Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.12.2015, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 16.12.2015, Qupperneq 62
Við höfðum ekki heyrt af þessu efni áður,“ segir Heiðrún Sig-fúsdóttir, eigandi íslenska fatamerkisins Dimmblá sem hannar og framleiðir býsna nýstárlegar slæður, sem unnar eru úr hundrað prósent vistvænu bananaefni og innblásnar af hlýnun jarðar. „Fólk verður oft svolítið skrítið, fyrst kemur svolítil þögn og svo velt- ir fólk fyrir sér hvernig megi búa til efni úr banönum,“ útskýrir Heiðrún og bætir við: „Efnið er ekki unnið úr slímugum banönum, heldur er það unnið úr laufum og trjástilkum eftir bananauppskeru og er framleitt á örfáum stöðum í Suðaustur-Asíu.“ Aðspurð hvernig efnið sé eigin- lega viðkomu líkir Heiðrún því við silki. „Mér finnst það reyndar enn mýkra en silki, en þrátt fyrir það er bananaefnið sterkara og þolir meira en silkið,“ útskýrir hún. Ís og jöklum er gert hátt undir höfði í þessari nýju línu, sem Una Hlín Kristjánsdóttur, yfirhönnuður hjá fyrirtækinu, hannar. „Hver flík í Glacial-línunni okkar er þess eðlis að á hana er prentað fallegt mynstur sem hannað er eftir ljósmyndum af náttúrunni. Við einblínum á hlýnun jarðar og notum hér ís og jökla, sem gætu heyrt sögunni til með áfram- haldandi hlýnun jarðar,“ segir hún og skýtur að, að alltaf komi mynstr- in viðskiptavinum skemmtilega á óvart, hvort sem er á íslenskum markaði eða erlendum. Því sé synd að slíkt augnakonfekt muni hverfa áður en mjög langt um líður. Dimmblá hefur lagt í vana sinn að styðja við umhverfissamtök á hverju ári, og nú í fyrsta skipti varð alþjóðlegt fyrirtæki fyrir valinu, en það má að einhverju leyti rekja til stækkandi umfangs fyrirtækisins á alþjóðavísu. „Glacial-línan mun styrkja al- þjóð legu samtökin Oceana sem vinna að því að vernda hafið. Sam- tökin hafa hlotið stuðning nokkurra stórstjarna á borð við Diane Lane, Barbra Streisand og Pierce Brosnan,“ segir Heið- rún. „Við munum svo f æ ra ú t kvíarnar strax eftir áramót og halda á vit ævintýranna í Þýskalandi með okkar vö r u . V i ð sáum gat í markaðinum þar, en Þjóð- ve r ja r e r u mjög með- vi t a ð i r u m umhverfismál, svo okkur þykir því liggja beinast við að fara þang- að,“ bendir Heiðrún brosandi á að lokum, alsæl með bananaslæð- urnar. Styður við Heiðrún með slæðurnar góðu, sem fæstir gera sér í hugarlund að séu úr banönum. Fréttablaðið/GVa Green tea & bláberjasafi 1 banani Frosið mangó Ferskt spínat 1 msk. hörfræ bútur af engiferrót 1 msk. lime-safi Setjið safann í blandarann eftir smekk, væna lúku af mangói og aðra af spínati. Auk þessa er rif- inn niður ágætis bútur af engifer- rót sem látinn er út í strax á eftir hörfræjunum og lime-safanum. Látið blandast saman í nokkrar mínútur. Einnig getur verið ágætt að setja skyr eða gríska jógúrt saman við, ef áhugi er á að gera safann matar- meiri. Þá eru herlegheitin toppuð með því að setja nokkra ísmola út í. Þá ætti fólk að vera fært í flestan sjó þegar brestur á með helgi jóla- boða og smákökuveislna. Einn vænn og grænn á milli jólaboða Engiferrót er sann- kölluð undrafæða, en hún hefur meðal annars þann hæfileika að geta dregið úr ógleði. umhverfið með slæðum úr banönum Heiðrún Sigfúsdóttir, eigandi íslenska fatahönnunar- merkisins Dimmblá, leitaði lengi fanga áður en hún fann silkilegt efni sem búið er til úr banönum. Hópurinn horfir nú út fyrir landsteinana á umhverfisvæn mið í Þýskalandi. 1 6 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m I Ð V I K U d A G U r42 L í f I Ð ∙ f r É T T A b L A Ð I Ð Lífið Guðrún Ansnes gudrun@frettabladid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.