma.
„Okkur finnst tími til kominn
að gera geðsjúkdóma sýni-
lega og #égerekkitabú
er góð leið til að ná til
stórs hóps. Við viljum
með þessari vitundar-
vakningu auka sam-
kennd og skilning á
því að oft vantar mikið
upp á jafnrétti innan
heilbrigðiskerfisins milli
andlegra og líkamlegra sjúk-
dóma,“ segir Bryndís Sæunn.
VALIÐ á MÖRTU MARÍU GAGNRÝNT
„Margir sem koma að undirbúningi og
skipulagningu á þættinum hafa efast
um valið á henni á faglegum
forsendum, því hún er ekki
tónlistarmaður eða dansari.
Gagnrýnin hefur verið fagleg
og hefur verið rætt um
kosti hennar og galla,
bara svona með og
á móti. Þó svo að
Marta María hafi ekki
reynslu í tónlist eða
sviðsframkomu,
þá tel ég hana hafa
marga kosti sem
gagnast henni í
starfinu,“ útskýrir Jón
Gnarr, ritstjóri 365.
SIMpLy RED
TREÐUR Upp Í
ANNAÐ SINN Í
LAUGARDALS-
hÖLL
„Þeir eru á
stórum þrjátíu ára
afmælistúr núna
sem heitir Big Love.
hann hefst í Evrópu núna
síðar í október og sveitin spilar meðal
annars í Þýskalandi, Frakklandi,
hollandi og Danmörku og það er
allt meira og minna uppselt. Sveitin
á dyggan aðdáendahóp og flott lög
sem allir þekkja,“ segir Guðbjartur
Finnbjörnsson sem flytur bandið til
landsins.
STOpWAITGO UNDIRBÝR LOKALAG
áRAMÓTASKAUpSINS 2015
„Við erum að undirbúa gott lokalag núna,
þó að ég segi sjálfur frá, og getum lítið látið
uppi varðandi það að svo stöddu. En ég
get sagt að það verður frumsamið. Okkur
finnst við alveg standa þannig að við
ættum að geta komið frá okkur góðu
frumsömdu lagi,“ segir ásgeir.
Faxafeni 5, Reykjavík • Sími 588 8477
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 11-16
RÝMUM
TIL FYRIR
NÝJA TÍMA
VEGNA BREYTINGA Á VERSLUN
OKKAR Í FAXAFENI BJÓÐUM VIÐ
SÝNINGAREINTÖK OG ELDRI
GERÐIR AF ÝMSUM VÖRUM
MEÐ 20–50% AFSLÆTTI.
…… NÚ ER TÆKIFÆRIÐ ……
STILLANLEG RÚM • HEILSURÚM OG -DÝNUR • GAFLAR
SÆNGUR • KODDAR • SVEFNSÓFAR • STÓLAR • SÆNGURFÖT, O.FL.
l Flying Lotus – Hann er þekktur
innan raftónlistarsenunnar. Hefur
gefið út fimm plötur og hlotið mikið
lof gagnrýnenda. Lögin hans njóta
mikilla vinsælda á netinu, horft
hefur verið á mörg myndböndin
hans í milljónir skipta. Hann hefur
unnið með Kendrick Lamar, sem
dæmi.
l Hudson Mohawke – Þessi skoski
taktsmiður, lagahöfundur, raftón-
listarmaður og plötusnúður er nú á
mála hjá plötufyrirtækinu G.O.O.D.
Music, sem er í eigu Kanyes West.
Hann hefur unnið með Drake og
Kanye West, svo dæmi séu tekin.
l Nina Kraviz – Hin rússneska Nina
Kraviz hefur vakið athygli á ýmsum
sviðum. Hún er taktsmiður, plötu-
snúður og söngkona. Hún er vinsæl
á netinu, svo dæmi séu tekin. Horft
hefur verið á myndböndin hennar
í milljónir skipta. Hún hefur gefið
út tvær plötur sem hafa fengið fína
dóma, sérstaklega sú síðari.
l Aloe Blacc – Söngvarinn Aloe Blacc
er þekktur víða um heim, sér í lagi
fyrir lögin I Need a Dollar og The
Man, sem hafa ómað á útvarps-
stöðvum hér á landi, eins og annars
staðar í heiminum. Aloe Blacc hefur
unnið með mörgum þekktum
listamönnum og er á samning hjá
Interscope Records.
Þekktir úr
Red Bull Music Academy
„Ég trúði þessu eiginlega ekki þegar
ég sá þetta,“ segir tónlistarmaðurinn
Auðunn Lúthersson sem fékk inn-
göngu í hina eftirsóknarverðu aka-
demíu sem gengur undir nafninu
Red Bull Music Academy.
Akademían er starfrækt víða um
heim og mun Auðunn fara til Parísar,
sitja fyrirlestra og koma fram á sýn-
ingarkvöldum. Akademían hefur
gott orð á sér og sækja margir ungir
tónlistarmenn um að komast inn. Í
ár sóttu 4.509 um inngöngu og komst
61 tónlistarmaður að.
„Þetta hefur rosalega mikla þýð-
ingu fyrir mig,“ útskýrir Auðunn og
heldur áfram: „Í fyrsta lagi er þetta
mikil viðurkenning, að vera valinn
úr svona stórum hópi umsækjenda.
Í öðru lagi er þetta líka mikið tæki-
færi fyrir mig. Það hafa margir flottir
tónlistarmenn farið í þessa akadem-
íu, menn sem hafa svo farið að vinna
með stórum nöfnum eins og Drake
og Kanye West. Þannig að þetta er
alvöru dæmi.“
Nútíma RnB-tónlist
Nafn Auðuns hefur ekki farið hátt
í íslenskri tónlist, en hann stígur
nú fram á sjónarsviðið, fullur af
hæfileikum, með vel mótaðar hug-
myndir og sterka sýn á hvert hann
stefnir sem listamaður. Þekktasta
verk Auðuns hér á landi er líklega
lagið Strákarnir með Emmsjé Gauta;
Auðunn smíðaði taktinn í laginu.
Hann hefur einnig getið sér gott orð
með sveitinni Himbrin.
„Ég var valinn inn út á plötu sem ég
er nánast með tilbúna. Ef ég ætti að
lýsa henni, þá væri þetta nútíma RnB-
tónlist, svona „2016 sánd“. Ætli það sé
ekki best að lýsa þessu þannig?“
Fyrir lengra komna í RnB-tónlist,
mætti setja Auðun í undirflokkinn
PB RnB, sem er vísun í bjórinn Pabst
Blue Ribbon, en hann er vinsæll
hjá hipsterum víða. Þannig mætti
kannski kalla flokkinn einhvers
konar hipsteraútgáfu af RnB-tónlist.
Alls kyns spurningar
„Umsóknarferlið var langt. Bæði
þurfti ég að senda inn lög og svo
þurfti ég að svara alveg ótrúlega
mörgum spurningum. Ég held að
þeir hafi verið að tjékka hvaða sýn
maður er með sem listamaður.“
Aðstandendur tóku sér góðan
tíma til þess að fara yfir þessar tæp-
lega fimm þúsund umsóknir og var
Auðunn hreinlega búinn að gleyma
að hann hefði sótt um á sínum tíma.
„Þegar ég sá póstinn rann þetta upp
fyrir mér. Tilfinning var bara rugl. Ég
er eiginlega ekki með nógu mikinn
orðaforða til að lýsa tilfinningunni
almennilega.“
Með fullkomnunaráráttu
Auðunn hefur unnið í nokkurn
tíma að plötunni sem kom honum
inn í akademíuna. „Ég er með
mikla fullkomnunaráráttu og hef
nostrað við plötuna. Ég hlakka til
að fólk fái loksins að heyra hana.“
kjartanatli@365.is
Stígur fram nánast
fullmótaður
Auðunn Lúthersson fékk inngöngu í Red Bull Music Academy.
Þekktir tónlistarmenn hafa fengið tækifæri þar og komist á kortið.
„Hefur rosalega þýðingu fyrir mig,“ segir Auðunn.
Auðunn Lúthersson er ákaflega sáttur
við lífið um þessar mundir.
1 0 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r68 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð