Fréttablaðið - 17.03.2016, Page 8
www.volkswagen.is
Amarok býður upp á einstaklega gott vinnuumhverfi, mikið
innanrými og stóran pall. Frábærir aksturseiginleikar og
þýsk gæði endurspeglast í þessum kröftuga pallbíl.
Amarok Startline með fjarstýrðum og tímastilltum vélahitara
(Webasto) og loftkælingu fæst nú á sérstöku tilboðsverði.
Amarok Startline 4Motion D/C 2.0 TDI
140 hestöfl kostar frá
5.840.000 kr.
(4.709.677 kr. án vsk)
Eyðsla frá 7,6 lítrum/100 km.
Afkastamikill vinnubíll
www.volkswagen.is
AtvinnubílarHEKLA býður gott úrval atvinnubíla og góða þjónustu.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Volkswagen Amarok
Bandaríkin Afgerandi forvals-
kosningar fóru fram í fimm ríkjum
Bandaríkjanna á þriðjudaginn sem
enduðu með því að Donald Trump og
Hillary Clinton báru sigur úr býtum
og Marco Rubio dró sig út úr kosn-
ingabaráttunni.
Því eru nú aðeins fimm eftir sem
keppast um að verða næsti forseti
Bandaríkjanna. Það eru auk Trumps
og Clinton John Kasich, ríkisstjóri
Ohio, Ted Cruz og Bernie Sanders.
Í kosningunum á þriðjudaginn
sigraði Trump í Flórída, Illinois,
Missouri og Norður-Karólínu en
Kasich vann í Ohio. Clinton sigraði
hins vegar í öllum fylkjunum. Mesta
fylgi Clinton var í Flórída þar sem
hún hlaut 65 prósent atkvæða. Mesta
fylgi Trumps var einnig í Flórída þar
sem hann fékk 46 prósent atkvæða.
Yfirgnæfandi líkur eru nú á að
Clinton verði forsetaefni Demókrata-
flokksins. Sigur Kasich í Ohio eykur
hins vegar líkur á ringulreið á flokks-
þingi repúblikana þar sem ólíklegra
er nú að einhver einn frambjóðenda
flokksins nái að tryggja sér hreinan
meirihluta kjörmanna fyrir flokks-
þingið sem fram fer í Cleveland í júlí.
Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmála-
fræðingur telur engar líkur á því að
Kasich muni sigra. „Hann heldur
áfram baráttunni í þeirri von að eng-
inn nái meirihluta. Þá verður klofinn
landsfundur eða kosið á landsfundi í
núllstöðu,“ segir hún.
„Það eru mjög flóknar reglur á
landsfundinum. Þeir sem koma til
greina eru þeir sem hlutu stuðning
í átta ríkjum eða fleirum, sem eru
Cruz og Trump, en síðan gæti alltaf
komið einhver nýr sem fengi stuðn-
ing á gólfinu þegar fundurinn byrjar
og gæti þannig aflað sér meiri stuðn-
ings. Margir í repúblikanahópnum
halda í þá von að það verði hægt að
stoppa Trump með svona leið, af
því að það virðist ekki vera hægt að
stoppa hann með öðrum leiðum,“
segir hún.
Silja Bára telur ekki jafn mikla
óvissu ríkja um forsetaefni Demó-
krataflokksins. „Það var tiltölulega
óraunhæft fyrir Sanders að vinna
fyrir tveimur vikum og eftir að Clin-
ton jók svona við forskot sitt þá er
það bara orðið mjög erfitt. Sanders
þyrfti að vinna í New York og Kali-
forníu sem er ekki mjög líklegt.“
Silja Bára telur hins vegar að það
hafi verið Clinton til framdráttar að
þurfa að hafa fyrir tilnefningunni.
„Þó að þetta hafi auðvitað verið tæpt
stundum, þá hefur þetta verið mjög
drengileg og siðmenntuð barátta.
Þeim hefur tekist að vera í baráttu án
þess að rífa hvort annað niður. Þetta
hefur ekki skaðað Clinton mikið,“
segir hún.
