Fréttablaðið - 17.03.2016, Page 6

Fréttablaðið - 17.03.2016, Page 6
1 7 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r6 F r é T T I r ∙ F r é T T a B L a ð I ð Frá kr. 259.900 MAROKKÓ ÆVINTÝRI Í Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M 74 0 84 7. maí í 12 nætur Einstök 12 nátta sérferð þar sem farþegum gefst tækifæri til að skyggnast inn í nýjan og framandi heim. Það er sérstök upplifun að koma til Marokkó, ekki einungis í sögulegum skilningi heldur einnig að kynnast landi og þjóð örlítið nánar. Í ferðinni er dvalið í litlum heillandi bæjum til sjávar og sveita svo og stærri borgum á borð við Marrakech og Agadir. Ekið er um stærstu pálmalundi í Norður-Afríku, ilmandi ávaxtahéruð og hin hrikalegu Atlasfjöll. Þá er haldið í úlfaldareið út í Sahara eyðimörkina þar sem gist er 2 nætur í Berba-tjaldi. Ferðalagið hefur því yfirbragð hins ókunna en er jafnframt töfrum þrungið og ógleymanlegt. Frá kr. 259.900 Netverð á mann m.v. 2 í herbergi frá kr. 259.900. Innifalið: Flug með Primera Air til og frá Agadir, skattar, gisting á 3*+ og 4* hótelum í 12 nætur með morgunverðarhlaðborði, 5 hádegisverðir og 10 kvöldverðir. Akstur og kynnisferðir samkvæmt ferðalýsingu. Úlfaldareið í Sahara eyðimörkinni. Íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku eða 20 manns. KjaramáL „Deilan hefur heldur þyngst,“ segir Kolbeinn Gunnarsson, formaður Verkalýðsfélagsins Hlífar, um stöðuna í kjaradeilu starfsmanna við ISAL, álver Rio Tinto Alcan í Straumsvík. Lestun áls um borð í þriðja flutn- ingaskipið sem komið hefur til Straumsvíkur frá því að félagsmenn Hlífar sem starfa við uppskipunina hófu verkfall hófst á hádegi í gær. Skipin koma vikulega. Yfirmenn í álverinu hafa gengið í störf starfs- manna sem í verkfalli eru, samkvæmt lögbannsúrskurði Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. „Mér sýnist þetta vera sami hópur- inn sem er í þessu. Þeir geta stokkið í þetta forstjórarnir svona eftir því sem skip koma,“ segir Kolbeinn. Verka- lýðsfélögin geti lítið gert á meðan úrskurður Sýslumannsins á höfuð- borgarsvæðinu standi. Úrskurðurinn hafi hins vegar verið kærður til Hér- aðsdóms Reykjaness og málið hafi átt að taka fyrir í gær. „En svo tekur tíma að fá málið í gegnum ferlið þar og á meðan þá geta þeir haldið upp- teknum hætti.“ Enn eigi hins vegar eftir að koma í ljós hversu langan tíma þetta taki. Kolbeinn segir viðræður um leið hafa verið í gangi. „Þeir lögðu fram tilboð á síðasta fundi sem við vorum ekki alls kostar sáttir við og erum að fara að kynna samninganefndinni okkar á morgun [í dag]. Það var frek- ar skref aftur á bak heldur en hitt.“ ISAL haldi sig fast við kröfuna um að fá út úr kjarasamningi við starfsmenn hömlur sem settar eru á að fyrirtækið geti ráðið verktaka til starfa. „Það er númer eitt tvö og þrjú hjá þeim. Og tilboðið sem við erum að fara að kynna er ekki í takt við það sem verið var að ræða fyrir síðasta fund.“ Ál hefur aðeins safnast upp á hafnarbakkanum í Straumsvík, þar sem afköst yfirmanna í álverinu hafa ekki verið þau sömu og starfsmann- anna sem verkunum sinna alla jafna. Kolbeinn segir lestun í síðasta skip þó hafa farið nálægt þeim 4.000 þúsund tonnum sem alla jafna eiga að fara með skipinu, en þá fór skipið með um 3.500 tonn af áli. „Það safnast eitthvað upp. Það eru fjögur til fimm þúsund tonn sem liggja hér ófarin, og átta þúsund tonn kannski núna þegar þetta skip er ólestað. Þetta hleðst smám saman upp.“ olikr@frettabladid.is Deilan harðnar hjá ISAL í Straumsvík Lestun áls í þriðja flutningaskipið frá því verkfallsaðgerðir hófust er byrjuð. Lög- bann sýslumanns á hluta aðgerða Verkalýðsfélagsins Hlífar var þingfest í Hér- aðsdómi Reykjaness í gær. Síðasta tilboð skref afturábak, segir formaður Hlífar. Yfirmenn álversins í Straumsvík við uppskipun áls í flutningaskip um miðjan dag í gær. Fréttablaðið/Ernir Tilboðið sem við erum að fara að kynna er ekki í takt við það sem verið var að ræða fyrir síðasta fund. Kolbeinn Gunn- arsson, formaður Hlífar Nýr hæstaréttardómari í Bandaríkjunum Barack Obama Bandaríkjaforseti tilnefndi Merrick Garland sem nýjan dómara við Hæstarétt Bandaríkjanna í gær. Garland mun taka sæti hins íhaldssama Antonins Scalia sem átti sæti í réttinum frá 1986 en hann lést í febrúar. Öldungadeild Bandaríkjaþings þarf að staðfesta skipun nýs dómara. Fréttablaðið/EPa

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.