Of snemmt er að fullyrða nú hvort
Clinton eða Trump muni bera sigur
úr býtum í forsetaslagnum. Silja Bára
segir að landskannanir hafi sögulega
verið góð vísbending og samkvæmt
þeim hefur Clinton alltaf lagt Trump.
„Ég hef allavega ekki séð neitt sem
gefur annað til kynna,“ segir Silja
Bára Ómarsdóttir.
saeunn@frettabladid.is
Áhrifarík úrslit í kosningum
Clinton og Trump báru sigur úr býtum í forvalskosningum í fimm fylkjum Bandaríkjanna á þriðjudaginn.
Í kjölfarið dró Marco Rubio sig út úr forsetaslagnum. Kannanir benda til þess að Clinton myndi sigra Trump.
Vinsældir Trumps og Clinton fara ekki dvínandi. FréTTablaðið/GeTTyHillary Clinton. FréTTablaðið/ePa
Rubio hættur
Stærstu frétt-
irnar af for-
valskosn-
ingunum á
þriðju-
daginn
eru þær að
Marco Rubio,
öldungadeildar-
þingmaður repúblikana, tilkynnti
að hann væri hættur í forseta-
baráttunni.
Flórída er heimaríki Marcos
Rubio og þar sem hann sigraði
ekki þar heldur hlaut einungis 27
prósent atkvæða, ákvað hann að
játa sig sigraðan eftir þessar for-
kosningar.
„Það er áhugavert að Rubio var
sá frambjóðandi repúblikana sem
var sterkastur gegn Clinton. Skyn-
semisrakaval repúblíkana hefði
verið að styðja hann, en það sýnir
hvað kosningar eru órökréttar,“
segir Silja Bára.
Tækni Bandarísku tæknirisarnir
Facebook, Google og Snapchat vinna
nú allir í því að dulkóða upplýsingar
notenda í meiri mæli en áður. Frá
þessu greinir fréttastofa The Guardian.
Þannig mun Facebook til að mynda
dulkóða öll símtöl sem fara í gegnum
forrit þeirra, WhatsApp. Dulkóðunin
kemur í veg fyrir að utanaðkomandi
aðilar hafi aðgang að upplýsingunum.
Ákvörðun tæknirisanna þykir ekki
líkleg til að gleðja stjórnvöld í Banda-
ríkjunum en bandaríska alríkislög-
reglan (FBI) á nú í harðri deilu við
Apple vegna dulkóðunar. FBI hefur
farið fram á að Apple smíði forrit
til að gera FBI kleift að komast inn í
iPhone-síma annars árásarmannanna
sem réðust á almenna borgara í San
Bernardino í Kaliforníu á síðasta ári.
Apple hefur neitað því og sagt að
slíkt forrit myndi stefna öryggi upp-
lýsinga allra eigenda iPhone í heim-
inum í hættu. – þea
Tæknirisar auka
við dulkóðun
LögregLumáL Að minnsta kosti
þremur bílum af tegundinni Subaru
Impreza hefur verið stolið á höfuð-
borgarsvæðinu á síðustu dögum.
Eigandi eins bílanna, sem er
árgerð 1996, hafði samband við
lögreglu eftir að hann varð þess var
að bíl hans hafi verið stolið og fékk
þær upplýsingar hjá lögreglunni að
þetta væri ekki fyrsti bíllinn af þess-
ari tegund sem stolið hefði verið
undanfarna daga. Lögreglan greindi
viðkomandi frá því að bílum af þess-
ari tegund og af svipaðri árgerð væri
stolið skipulega.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar bárust 26 tilkynningar
um nytjastuld á vélknúnum farar-
tækjum í febrúarmánuði en 71 til-
kynning hefur borist frá áramótum.
– þv
Subaru Impreza
ítrekað stolið
bílum af tegundinni Subaru impreza
hefur ítrekað verið stolið undanfarna
daga. FréTTablaðið/Heiða
Kasich heldur
áfram baráttunni í
þeirri von að enginn nái
meirihluta.
Silja Bára
Ómarsdóttir
stjórnmálafræðingur
1 7 . m a r s 2 0 1 6 F i m m T u d a g u r8 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð